Morgunblaðið - 31.07.2018, Side 32

Morgunblaðið - 31.07.2018, Side 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 2018 Þriðja syrpa hinna gríðarvinsælu sjónvarpsþátta Netflix, Stranger Things, verður ekki sýnd fyrr en næsta sumar en aðdáendur héldu að hún yrði sýnd í byrjun vetrar. Þeir þurfa því að bíða mun lengur en þeir áttu von á. Cindy Holland, aðstoðarforstjóri deildar nýs efnis á Netflix, var spurð að því fyrir fáeinum dögum, á fundi bandarískra samtaka gagn- rýnenda sjónvarpsefnis, hvenær sýna ætti næstu þáttaröð og svaraði hún þessu til, að ákveðið hefði verið að bíða fram á næsta sumar. Ástæð- an væri sú að menn vildu vanda vel til verka, nánar tiltekið höfundar þáttanna, Duffer-bræður og leik- stjóri þeirra, Shawn Levy. Þeir vildu að næsta syrpa yrði betri en sú síðasta og þyrftu því að gefa sér góðan tíma. Holland fullvissar aðdáendur um að syrpan verði bið- arinnar virði. Biðin lengist eftir Stranger Things 3 Vinsælir Þættirnir Stranger Things hafa notið mikilla vinsælda á Netflix. Leikarinn Mark Hamill segir það ljúfsára tilfinningu að leika í Stjörnustríði bæði með og án leik- konunnar Carrie Fisher en hún lést árið 2016 eftir að tökum lauk á síð- ustu kvikmynd sagnabálksins, Star Wars: The Last Jedi. Hamill hefur farið með hlutverk hetjunnar Loga geimgengils í bálkinum og segir hann það huggun harmi gegn að Fisher verði í næstu kvikmynd en tilkynnt hefur verið að tökur með Fisher úr síðustu mynd verði not- aðar í henni, tökur sem voru ekki nýttar. Tilkynnt var í síðustu viku að leikarar hefðu verið valdir í næstu mynd sem verður níundi kafli sög- unnar og að Fisher myndi birtast enn á ný sem Lilja prinsessa. Af öðrum gömlum Stjörnustríðs- stjörnum sem verða í næstu mynd má nefna Billy Dee Williams og Anthony Daniels og af nýjum leik- urum má nefna Keri Russell og Richard E. Grant. Leikarar úr síð- ustu tveimur myndum munu snúa aftur, m.a. Daisy Ridley, John Boy- ega, Oscar Isaac og Adam Driver. Ljúfsárt að Fisher verði í Stjörnustríði AFP Prinsessa Fisher á frumsýningu Star Wars: The Force Awakens, árið 2015. Aðsókn að nýjustu framhaldsmynd Mission: Imossible-kvikmyndarað- arinnar, Fallout, fór fram úr björt- ustu vonum aðstandenda hennar og stjórnenda Paramount-kvikmynda- versins síðustu daga. Kvikmyndin hefur fengið glimrandi dóma og um helgina seldust miðar á hana í Bandaríkjunum fyrir 61,5 milljónir dala – um sex og hálfan milljarð króna, og í öðrum löndum fyrir um 92 milljónir dala – 9,6 milljarða. Kostnaður við framleiðslu og kynningu kvikmyndarinnar alþjóð- lega nam alls um 320 milljónum dala. Kvikmyndaröðin Mission: Im- possible byggist á rúmlega hálfrar aldar gamalli sjónvarpsþáttaröð. Gagnrýnendur segja vinsældir kvikmyndanna byggjast á frammi- stöðu aðalhetjunnar frá upphafi, sem Tom Cruise leikur. Cruise, sem er orðinn 56 ára gamall, leikur sjálfur í öllum áhættuatriðum. „Þetta er þroskuð kvikmyndaröð en þeim hefur auðnast að halda henni furðulega ferskri,“ segir for- stjóri Paramount ánægður við The New York Times um frammistöðu Cruise og Christopher McQuarrie sem leikstýrir og skrifar handritið. Nýja Mission: Impossible gengur vel Svalur Hinn 56 ára Tom Cruise leikur aðalhlutverkið og líka í áhættuatriðum. Ástralska leikkonan Naomi Watts, austurríski leikarinn Christoph Waltz og nýsjálenski leikstjórinn Taika Waititi hafa bæst í dómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum sem hefst 29. ágúst næstkomandi. Mexíkóski leikstjórinn Guillermo del Toro verður formaður nefndar- innar en hann hlaut aðalverðlaun hátíðarinnar í fyrra, Gullna ljónið, fyrir kvikmyndina The Shape of Water. Aðrir sem sæti eiga í dóm- nefnd eru tævanski leikstjórinn Sylvia Chang, danska leikkonan Trine Dyrholm, franska leikkonan Nicole Garcia, ítalski leikstjórinn Paolo Genovese og pólski leikstjór- inn Malgorzata Szumowska. Watts, Waltz og Waititi í dómnefnd AFP Sjóuð Naomi Watts er vön því að ganga rauða dregilinn á kvikmyndahátíðum. Mýrin 12 Rannsóknarlögreglumað- urinn Erlendur er kallaður á vettvang glæps í kjallaraíbúð í Norðurmýrinni. Við fyrstu sýn virðist sem um sé að ræða tilhæfulausa árás á roskinn ógæfumann, en ekki er allt sem sýnist Metacritic 75/100 IMDb 7,0/10 Bíó Paradís 22.00 101 Reykjavík Metacritic 68/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 18.00 Andið eðlilega Morgunblaðið bbbbm Bíó Paradís 22.00 Hearts Beat Loud Bíó Paradís 18.00 You Were Never Really Here 16 Myndin fjallar um fyrrverandi sérsveitar- og FBI-mann, Joe. Hann fær það verkefni að hafa uppi á ungri stúlku sem seld hefur verið mansali á vændishús í New York. Metacritic 84/100 IMDb 6,9/10 Bíó Paradís 22.30 The Florida Project 12 Metacritic 92/100 IMDb 7,6/10 Bíó Paradís 17.45 BPM (120 Beats Per Minute) 12 Bíó Paradís 20.00 Mamma Mia! Here We Go Again Morgunblaðið bbbbn Metacritic 66/100 IMDb 7,0/10 Laugarásbíó 15.00, 17.00, 19.50, 22.15 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 21.55 Sambíóin Keflavík 17.30, 20.00, 22.30 Smárabíó 16.30, 17.00, 19.10, 19.40, 22.10 Háskólabíó 18.00, 21.00 Borgarbíó Akureyri 17.00, 19.30, 21.50 Hereditary 16 Morgunblaðið bbbbn Metacritic 87/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 20.00, 22.30, 22.40 Sambíóin Egilshöll 22.20 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.40 Sambíóin Keflavík 22.30 The Equalizer 2 16 Myndin fjallar um fyrrver- andi lögreglumann sem er nú leigumorðingi. Laugarásbíó 17.15, 19.45, 22.15 Smárabíó 17.10, 19.30, 21.50, 22.20 Háskólabíó 20.40 Borgarbíó Akureyri 21.30 Hotel Artemis 16 Myndin gerist í framtíðinni þegar óeirðir geisa í Los An- gelis. Nunna rekur leynilega slysavarðsstofu fyrir glæpa- menn. Háskólabíó 18.20, 21.20 Book Club Metacritic 53/100 IMDb 6,3/10 Smárabíó 14.50, 19.50 Háskólabíó 18.10 Tag 12 Lítill hópur fyrrum bekkjar- félaga skipuleggur flókinn, árlegan „klukk“ leik, sem krefst þess að þátttakendur þurfa sumir að ferðast um landið þvert og endilangt. Metacritic 56/100 IMDb 7,1/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.20 Ocean’s 8 Debbie Ocean safnar saman liði til að fremja rán á Met Gala-samkomunni í New York. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 61/100 IMDb 6,3/10 Sambíóin Kringlunni 19.40, 22.00 Adrift 12 Morgunblaðið bbbmn Laugarásbíó 19.50, 22.00 Sicario: Day of the Soldado 16 Morgunblaðið bbbn Metacritic 60/100 IMDb 7,4/10 Smárabíó 22.10 Jurassic World: Fallen Kingdom 12 Morgunblaðið bbmnn Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Álfabakka 16.50, 19.40, 22.30 Hin Ótrúlegu 2 Bob Parr, Hr. Ótrúlegur, þarf að annast Jack-Jack á með- an Helen, Teygjustelpa, fer og bjargar heiminum. Morgunblaðið bbbbn Metacritic 80/100 IMDb 8,9/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00 Sambíóin Akureyri 17.30 Sambíóin Keflavík 17.30 Hótel Transylvanía 3: Sumarfríið Mavis kemur Drakúla á óvart með því að skipuleggja fjöl- skylduferð á lúxus skrímsla skemmtiferðaskipi, þannig að hann geti fengið hvíld frá eigin hótelrekstri. Metacritic 59/100 IMDb 6,7/10 Laugarásbíó 15.30, 17.40 Sambíóin Egilshöll 17.40 Smárabíó 15.00, 15.20, 17.20, 17.40 Háskólabíó 17.50 Borgarbíó Akureyri 17.30 Draumur Myndin skoðar ósagða sögu Mjallhvítar, Öskubusku og Þyrnirósar, sem komast að því að þær eru allar trúlof- aðar sama draumaprins- inum. Prinsinn upplifir þær breytingar að verða talinn ómótstæðilegur af flestum eftir að álfadís hellir á hann töfradufti í miklu magni. Smárabíó 14.50 Hope van Dyne og Dr. Hank Pym skipuleggja mikilvæga sendiför, þar sem Ant-Man þarf að vinna með The Wasp, til að leiða í ljós leynd- armál úr fortíðinni. Morgunblaðið bbbnn Metacritic 70/100 IMDb 7,6/10 Sambíóin Álfabakka 15.00, 17.30, 20.00, 22.30 Sambíóin Egilshöll 22.00 Sambíóin Kringlunni 14.30, 17.00, 19.30, 22.00 Sambíóin Akureyri 20.00, 22.30 Ant-Man and the Wasp 12 Kona fer í stríð Kona á fimmtugsaldri ákveður að bjarga heiminum og lýsir yfir stríði gegn allri stóriðju í landinu. Hún gerist skemmdarverkamaður og er tilbúin að fórna öllu fyrir móður jörð og hálendi Ís- lands þar til munaðarlaus stúlka frá Úkraínu stígur inn í líf hennar. Morgunblaðið bbbbb Háskólabíó 21.10 Bíó Paradís 20.00 Skyscraper 12 Myndin fjallar um fyrrum aðal samningamann alríkis- lögreglunnar í gíslatöku- málum sem nú vinnur við öryggisgæslu. Metacritic 52/100 IMDb 6,8/10 Sambíóin Egilshöll 20.00, 22.30 Sambíóin Keflavík 20.00 Smárabíó 20.10, 22.30 Borgarbíó Akureyri 19.30 Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðum kvikmyndahúsanna Kvikmyndir bíóhúsanna mbl.is/bio

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.