Morgunblaðið - 07.08.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 07.08.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku . 595 1000 FLUGSÆTI Frá kr. 14.950 Ath .a ðv er ð et rir va ra VALDAR BROTTFARIR Í ÁGÚST & SEPTEMBER ÖNNUR LEIÐ MEÐ TÖSKU OG FLUGVALLARSKÖTTUM ALICANTE Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Neytendastofa leggur til við dóms- málaráðuneytið í umsögn sinni um drög að lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, að skráningarskylda nái ekki einungis til þeirra sem selja eðalmála og -steina heldur einnig þeirra sem kaupa slíkar vörur. Í núverandi drögum er ein- ungis gert ráð fyrir að þeir sem selja eðalmálma þurfi að vera skráningarskyldir en Neytenda- stofa leggur til að kaupendur og þeir sem hafa milligöngu um slík viðskipti verði einnig skráningar- skyldir. Að sögn Neytendastofu hafa við- skipti með eðalmálma með milli- göngu annarra aðila aukist á undanförnum árum. „Til að mynda hafa komið hingað til lands erlendir aðilar í innkaupaferðir gagngert til að kaupa eðalmálma og eðalsteina af íslenskum neytendum og auglýst í fjölmiðlum komu sína og tímabil heimsóknarinnar. Vandséð er að ákvæðið nái til slíkrar starfsemi,“ segir í umsögn Neytendastofu sem er eini aðilinn sem skilað hefur um- sögn um drögin en umsagnarfrest- ur rennur út á miðvikudaginn. Frumvarpið er samið af starfs- hópi sem dómsmálaráðherra skip- aði til innleiðingar á fjórðu pen- ingaþvættistilskipun Evrópu- sambandsins. Fjórða peninga- þvættistilskipunin tók gildi í Evrópusambandinu 27. júlí 2017 og verður tekin upp í EES-samning- inn í október 2018. „Meginefni lag- anna snýr að skyldu tilkynninga- skyldra aðila til að framkvæma áreiðanleikakönnun, haga innra skipulagi með þeim hætti að þeim sé kleift að greina grunsamlegar færslur,“ segir á vef dómsmála- ráðuneytisins. Telja bíla falla utan laganna Neytendastofa dregur einnig gagnályktun af frumvarpsdrögun- um þess efnis að aðilar sem hafa milligöngu um sölu á notuðum og nýjum bifreiðum séu undanskildir banni við nafnlausum viðskiptum vegna þess að þeir eru ekki á tæm- andi lista frumvarpsdraganna. „Við lásum það þannig. Það er vísað þarna í stafliði í ákvæðinu um nafnleynd og þá er þessu sleppt og þá heitir það nú í lögfræði gagn- ályktun. Þá mætti ætla að það væri þá heimilt. Hvort það er hugsunin þekki ég ekki. Við erum bara að benda á það,“ segir Tryggvi Ax- elsson, forstjóri Neytendastofu. „Þetta snýst væntanlega um að þú vitir hver kaupir. Bílar eru allavega skráningarskyldir í sjálfu sér, kaup og afsal, en það leysir þetta ekki al- farið en það getur vel verið að þeir sem sömdu þetta hafi hugsað að þetta væri þannig en við viljum allavega að það sé hugsað við frum- varpsgerðina hvernig við viljum hafa ramman um öll þessi við- skipti,“ segir Tryggvi. Vilja að kaupendur gulls séu skráðir  Neytendastofa eini umsagnaraðilinn um drög að lögum um peningaþvætti og fjármögnun hryðju- verka  Seljendur gulls skráningarskyldir en ekki kaupendur  Stofnunin vill að lögin taki til kaupenda Morgunblaðið/Árni Sæberg Gull Neytendastofa segir að viðskipti með gull hafi aukist síðustu ár. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra var heiðursgestur á tveimur hátíðum í Vesturheimi um helgina og í báðum tilvikum var fjölskyldan í fyrirrúmi. Um fimmtíu þúsund manns sóttu Íslendingadagshátíðina á Gimli í Manitoba í Kanada. Þar voru ís- lenskar konur í aðalhlutverkum. Katrín flutti minni Kanada, Heather Alda Ireland, fyrrverandi kjörræðis- maður í Vancouver, flutti minni Ís- lands og Wanda Anderson var fjall- kona, en Heather og Wanda eru af íslenskum ættum. Boðið var upp á viðamikla dagskrá á Gimli og víða komu Vestur-Íslend- ingar við sögu. Katrín hafði í nógu að snúast, skoðaði meðal annars sér- stakt víkingaþorp, nýjan íslenskan víkingagarð umhverfis styttuna af íslenska víkingnum, sem Ásgeir Ás- geirsson, þáverandi forseti Íslands, afhjúpaði 1967, og listasýningu. Í Ár- borg afhjúpaði hún upplýsingaskilti um Sigtrygg Jónasson, sem kallaður hefur verið faðir Nýja Íslands. „Þetta gekk allt mjög vel og við erum sérstaklega ánægð með að hafa feng- ið Katrínu til okkar,“ sagði Grant Stefanson, formaður Íslendinga- dagsnefndar. Ný hlið forsætisráðherra Curtis Olafson, formaður Íslend- ingafélagsins í Mountain, tók í sama streng. „Þetta verður bara betra og betra,“ sagði hann eftir ræðu for- sætisráðherra, en Katrín fékk ekki aðeins innsýn í heim íbúa af íslensk- um ættum heldur fékk hún einnig sýnikennslu í vinnu kúreka og lærði nokkrar aðferðir þeirra við að fanga gripina. Auk þess var farið með hana um slóðir Káins og Stephans G. Stephanssonar. Fjölskyldan í fyrirrúmi  Katrín Jakobsdóttir heiðursgestur Morgunblaðið/Steinþór Leiðtogar Grant Stefánsson og Katrín Jakobsdóttir við minningar- steininn á Víðinesi við Winnipeg-vatn um komu Íslendinga til Nýja Íslands. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Þetta var virkilega gaman og skemmtileg upplifun,“ segir Ásgeir Sigurvinsson, fyrrverandi atvinnu- maður í knattspyrnu, um leik gam- alla stjörnuleikmanna Stuttgart sem fram fór í fyrradag. Helstu goðsagnir félagsins frá gamalli tíð léku þar hver gegn annarri áður en afmælisleik- urinn sjálfur, núverandi leikmenn Stuttgart gegn sigurvegurum Evr- ópudeildarinnar Atletico Madrid, fór fram. Uppselt var á leikinn og segir Ás- geir að góð stemning hafi verið á vell- inum. Þá hafi ekki skemmt fyrir að hans lið vann leikinn. „Þetta gekk mjög vel og það má í raun segja að maður hafi fengið gamla „fílinginn“ aftur enda voru um 60.000 manns á vellinum. Þetta voru allt gamlir leik- menn Stuttgart sem voru að mætast þarna. Annars vegar þýskir lands- liðsmenn og hins vegar útlendingar sem höfðu gert garðinn frægan með liðinu, þar á meðal ég. Það var nátt- úrlega ekki slæmt að takast að sigra síðan 3-2,“ segir Ásgeir og bætir við að fjölmargir góðir knattspyrnu- menn hafi tekið þátt í leiknum. Ber þar hæst leikmenn eins og Carlos Dunga og Jürgen Klinsmann. „Það voru nokkrir mjög góðir leikmenn þarna. Þetta voru leikmenn sem hafa unnið heimsmeistaratitla og aðra titla á sínum ferli. Þarna var leik- maður eins og Carlos Dunga sem hefur bæði verið fyrirliði og þjálfari Brasilíu,“ segir Ásgeir. Að leik loknum var haldin afmælis- veisla á vellinum en að sögn Ásgeirs var hún öll hin glæsilegasta. Þá hafi verið afar ánægjulegt að endurnýja kynni við samherja frá gamalli tíð. Starfar sem sendiherra Stuttgart Á ferli sínum með Stuttgart tókst Ásgeiri að verða Þýskalandsmeistari ásamt því að vera kosinn knatt- spyrnumaður ársins í Þýskalandi ár- ið 1984. Ásgeir er í miklum metum hjá Stuttgart, en hann hefur undan- farið ár starfað sem sendiherra fé- lagsins. Spurður um í hverju starfið felist segir hann það vera margbreytilegt. „Ég mun halda áfram að starfa sem sendiherra fyrir félagið næsta árið hið minnsta. Í því felst að maður er fenginn til að koma á leiki og hitta fyrirtæki sem eru með fólk á leikn- um, en ég fer á svona 5-6 leiki á ári. Þess utan erum við að skoða leik- menn hér og þar. Ef ég get komið Ís- lendingi að þá er það frábært enda hefur það sýnt sig að það er ekki verra að vera með Íslending ef vinna á þýska titilinn,“ segir Ásgeir en auk hans hefur Eyjólfur Sverrisson orðið Þýskalandsmeistari með liðinu, það gerði hann árið 1992. Ljósmynd/Pressefoto Baumann Ásgeir Úr leiknum í gær þar sem gamlar kempur Stuttgart spiluðu gegn hver annarri á afmælishátíð félagsins. Tók þátt í stjörnuleik á afmælishátíð Stuttgart  Um 60.000 manns fylgdust með Ásgeiri og félögum Gríðarlegur hiti var á vellinum í Stuttgart í gær þegar leikur gömlu kempanna fór fram. Að sögn Ásgeirs var hitinn í kring- um 35 gráður og gerði það leik- mönnum erfitt um vik. Hann segir þó eigið form hafa komið sér á óvart. „Það var alveg sjóð- andi hiti þarna eða í kringum 35 gráður. Mér leið hins vegar al- veg ágætlega. Miðað við 63 ára gamlan mann sem ekki hefur spilað fótbolta í 10 ár þá gekk þetta bara nokkuð vel,“ segir Ásgeir og bætir við að leikurinn hafi þó verið fremur rólegur. Spilað hafi verið í alls fjörutíu mínútur eða tuttugu mínútur í hvorum hálfleik. „Það er erfitt að segja að þetta hafi verið hörkuleikur. Þetta var auðvitað bara leikur gamalla leikmanna frá fyrri tíð. Þetta var hins vegar partur af hátíðinni í kringum af- mælið og það var virkilega gam- an að fá að taka þátt í því,“ segir Ásgeir. Leikformið kom á óvart MIKILL HITI Á VELLINUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.