Morgunblaðið - 06.07.2018, Side 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018SJÁVARÚTVEGUR
Sumarið 2013 hugkvæmdist starfs-
manni Síldarvinnslunnar á Nes-
kaupstað að gefa 14 ára nemendum
í bænum tilbreytingu frá vinnuskól-
anum með fjögurra daga fræðslu
um sjávarútveg og sjósókn. „Þessi
starfsmaður var á sínu lokaári í
sjávarútvegsfræði við Háskólann á
Akureyri og
fljótlega hafði
samstarf á milli
HA, Síld-
arvinnslunnar og
fleiri fyrirtækja
myndast í kring-
um þetta verk-
efni,“ segir
Gunnar Þór
Halldórsson
verkefnastjóri sjávarútvegs-
miðstöðvarinnar hjá Háskólanum á
Akureyri og skólastjóri Sjáv-
arútvegsskólans.
„Verkefnið spurðist út í nærliggj-
andi byggðum og fleiri langaði að
taka þátt. Sumarið 2014 bættust
Eskifjörður og Fáskrúðsfjörður við
en verkefninu var gefið nafnið Sjáv-
arútvegsskóli Fjarðabyggðar og út-
skrifaði 50 nemendur það ár. Áfram
hélt skólinn að vaxa og fékk ári síð-
ar nafnið Sjávarútvegsskóli Austur-
lands eftir að byrjað var að bjóða
upp á kennslu á Seyðisfirði. Þegar
hér var komið sögu var umfangið
orðið of stórt fyrir Síldarvinnsluna
sem leitaði þá til Háskólans á Ak-
ureyri sem tók við umsjóninni og
sumarið 2016 bættust Vopnafjörður
og Höfn í Hornafirði við skólann,“
útskýrir Gunnar. „Áfram stækkaði
skólinn, og höfum við núna bæði
Sjávarútvegsskóla Austurlands og
Sjávarútvegsskóla Norðurlands
starfandi með kennslu á Dalvík,
Akureyri og Húsavík.“
Svo þau snúi heim eftir nám
Hugmyndin að baki Sjáv-
arútvegsskólanum er að gefa ung-
mennunum innsýn í hvernig sjávar-
útvegurinn starfar. „Síldarvinnslan
hleypti verkefninu af stokkunum
sem leið til að fá krakkana aftur
heim þegar þau eru búin í námi og
opna augu þeirra fyrir áhugaverð-
um atvinnutækifærum tengdum
sjávarútvegi. Núna eru fyrstu nem-
endur Sjávarútvegsskólans að ljúka
menntaskóla og jafnvel byrjuð í há-
skóla og verður gaman að sjá hvort
þau hafa meiri áhuga en árgang-
arnir á undan á að mennta sig til
starfa í sjávarútvegi.“
Samstarfsfyrirtæki Sjávarútvegs-
skólans eru, auk Síldarvinnslunnar,
Samherji, HB Grandi, Loðnuvinnsl-
an, Eskja, Gullberg, Kælismiðjan
Frost, Fóðurverksmiðjan Laxá og
GPG Húsavík. „Kennslan á Höfn
með Skinney-Þinganesi datt út eftir
sumarið 2016 vegna þess einfald-
lega að það voru engir krakkar á
þessum aldri í vinnuskólanum því
ferðaþjónustan á svæðinu þurfti á
kröftum þeirra að halda,“ segir
Gunnar en auk styrkja frá sam-
starfsaðilum hefur verkefnið fengið
fjárframlög frá Fjarðabyggð-
arhöfnum, Seyðisfjarðarhöfn,
Vopnafjarðarhöfn, Slippnum, Raf-
tákn, Rafeyri, Dalvíkurbyggð, og
sjávarútvegsráðherra. Framlögin til
verkefnisins eru m.a. notuð til að
greiða laun skólastjóra og fjögurra
starfsmanna, sem allir eru nem-
endur við auðlindadeild HA, til að
greiða fyrir rútur sem ferja börnin
á milli staða, kaupa peysur fyrir
nemendur með merkjum samstarfs-
aðila og halda pítsuveislu við út-
skrift.
Grannskoða fisk og vinnslur
Unglingarnir eru í sjávarútvegs-
skólanum frá þriðjudegi til föstu-
dags á hverjum stað og halda laun-
um sínum frá vinnuskólanum. „Í
samstarfi við sérfræðinga við sjáv-
arútvegsfræðideild HA var búið til
námsefni sem fjallar um ýmsar hlið-
ar sjávarútvegs en auk fyrirlestra
eru nemendurnir látnir leysa verk-
efni á borð við að gera skynmat á
nýveiddum, vikugömlum og tveggja
vikna gömlum fiski. Síðan fara þau í
heimsókn til fyrirtækja á svæðinu
s.s. í netagerðir og fiskvinnslur, sjá
hvernig allt lítur út og hvernig tæk-
in virka.“
Kannski kemur það lesendum á
óvart að heyra að ungmenni í litlum
sjávarþorpum á Norður- og Austur-
landi skuli ekki þekkja sjávarútveg-
inn út og inn en Gunnar segir ung-
lingana ósköp svipaða úti á landi og
á suðvesturhorninu og að flestir
nemendur Sjávarútvegsskólans hafi
haft lítil sem engin kynni af sjáv-
arútvegsfyrirtækjunum í sinni
heimabyggð. „Mjög fá þeirra hafa
fengið tækifæri til að fræðast um
sjávarútveg og sjávarafurðir og
helsta undatekningin þau sem eru
svo heppin að eiga foreldra sem
starfa í greininni. En jafnvel þá er
ekki sjálfgefið að ungmennin hafi
t.d. fengið að skoða fiskvinnslur
enda aðgangur takmarkaður til að
tryggja fæðuöryggi og gæði.“
Að sögn Gunnars hafa nemend-
urnir verið mjög ánægðir með
fræðsluna og kemur mörgum þeirra
á óvart að sjá hvers konar vinnu-
staðir nútímasjávarútvegsfyrirtæki
eru orðin. „Þau hafa ákveðnar fyr-
irframgefnar hugmyndir sem oftar
en ekki reynast eiga fátt skylt við
raunveruleikann. Þau verða undr-
andi þegar það sem mætir þeim er
hátækniumhverfi þar sem sjálfkeyr-
andi lyftarar og róbótar eru að
störfum, allt er hreint og fínt og
varla nokkur lykt af fiski.“
Uppgötva nýja möguleika
Í sumar munu um 70 ungmenni
sækja Sjávarútvegsskólann á Aust-
urlandi og allt að 120 ungmenni á
Norðurlandi. Skólinn er valkvæður
hluti af vinnuskólanum og segir
Gunnar að í hópnum megi bæði
finna ungt fólk sem hefur brennandi
áhuga á sjávarútvegi og aðra sem
eru aðallega fegnir að fá tilbreyt-
ingu frá því að slá tún og hreinsa
beð. „Við gætum þess að hafa fram-
setninguna skemmtilega til að halda
áhuganum gangandi hjá krökk-
unum.“
Sjálfur er Gunnar þess fullviss að
starf Sjávarútvegsskólans muni
beina mörgum nemendanna á nýja
braut í lífinu. „Ég þekki þetta af
eigin raun en eftir menntaskóla
fékk ég vinnu hjá verksmiðju HB
Granda á Vopnafirði og uppgötvaði
þar spennandi atvinnugrein. Fyrr
en varði var ég kominn með bull-
andi áhuga á sjávarútvegi og lá
beinast við að fara í nám í sjáv-
arútvegsfræðum,“ segir hann. „Með
því að fá að skoða þessa vinnustaði
er unga fólkið vonandi að sjá hvers
eðlis störfin þar eru, að tæknin
vinni erfiðustu verkin en störf í boði
sem bjóða upp á góð laun um leið og
þau kalla á rétta menntun og
hæfni.“
Vonir standa til að stækka starfs-
svæði Sjávarútvegsskólans enn
frekar, og þá í vesturátt. „Gerð var
tilraun á Ísafirði í fyrra þar sem
notast var við námsefni frá okkur.
Reynslan hefur samt sýnt okkur að
það er hægara sagt en gert að hefja
kennslu á nýjum stað og stækkunin
háð því að hafa góða samstarfsaðila
sem geta staðið undir kostn-
aðinum.“
Fræða unga fólkið um sjáv-
arútveginn í heimabyggð
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Í dag starfar Sjávarútvegs-
skólinn bæði á Norðurlandi
og Austurlandi. Nærri tvö
hundruð ungmenni munu
taka þátt í sumar og læra
m.a. að meta ástand fisks í
bland við heimsóknir í full-
komnar fiskvinnslustöðvar.
Nemendur á Húsavík rýna í þorsk og reyna að geta sér til um hve langur tími hefur liðið frá því hann var veiddur.
Gunnar Þór
Halldórsson
Í fiskvinnslu á Eskifirði. Smá uppátækjasemi lífgar upp á skóladaginn.
Atvinna
Með sjálfbærni að leiðarljósi
Finnsk innanhússhönnun
02.03–02.09.2018 www.norraenahusid.is
Innblásið af Aalto
Við seljum umhverfisvænan
pappír af öllum gerðum, þar á
meðal ljósritunarpappír. Bjóðum
sérskurð í þær stærðir sem
henta. Þér er velkomið að líta
við og finna þinn rétta pappír.
PAPPÍR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum