Morgunblaðið - 31.07.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 31. JÚLÍ 212. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Sjaldgæft að þær finnist á lífi
2. Íslendingur týndur á Spáni
3. Fundu lík 13 ára stúlku
4. „Þetta er bara ónýt vertíð“
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarmennirnir Ólöf Arnalds og
Skúli Sverrisson koma fram í sumar-
tónleikaröð Norræna hússins annað
kvöld kl. 21. Ólöf og Skúli hafa verið
samstarfsmenn til fjölda ára, samið
tónlist saman og komið fram á fjöl-
mörgum tónleikum.
Morgunblaðið/Eggert
Ólöf og Skúli á
sumartónleikum
Söngkonan
Stína Ágústs-
dóttir kemur fram
á Kex hosteli í
kvöld kl. 20.30
með hljómsveit
sem skipuð er
Andrési Þór
Gunnlaugssyni á
gítar, Sigmari Þór
Matthíassyni á kontrabassa og Erik
Qvick á trommur. Fluttir verða
„væmnir standardar“ úr amerísku
söngbókinni í bland við hressandi
dægurlög, eins og segir í tilkynningu.
Væmin lög og hress-
andi á djasskvöldi
Listasafn Íslands stendur fyrir
listagöngu í dag kl. 14, frá safninu að
heimili og vinnustofu listmálarans
Ásgríms Jónssonar (1876-1958), en
hann var einn fyrsti listmálari þjóð-
arinnar. Á leiðinni munu göngumenn
virða fyrir sér hús sem
endurspegla mis-
munandi stílbrigði í
byggingarlist á 20.
öld, þar sem fjöl-
margir listamenn
áttu heimili og
vinnustofur. Að-
göngumiði á safnið
gildir í gönguna.
Frá safni að safni
Á miðvikudag Hæg norðlæg eða breytileg átt og rigning með köfl-
um um norðanvert landið en stöku skúrir síðdegis sunnantil. Hiti 8
til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 5-13 m/s, hvassast syðst, skúrir
syðra og vestra, en skýjað með köflum norðan- og austantil. Hæg-
viðri og úrkomulítið seint í kvöld. Hiti 9 til 18 stig, svalast eystra.
VEÐUR
Aðeins eitt stig skilur að
þrjú efstu liðin í Pepsi-deild
karla eftir að 14. umferðinni
lauk í gærkvöld. Valsmenn
urðu að sætta sig við jafn-
tefli gegn næstneðsta lið-
inu, Fylki, en eru með 29
stig á toppnum. Stjarnan og
Breiðablik eru með 28 stig.
Keflvíkingar töpuðu enn,
nú gegn Breiðabliki, og
jöfnuðu 33 ára gamalt
met í lítilli stigasöfnun í
deildinni. »1-3
Eitt stig skilur að
þrjú efstu liðin
Fyrir kvennalið Þórs/KA verður
töluverður kostnaður af því að taka
þátt í Meistaradeild Evrópu í fót-
bolta en íslensku karlaliðin fá um-
talsverðar tekjur af því að vera
með í Evrópumótunum. Nói Björns-
son, formaður
meistara-
flokksráðs
Þórs/KA,
segir að
takist liðinu
að komast
áfram í
riðlakeppn-
inni og í
sjálfa
útsláttar-
keppnina
aukist
kostnaður-
inn veru-
lega. »1
Dýrt fyrir kvennalið að
fara í Evrópukeppni
„Ég var með ákveðna fókuspunkta
fyrir mótið og það hefur gengið fínt
hjá mér. Þetta er eins og undanfarin
ár. Ég hef verið að gera mitt besta
fyrir Stjörnuna. Ég hef ekki verið með
nein föst markmið fyrir mig sjálfa,“
segir Lára Kristín Pedersen, sem lék
sérstaklega vel í 11. umferð Pepsi-
deildar kvenna og er næstefst í ein-
kunnagjöf Morgunblaðsins. »4
Hef gert mitt besta
fyrir Stjörnuna
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Eyjamenn hafa margir fyrir löngu hafið undir-
búning fyrir Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sem
fer fram í 144. skipti um verslunarmannahelgina.
Magnús Bragason hótelrekandi segir Þjóðhátíð
skipta sig gríðarlega miklu máli, en hann er nú að
fara á hátíðina í sitt 52. skipti.
„Það er núna í þessum töluðu orðum verið að
smyrja flatkökurnar. Svo er líka verið að gera
pítsusnúða. Það er verið að fylla koffortið af mat,“
segir Magnús, en hann mun, eins og margir aðrir
Eyjamenn, taka á móti fjölda fólks í hvíta tjaldi
fjölskyldu sinnar um næstu helgi.
„Styrkur Þjóðhátíðarinnar er hvað hún byggir
á miklum hefðum. Hefðirnar geta bæði verið hvítu
tjöldin og dagskráin en svo er líka hver fjölskylda
með sína hefð,“ segir Magnús og bendir á að hefð-
irnar séu rótgrónar í sinni fjölskyldu.
„Ég er svo heppinn að stórfjölskyldan tekur öll
mikinn þátt í Þjóðhátíð. Þetta er fyrir okkur eins
og gott ættarmót. Við mætum alltaf prúðbúin í
dalinn á föstudegi. Svo eftir setningarathöfnina
förum við í kaffi til mömmu uppi í tjaldi,“ segir
Magnús, en þar eru kræsingarnar ekki af verri
endanum; rjómatertur, flatkökur og lagtertur.
Nýr dúkur, koffort og skápar
„Ég er alinn upp við það að taka mikinn þátt í
Þjóðhátíð. Foreldrar mínir voru í því að sjá um
Þjóðhátíðina og svo var ég í því að verka lunda
þegar það mátti. Ég reykti lunda sem var borð-
aður í hvítu tjöldunum,“ segir Magnús.
Hann segir allan undirbúning í kringum hvítu
tjöldin skipa stóran sess í hátíðarhöldunum, en
Magnús fjárfesti meðal annars í nýjum tjalddúki
fyrir hátíðina í ár.
„Við erfum bæði koffort og skápa og því er
haldið við en svo er líka alltaf eitthvað nýtt keypt
inn, eins og bekkir og annað slíkt,“ segir Magnús,
en aðbúnaður í hvítu tjöldum heimamanna er yfir-
leitt allur sá glæsilegasti.
Umsóknir um lóðir fyrir hvít tjöld fór í fyrsta
skipti fram á netinu í ár, en Magnús segir stað-
setninguna skipta nokkru máli.„Við vorum svo
heppin að fá fyrsta valmöguleika og erum á Þórs-
götu, þar sem við viljum vera. Menn eru á því að
besta fólkið sé alltaf á Þórsgötu,“ bætir Magnús
kíminn við.
„Alla daga mætum við um kaffileyti í dalinn og
hittum ættingja og vini yfir daginn. Svo setjumst
við tímanlega í brekkuna. Nú keppist maður við
að komast upp í brekku fyrir dagskrá svo maður
fái gott sæti. Svo situr maður þar fram yfir mið-
nætti og fer svo niður í tjald aftur og hittir þar
vinina svona áður en maður fer heim.“
Barnabörnin í brekkunni
Eins og áður segir hefur Magnús haldið versl-
unarmannahelgina hátíðlega í Herjólfsdal í yfir
fimmtíu skipti en spurður hvort hann hafi tekið
eftir miklum breytingum á þeim tíma kveður hann
já við.
„Í minni minningu var Þjóðhátíð alltaf fjöl-
skylduhátíð. En svo byggist þetta á því á hvaða
aldri þú ert sjálfur, og eftir hverju maður sækist.
Nú er maður búinn að vera lengi fullorðinn og
mér finnst Þjóðhátíð núna vera að þróast í rétta
átt. Hún er að verða meiri fjölskylduhátíð aftur.
Mér finnst fleira eldra fólk vera að koma með
börnum sínum en láta þau ekki vera eftirlitslaus
eins og var á tímabili,“ segir Magnús og bætir við:
„Núna finnst mér gaman að sitja uppi í brekku
með barnabarni og borða popp meðan við fylgj-
umst með frábærum skemmtiatriðum. Mér hefði
ekki fundist það gaman þegar ég var nítján ára,“
segir hann.
Yfir 50 sinnum á Þjóðhátíð
Eyjafólk undirbýr sig
fyrir komandi hátíð
Ljósmynd/Magnús Bragason
Kökukaffi F.h. Helgi, Magnús, Bragi, Sigríður og Sigurður eftir setningarathöfnina í fyrra.
Úr eldhúsinu Skinkuhorn, flatkökur og pítsu-
snúðar eru meðal þess sem er á boðstólum í ár.