Morgunblaðið - 06.07.2018, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018 7ATVINNULÍF
Sólrún Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri
snyrtivöruheildsölunnar Terma, sem er með
umboð fyrir L’ORÉAL LUXE snyrti-
vörumerkið hér á landi, segir að frekar sjald-
gæft sé að nýjar vörur sem L’ORÉAL LUXE
þrói frá grunni komi á markaðinn. Því ríki nú
töluverð spenna fyrir House 99, nýju David
Beckham-snyrtivörulínunni sem er á leiðinni í
búðir hér á landi, og í 18 öðrum löndum. „Dav-
id kom hingað í veiðiferð á dögunum eins og
frægt er orðið, en sama dag fór House 99 lín-
an hans í fyrstu búðina hér á landi. Það var al-
gjör tilviljun. Við höfðum ekki fengið útstill-
ingarefni í hendur, og því hafði
markaðssetningin dregist. En svo kom hann
óvænt og þá tók ég það sem áminningu um að
við yrðum að drífa þetta af stað,“ segir Sólrún
í samtali við ViðskiptaMoggann, en hún fór
sjálf til Lundúna á dögunum til að vera við-
stödd þegar merkinu var ýtt úr vör í sérstöku
útgáfupartíi. Þar hitti hún Beckham sjálfan.
„Við ákváðum skyndilega að drífa okkur út og
það var athyglisverð upplifun að vera þarna.
Partíið var mun stærra en við héldum og alls-
konar frægt fólk mætti. Beckham virtist
skemmta sér mjög vel sjálfur þó að hann væri
með fjóra lífverði við hlið sér allan tímann,“
segir Sólrún.
Þriggja ára ferli
Sólrún segir að ferlið á bakvið markaðs-
setningu nýrrar vöru eins og House 99 sé langt,
eða um þrjú ár. „Fyrir um einu og hálfu ári
fengum við síðan fyrstu prufur frá rannsókn-
arstofunni. Við höfum leyft ýmsum að prófa og
koma með ábendingar, og allir hafa verið mjög
ánægðir. Við lögðum síðan inn pöntun fyrir um
ári og nú er þetta að rúlla af stað.“
Spurð að því hvernig staðan sé almennt á
markaðnum í lúxusmerkjum fyrir herra, segir
Sólrún að mikil bylgja hafi verið í geiranum
fyrir 10-15 árum. „Þá komu mörg þessi lúxus
snyrtivörufyrirtæki með herralínur. Margar
hafa hinsvegar dottið út síðan þá en aðrar hald-
ið velli. Í raun hefur framboðið ekki verið mikið
undanfarin ár. Nú er hinsvegar aftur upp-
sveifla í þessum herravörum og vöruúrvalið að
aukast.“
Terma hefur verið í snyrtivörubrasanum
síðan árið 1983 og býður upp á vörumerki eins
og Lancôme, Giorgio Armani, Helena Rub-
instein, Diesel, Yves Saint Laurent, Cacharel,
Biotherm, Viktor & Rolf og Ralph Lauren. Sól-
rún segir að Terma hafi lengi verið at-
kvæðamikið í herravörum, og Biotherm
Homme lúxusherravörurnar séu leiðandi hér á
landi.
En hvernig kemur það til að David Beckham
fer að vinna með L’ORÉAL LUXE að House
99?
„Biotherm, sem er í eigu L’ORÉAL LUXE,
samdi fyrir um þremur árum við David Beck-
ham um að verða andlit Biotherm Homme. Þar
með fór hann að vinna náið með rannsókn-
arteyminu og velja réttu hráefnin og slíkt.
Hann hefur mjög ákveðnar hugmyndir um
hvernig hann vill hafa hlutina, og niðurstaðan
var að þróa andlitskrem, skeggvörur og hár-
vörur, alls 13 tegundir.“
Vörumerkið House 99, snýst alfarið um
Beckham, að sögn Sólrúnar. Þar er vísað til
ársins 1999 sem var sérstakt í lífi hans. Þá eign-
aðist hann fyrsta barnið sitt Brooklyn, hann
kvæntist Victoriu konu sinni, og síðast en ekki
síst vann hann þrefalt í fótboltanum, þ.e. Meist-
aradeild Evrópu, ensku bikarkeppnina og
ensku deildarkeppnina.
Spurð um herratískuna almennt, hvort
metrómaðurinn og hipsterinn séu enn við lýði,
segist Sólrún telja að karlmenn hafi breyst.
Þeir séu ófeimnir að vera þeir sjálfir. „Áður
fyrr voru karlmenn að stelast í kremið hjá kon-
unum, en nú held ég að þær séu voða fegnar að
fá að eiga allt kremið sitt í friði. Þeir geta núna
fengið sitt eigið krem og finnst eðlilegt að nota
það.“
House 99 blandar rakarastofumenningu við nýsköpun í hári, húð, skeggi og húðflúri. Sólrún Sævarsdóttir, Rakel Ósk Hreinsdóttir og Guðný Indíana Guðmundsdóttir með David Beckham.
Uppsveifla í lúxus-herravörum
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Tilviljun réð því að David Beckham
var staddur hér á landi á sama
tíma og snyrtivöruheildsalan Terma
setti fyrstu House 99 – Beckham-
vörurnar á markað hér á landi.
Stema kerrurCompair loftpressur
Breitt úrval atvinnutækjaBreit úrval atvinnut kja
Stema kerrurCompair loftpressur
Opið 8:30 - 17:00 virka daga - Sími: 562 3833
asafl.is
HJALLAHRAUNI 2, 220 HAFNARFIRÐI