Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 2

Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Sterkir í stálinu Skipastál • Lunningajárn • Bakjárn Kælirör • Fíber- og galvanhúðaðar ristar Svört- og ryðfrí rör og fittings Ál • Ryðfrítt stál • PVC plötur POM öxlar • PE plötur Lokar af ýmsum gerðum Opið virka daga kl. 8-17 Skútuvogi 4, Rvk Rauðhellu 2, Hafnarfirði Sími 568 6844 | ga@ga.is | ga.is Morgunblaðið/RAX Streymi Óvíst er að Eldvatnsbrú standi af sér hlaupið í annað sinn. Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Hlaupið í Skaftá fer nú minnkandi en vatnsmagnið hefur verið ívið meira en áætlað var. Að sögn Huldu Rósar Helgadóttur, náttúruvársér- fræðings Veðurstofunnar, náði hlaupið hámarki í Eldvatni við Ása á sunnudagsmorgun og hefur minnkað hægt síðan. „Það tekur langan tíma fyrir allt vatnið að koma alla leið niður því upptökin eru langt frá byggð og vegum,“ seg- ir Hulda Rós. Þá hófst einnig hlaup í vestari katli Skaftárjökuls nokkuð óvænt og er áætlað að hann hafi tæmt sig í gær. „Vatn í hlaupinu á uppruna sinn úr bæði eystri og vestari Skaftárkatli og teygir það svolítið á hlaupinu. Oft hlaupa katl- arnir í kjölfar hvor annars en það er óvanalegt að þeir fari á sama tíma,“ segir Hulda. Rennsli hlaupsins var 720 rúmmetrar á sekúndu í gær og mældist mest í 1.500 rúmmetrum á sekúndu við Sveinstind aðfaranótt laugardags. Eftir að rennsli náði hámarki í Eldvatni flæddi yfir þjóðveginn vestan við Kirkjubæjarklaustur. Ákvað Vegagerðin í kjölfarið að loka veginum um Eldhraun á um 500 metra kafla og hafa hann lok- aðan tímabundið. Umferð var þá beint um Meðallandsveg og var þar mikil umferð í gær að sögn Ágústs Freys Bjartmarssonar, yfirverk- stjóra Vegagerðarinnar í Vík. Í kjölfarið hóf Vegagerðin að- gerðir í tilraun til að hleypa vatninu frá og voru vélar og nokkrir starfs- menn í verkinu bróðurpart dags. Þrátt fyrir vatnselginn rofnaði veg- urinn ekki og átti Ágúst ekki von á því að rof yrði á þessum stað. „Veg- öxlin er farin á kafla en það er hægt að laga það með auðveldum hætti. Eins er klæðningin óskemmd, um leið og þetta lagast keyra menn á klæðningunni eins og ekkert hafi ískorist. Svo framarlega sem rennslið minnkar.“ Í stóra Skaftárhlaupinu 2015 laskaðist Eldvatnsbrú við Ytri-Ása í Skaftafellssýslu með umtalsverðum hætti. Sem stendur er hún eina brú- in sem gæti legið undir skemmdum vegna hlaupsins. Nokkurra metra millilag í jarðvegi undir brúnni hreinsaðist svo til í síðasta hlaupi sem olli því að brúin seig og var á barmi hruns. Ágúst Freyr segir Vegagerðina fylgjast náið með brúnni. „Við erum að vona að hún komi tiltölulega ósködduð út úr þessu en ég þori ekki að segja til um það. Við bíðum og sjáum hvort vatnið sjatni eða ekki.“ Víða má finna brennisteinslykt sem leggur frá Skaftársvæðinu. Lögreglan greindi frá því á sunnu- dag að henni hefðu borist tilkynn- ingar þess efnis hvaðanæva, m.a. úr Húnaþingi, Svartár- og Langadal og víða af Suðurlandi. Í stóra jök- ulhlaupinu árið 2015 var tilkynnt um lykt í Noregi sem hafði borist yfir hafið. Að sögn Huldu er viðbúið að lyktin geti borist víða. Hún segir jafnframt erfitt að segja til um hvort fnykurinn geti borist til ann- arra landa í þessu tilviki en getur þó ekki útilokað það. Rennsli Skaftárhlaups meira en áætlað var  Búist við því að mannvirki Vegagerðarinnar hlaupið standi af sér  Tveir katlar Skaftárjökuls hlupu samtímis  Þjóðvegurinn lokaður tímabundið í gær  Brennisteinslykt hefur fundist víða um land Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Tvö mál eru til rannsóknar hjá lögregl- unni í Vestmannaeyjum þar sem grun- ur er um kynferðisbrot eftir aðfaranótt mánudagsins. Auk þess leitaði kona að- stoðar lögreglu vegna kynferðisbrots sem hún varð fyrir árið 2017 á höfuð- borgarsvæðinu. Konan hyggst leggja fram kæru hjá lögreglunni í Reykjavík. Alls komu upp 35 fíkniefnamál á Þjóðhátíð í ár sem eru færri mál en á síðustu árum að sögn lögreglu. Grunur er um sölu í tveimur þessara mála. Einn þjóðhátíðargestur gisti í fanga- geymslu aðfaranótt mánudags vegna ölvunar og óspekta í Herjólfsdal. Fjórar líkamsárásir voru tilkynntar á sunnudeginum og um nóttina. Alvar- legasta árásin var tilkynnt lögreglu um kvöldmatarleytið á sunnudag. Sú til- kynning barst samhliða því að maður var fluttur með sjúkraflugi á Landspít- ala vegna innvortis blæðinga. Fórnar- lambið vildi ekki segja til árásarmanns- ins en eftirgrennslan lögreglu leiddi til þess að hann fannst og var hann færð- ur til skýrslutöku þar sem hann viður- kenndi sök. Í öðru máli veittist maður að kærustu sinni með höggum og spörkum. Hans var leitað en fannst ekki. Hinar líkamsárásirnar voru minniháttar og eru til rannsóknar. Sextán umferðarlagabrot voru kærð í Eyjum um helgina. Sex ökumenn voru kærðir fyrir ölvun við akstur og akstur undir áhrifum ávana- og fíkni- efna. Einn þeirra var ölvaður á hesti í Vestmannaeyjabæ. Önnur mál voru vegna aksturs án bílbelta, ökumaður að tala í farsíma án handfrjáls búnaðar, ökutækjum lagt ólöglega og fleiri far- þegar fluttir en ökutæki er skráð fyrir. Í fréttatilkynningu lögreglunnar kemur fram að á samráðsfundi með viðbragðsaðilum á Þjóðhátíð 2018 hafi verið talið að gestir hafi verið 14 til 15 þúsund talsins. Að sögn lögreglu var það samdóma álit viðbragðsaðila að þrátt fyrir nokkurt rok á síðasta degi hátíðarhaldanna hafi gengið vel að að- stoða gesti og almennt hafi skipulag gengið vel. Tvö kynferðisbrot til rann- sóknar í Vestmannaeyjum  Alls 35 fíkniefnamál á Þjóðhátíð  Einn ölvaður á hesti Ferðaveður er ekki með besta móti þessa dagana en Veðurstofan gaf út gular viðvaranir vegna veðurs í gær og í dag. Í gær var verulega vindasamt á Snæfellsnesi og mæld- ist vindur 10-15 metrar á sekúndu víða á Vesturlandi auk þess að hvið- ur mældust 25 metrar sumstaðar undir fjöllum. Þá er búist við stormi austan- lands í dag, með mikilli rigningu á Austfjörðum og allt að Langanesi. Er áætlað að vindur verði allt upp undir 20 metrar á sekúndu. Einnig er búist við stormi undir Vatnajökli og austur af Öræfum þar sem verð- ur mjög vindasamt, að sögn Birtu Lífar Kristinsdóttur, veðurfræð- ings á Veðurstofunni. Hún telur ólíklegt að veðrið hafi áhrif á fram- gang Skaftárhlaupsins þótt það hjálpi vafalaust ekki til í umferð- inni á svæðinu. ninag@mbl.is Stormur austan- lands í dag Morgunblaðið/Eggert Vætutíð Búist er við mikilli rign- ingu og roki austanlands í dag. Efnt var til messu í Saurbæjar- kirkju á Rauðasandi um versl- unarmannahelgina. Einungis tvær messur eru haldnar á ári í kirkj- unni, á jólunum og föstudaginn langa. Kristján Arason var skip- aður sóknarprestur í Patreksfjarð- arprestakalli í júní en þetta er í fyrsta skipti sem hann messar í kirkjunni. „Það var engin messa föstudaginn langa þetta árið. Þar sem ég var nýtekinn við langaði mig að messa á þessum stað því það er svo fallegt þarna. Oft er erfitt að komast á Rauðasand á veturna og þess vegna ákváðum við að láta á það reyna að halda sumarmessu um verslunarmanna- helgina.“ Enginn organisti var í messunni og var hún því með öðru sniði en vanalega og sungu allir messugestir með sínu nefi. Messan var mjög vel sótt og komu gestir frá tjaldsvæðinu í nágrenninu, frá kaffihúsinu og víðar að. „Það var 15 stiga hiti og glampandi sól. Flestallir fóru svo út á sandinn eft- ir messu. Ég held að þetta verði endurtekið,“ segir hann. Kristján segist kunna vel við sig í nýju embætti og segir að vel hafi verið tekið á móti honum og fjölskyldu hans á Patreksfirði. Tilraun gefur tilefni til þess að endurtaka leikinn í Saurbæjarkirkju að ári Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson Sumar- messa á Rauðasandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.