Morgunblaðið - 06.07.2018, Side 1
RÆKTAR FRÓÐLEIKSÞORSTANNALLT Á SAMA STAÐ
ósmokkurinn verndar fallega skó fyrir vonskuveðri 5
Sprotinn LiveLine vill greiða fólki leið
að eigin heilsufarsgögnum og um leið
létta læknum störfin. 15
VIÐSKIPTA
4
Sk
Unnið í samvinnu við
Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu
ríkisins, segir mörg áhugaverð verkefni á borðum
stofnunarinnar um þessar mundir.
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018
Afkoman með besta móti
Afkoma orkufyrirtækja á Íslandi
var með besta móti á síðasta ári,
en samanlagður hagnaður félag-
anna nam 39,2 milljörðum sam-
anborið við 25,8 milljarða árið 2016
og heildarhækkunin því 51,7%.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í nýrri greiningarskýrslu
Kristjáns B. Ólafssonar rekstrar-
hagfræðings, Orkugeirinn á Íslandi
2017. Þau fyrirtæki sem um ræðir
eru Landsvirkjun, HS Orka, Rarik,
Orkubú Vestfjarða, Orkuveita
Reykjavíkur, Norðurorka, Lands-
net og HS Veitur, en öll skiluðu
þau hagnaði. Hækkun var þó mest
hjá framleiðslufyrirtækjum sem
fjárfest hafa í virkjunum og selt
raforku til stóriðju. Þau fyrirtæki
sem hafa að stærstum hluta verið í
hefðbundnum veiturekstri skiluðu
jafnari afkomu.
Fyrirtækin náð fyrri styrk
„Stóru orkufyrirtækin sem hafa
fjárfest í virkjunum og selt til stór-
iðju hafa verið svo háð breytingum
á gengi og álverði. Álverðið styrkt-
ist á síðasta ári og gengið hefur
verið tiltölulega stöðugt. Litlu
fyrirtækin eru með tiltölulega jafna
afkomu milli ára,“ segir Kristján.
Í skýrslunni er orkugeirinn kruf-
inn til mergjar, m.a. með tilliti til
nýtingarhlutfalls virkjana á Íslandi,
raforkuspár, orkuverðs og raforku-
öryggis. Að mati Kristjáns stendur
hin góða afkoma upp úr þegar litið
er yfir helstu atriði í skýrslunni.
Hlutfall eigin fjár hjá félögunum
hækkaði um 2,4% milli ára og var
48,3%. Hæst var hlutfallið hjá HS
Orku, 73,3%, en lægst hjá Lands-
neti, 39,6%.
Arðsemi eigin fjár jókst úr 2,8%
í 8,1% og í skýrslunni segir að arð-
semin sé sú mesta sem verið hafi
undanfarin ár. Arðsemi eigin fjár
var mest hjá HS Orku, 13,7%, og
minnst hjá Orkubúi Vestfjarða, 3%.
Rekstrartekjur jukust um 7,8 millj-
arða milli ára, úr 136,8 milljörðum í
144,6 milljarða. Rekstrarkostnaður
hækkaði um 6,7% og EBITDA um
5%. Afskriftir lækkuðu um 5,6% og
fjármagnsliðir um 81,7%.
„Orkufyrirtækin hafa náð þeim
fjárhagslega styrk sem þau höfðu
fyrir hrun. Eiginfjárhlutfall þeirra
hefur hækkað markvisst, þau hafa
lækkað skuldir og styrkt sína
stöðu. Það er búið að byggja upp
orkukerfið hér á Íslandi í meg-
inatriðum, hitaveituna og allar
þessar virkjanir. Nú fara menn að
koma inn í tímabil þar sem þeir
geta borgað eigendum sínum meiri
arð,“ segir Kristján.
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Síðasta ár gekk vel hjá
orkufyrirtækjum á Íslandi
að því er fram kemur í nýrri
skýrslu Kristjáns B. Ólafs-
sonar.
Morgunblaðið/Golli
Vegna batnandi afkomu munu orkufyrirtækin geta greitt eigendum sínum út
meiri arð að mati Kristjáns B. Ólafssonar rekstrarhagfræðings.
Úrvalsvísitalan
EUR/ISK
1.900
1.800
1.700
1.600
1.500
1.400
5.1.‘18
5.1.‘18
4.7.‘18
4.7.‘18
1.655,67
1.712,65
130
125
120
115
110
124,8
124,65
Icelandair hefur fengið afhentar þrjár af sextán Boeing
737 MAX-flugvélum sem félagið hefur pantað. Vélarnar
eru 40% hljóðlátari og 28% eyðslugrennri en eldri vélar
flugfélagsins. Jens Þórðarson, segir að félagið leiti þeirra
tækifæri sem eru hagkvæmust hverju sinni en að þetta sé
einnig skref til þess að gera sífellt betur í umhverfismálum
og minnka þannig kolefnisfótspor félagins.
Flestar vélar Icelandair eru af gerðinni Boeing 757, en
samkvæmt Jens hafa þær vélar verið bakbeinið í leið-
arkerfi félagsins lengi. Max vélarnar eru hugsaðar til þess
að fljúga samhliða þeim vélum, en kostir Max-vélarinnar
eru öðruvísi en 757-flugvélanna. Max er töluvert eyðslu-
minni, en dregur ekki jafn langt og 757-vélin,
eins og til dæmis á vesturströnd Bandaríkjanna.
Vilja minnka kolefnisfótsporið
Morgunblaðið/Denni
Jens segir að nýju vélarnar séu 40%
hjóðlátari og 28% eyðslugrennri.
Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri rekstr-
arsviðs Icelandair, segir nýjustu Boeing 737
MAX 8-flugvélarnar þeirra hafa farið fram úr
væntingum flugfélagsins.
8
Umfang tollastríðs Trumps
gæti rokið yfir 1.000 milljarða
dala markið og haft áhrif um
alla heimsbyggð-
ina.
Tollastríð gæti
haft veruleg áhrif
10
Það er víðar en á Íslandi sem
risar á smásölumarkaði leita
allra leiða til að auka hag-
kvæmni í rekstri nú
um stundir.
LEX: Smásöluris-
ar þétta raðirnar
11
Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is
Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton
endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir
viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant
Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í.