Morgunblaðið - 06.07.2018, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2018SJÓNARHÓLL
KRISTINN MAGNÚSSON
Það fer ekki framhjá neinum að við lifum á tímum þarsem umhverfi fyrirtækja tekur stórum breytingum,sérstaklega hjá þeim sem starfa á neytendamark-
aði. Neytendahegðun breytist með tækniframförum en
einnig með nýrri kynslóð sem hefur aðrar áherslur en þær
sem á undan komu. Fyrirtæki, mörg hver stór og rótgróin,
heltast úr lestinni bæði hérna heima og á alþjóðavísu. En
hvað geta fyrirtæki gert til að lifa af?
Það er ekki nóg að stofna Facebook-síðu og birta yfirlit
yfir afgreiðslutíma og tilboð tvisvar í viku. Lausnin er held-
ur ekki svo einföld að best sé að ráða rándýran markaðs-
fræðing með þrjátíu ára reynslu, bjóða fríar pylsur í vel
völdum útibúum á laugardögum
eða borga auglýsingastofu
nokkrar milljónir fyrir hæfilega
fyndið myndband í miklum
gæðum. Fyrirtæki þurfa að
þróast í heild sinni í takt við
markaðinn.
Þúsaldarkynslóðin saman-
stendur ekki lengur bara af
unglingum. Þessi kynslóð er
komin út á vinnumarkaðinn,
kaupir íbúðir, eignast börn,
kaupir í matinn, tekur bensín,
velur sér sparnað, ferðast til út-
landa og kaupir tryggingar.
Hvernig nærðu til hennar? Þú
einfaldlega ræður hana í vinnu.
Staðan á atvinnumarkaðnum
er athyglisverð, hann saman-
stendur í dag af fjórum kynslóðum; uppgangskynslóðinni
(baby boomers), x-kynslóðinni, þúsaldarkynslóðinni
(millennials) og z-kynslóðinni sem vinnur með skóla. Þrátt
fyrir að vera lítil þjóð eigum við hafsjó af hæfileikaríku og
efnilegu ungu fólki sem er viljugt að láta til sín taka. En
fjöldamörg íslensk fyrirtæki nýta sér ekki þessa auðlind.
Jafnvel þó að markaðurinn búi yfir mjög augljósum dæm-
um um hversu vel sú aðferð virkar, samanber til dæmis
Nova og WOW air. Vestanhafs eru Burberry, Sephora og
Nike lýsandi dæmi um fyrirtæki sem sanka að sér ungu
fólki með gríðarlega góðum árangri. Hér á landi er fram-
bærilegt ungt fólk sem fær ekki tækifæri og á ekki frænda
eða föður á réttum stað á atvinnumarkaðnum, er fast í
gjaldkerastörfum og þjónustuverum eða er horfið á vit betri
launa eða fleiri háskólagráða og sólargeisla.
Fyrirtæki verða að þora að þróast, vera óhrædd við
breytingar og raunverulega hlusta á nýja kynslóð. Hún hef-
ur litla þolinmæði fyrir leiðinlegum hlutum, setur félagslegt
réttlæti ofarlega, er verðmeðvituð en hefur upplifun í fyrsta
sæti. Hún fer til Balí frekar en Kanaríeyja og er komin með
nóg af HÚH auglýsingum. Þúsaldarkynslóðin verslar við
fyrirtæki sem skilja hana. Það sem gekk fyrir tíu eða tutt-
ugu árum, virkar að öllum líkindum ekki enn í dag. Það virð-
ist sem ýmis fyrirtæki séu annað hvort
löt eða hrædd við að breyta út af van-
anum, mögulega því sú hugsun er til
staðar að breytingar gætu rýrt virði
vörumerkisins. En raunveruleikinn er
sá að forn frægð mun á einhverjum
tímapunkti fjara út og þá gæti verið of
seint í rassinn gripið. Til þess að vaxa
og dafna í núverandi markaðs-
umhverfi er nauðsynlegt að gera ný-
sköpun hátt undir höfði, hlusta á nýjar
hugmyndir, fjárfesta í framtíðinni og
leyfa ferskum vindum að blása fyrir-
tækjum byr í seglin með kraftmiklu
ungu fólki. Þetta á nefnilega ekki bara
við um nýsköpunarfyrirtæki. Og þetta
á ekki bara við um flugfélög og fata-
búðir. Tryggingafélög, matvöruversl-
anir, lífeyrissjóðir, veitingastaðir,
byggingavöruverslanir og bankar. Í rauninni öll fyrirtæki
sem vilja viðskiptavini.
Það er mikill styrkur sem felst í því að vera reyndur
stjórnandi sem tilbúinn er að viðurkenna sínar takmarkanir
á einhverjum sviðum, þora að taka mark á fólki sem er
yngra og sér hlutina í nýju ljósi. Stjórnandi sem viðurkennir
að hann veit ekki allt, og áttar sig á að þrjátíu ára reynsla er
ekki alltaf betri en fimm ára reynsla. Ef fyrirtæki festast í
fortíðinni, draga lappirnar og halda að helgarsprengja eða
pylsuveisla bjargi málunum munu þau lenda í kröggum með
að afla nýrra viðskiptavina. Og þeim gömlu fjölgar ekki.
MARKAÐSMÁL
Vigdís Ingibjörg Pálsdóttir
viðskiptafræðingur
Ókeypis pylsur og
upplifunarkynslóðin
”
Fyrirtæki verða að þora
að þróast, vera óhrædd
við breytingar og raun-
verulega hlusta á nýja
kynslóð. Hún hefur litla
þolinmæði fyrir leið-
inlegum hlutum, setur
félagslegt réttlæti of-
arlega, er verðmeðvituð
en hefur upplifun í fyrsta
sæti.
FORRITIÐ
Að halda úti góðri vefsíðu er hæg-
ara sagt en gert. Það er ekki nóg
að síðan líti vel út og komi réttum
upplýsingum til skila skýrt og
greinilega, heldur þarf vefsíðan að
virka vel, vera laus við galla, og
frágangurinn að vera þannig að
falli að tækni helstu leitarvéla.
Hjá SiteGuru (www.siteguru.co)
má gera nk. heilsufarsskoðun á
hvaða vefsíðu sem er. Forrit Site-
Guru rýnir í kóðann með sjálf-
virkum hætti, leitar uppi hlekki
sem ekki virka, skoðar hvort
myndir séu rétt merktar og hvort
gengið hefur verið frá öðrum
mikilvægum smáatriðum eins og
að gefa síðum góða yfirskrift og
lýsingu, eða einfaldlega að tryggja
að vefsíðan hlaðist nægilega hratt.
Með því að hnýta alla lausu end-
ana á að vera hægt að gera góða
vefsíðu enn betri, birtast ofar í
leitarniðurstöðum, minnka hætt-
una á árásum tölvuþrjóta og ná
betur til þeirra sem sækja síðuna
heim.
Prófa má þjónustuna einu sinni
ókeypis en eftir það þarf að kaupa
áskrift sem kostar 9, 29 eða 149
evrur eftir því hversu margar og
stórar vefsíður þarf að vakta.
Lætur SiteGuru vita í gegnum
tölvupóst um leið og forritið finn-
ur eitthvað sem er í ólagi.
ai@mbl.is
Til að vita hvort vef-
síðan er að skila sínu
Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is
FJÖLPÓSTUR
SEM VIRKAR
*könnun Zenter apríl 2016.
61% landsmanna lesa fjölpóst
70% kvenna lesa fjölpóst
58% neytenda taka eftir tilboðum á
vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst*
Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili
MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR
EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR
Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar