Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Alþjóðaskólinn á Íslandi mun hefja undirbúning að byggingu nýs skólahúsnæðis í Garðabæ fái skól- inn úthlutað lóð á Þórsmerkursvæð- inu svokallaða. Áætlað er að byggja í fyrstu 1.000-1.200 fer- metra skóla- húsnæði en gert er ráð fyrir mögu- legri stækkun um allt að 1.000 fermetra og mun skólinn fjármagna bygginguna sjálfur. Stöðugur vöxtur „Við komum þarna inn í Garðabæ 2006 með alveg glænýja hugmynd í höndunum – að búa til alþjóðlegan grunnskóla á Íslandi. Síðan hefur skól- inn verið í stöðugum vexti,“ segir Hanna Hilmarsdóttir, skólastjóri Al- þjóðaskólans á Íslandi. Frá árinu 2006 hefur skólinn leigt rými í Sjálandsskóla í Garðabæ og seg- ir Hanna Alþjóðaskólann hafa átt góða tíma þar. „Við erum búin að byggja upp al- þjóðlegan grunnskóla á Íslandi og hann er núna kominn með tvöfalda al- þjóðlega vottun. Núna er bara kominn tími til að hann fari í sitt eigið hús- næði.“ „Lóðin er bara hinum megin við göt- una þannig að það er hægt að halda þessum góðu tengslum við Sjálands- skóla en vera samt í sérrými,“ segir Hanna. Fimm nemendur í fyrstu Alþjóðaskólinn á Íslandi var stofnaður 2004 og var í fyrstu með aðstöðu í Víkurskóla í Reykjavík. Fyrsta starfsárið voru nemendur fimm en eru í dag um hundrað tals- ins. Á vef skólans kemur fram að í framtíðarsýn skólans sé gert ráð fyrir að nemendur verði á milli 120 og 140 og segir Hanna að það sé kominn biðlisti í skólann. Í tilfelli 40% nemenda er annað foreldrið íslenskt en um fimmtungur nemenda á foreldra sem báðir eru ís- lenskir. Þá eru um 18% nemenda innflytjendur og um 22% eiga for- eldra sem búa tímabundið á Íslandi. „Við þurfum meira rými,“ segir hún og bendir á að öll undirbúnings- vinna sé gerð með góðu samtali við stjórnendur Garðabæjar. „Það eru nýir og spennandi tímar framundan,“ segir Hanna. Alþjóðaskólinn stefnir á nýtt skólahúsnæði  Alþjóðaskólinn áætlar byggingu á nýju húsnæði  12 ár í Sjálandsskóla  Fyrsti áfangi 1.000-1.200 fermetrar að stærð Morgunblaðið/Styrmir Kári Forvitni Nemendur munu að líkindum ekki þurfa að ganga nema yfir göt- una í nýja skólann. Alþjóðaskólinn hefur í 12 ár verið í Sjálandsskóla. Hanna Hilmarsdóttir Umferð frá Landeyjahöfn gekk vel í gær. Ölvunarakstur var í minna lagi en oft áður, að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlögregluþjóns á Suðurlandi. Fimm ökumenn voru stöðvaðir á mánudagsmorgun. „Að vísu hafa nokkrir farið af stað án þess að hafa fengið að blása og voru undir áhrifum. En almennt var góð- ur bragur á fólki,“ segir Sveinn. Aðfaranótt mánudags var anna- söm hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu og var nokkuð um ölvunar- akstur. Níu ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvunar- eða fíkni- efnaakstur. Þá voru tveir tvítugir ofurölvi menn handteknir í Banka- stræti. Voru þeir látnir sofa úr sér í fangageymslu. Um helgina var erilsamt hjá Landhelgisgæslunni líkt og venja er, að sögn upplýsingafulltrúa. Maður var fluttur með sjúkraflugi á Land- spítalann í Fossvogi í gær. Land- helgisgæslunni barst tilkynning um sjúklinginn austan úr sveitum um hálfþrjú í gær. Samkvæmt upplýs- ingum frá Landhelgisgæslunni var ekki um slys að ræða heldur bráð veikindi. Umferð gekk vel frá Landeyjahöfn  Fimm ökumenn stöðvaðir á Suðurlandsvegi Nína Guðrún Geirsdóttir ninag@mbl.is Bræðurnir Sigurður H. Magnússon og Guðmundur Magnússon hafa háð baráttu gegn skógarkerfli um tölu- vert skeið. Sigurður er plöntuvist- fræðingur og vann um árabil hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Frá 2011 hafa þeir bræður reynt að halda aftur af landnámi skógarker- filsins í sveit sinni. „Við leggj- um okkar af mörkum til að koma í veg fyrir að kerfillinn taki yfir í okkar heimasveit,“ seg- ir Sigurður en þeir bræður eru báðir búsettir í Hrunamanna- hreppi. Hann segir að útbreiðsla kerfilsins sé það mikil að þörf sé á aðgerðum. „Ef menn vilja á annað borð koma í veg fyrir að hann breiðist út þá þýðir ekki að sitja heima með hendur í vösum.“ Nauðsynlegt að stinga upp Mótvægisaðgerðir bræðranna gegn kerflinum felast helst í því að ganga meðfram vegum í sveitinni og slíta hann eða stinga upp, auk þess að slá þar sem mest er af honum. Að sögn Sigurðar hefur þeim bræðrum gengið ágætlega að koma í veg fyrir dreifingu í sveitinni en aðalatriðið er að koma í veg fyrir að hann sái sér. „Þó maður slái kerfilinn er maður ekki endilega að ná að drepa plönt- una heldur þarf að stinga hana upp. Þetta er sniðug planta, hún fjölgar sér bæði með fræjum og einnig með svokölluðum rótarskotum. Eftir að kerfillinn blómstrar drepst hann og þá taka þessi kerfilsbörn eða rót- arskot við og þar verða til tvær nýj- ar plöntur.“ Að sögn Sigurðar er best að stinga plöntuna upp þegar hún er í blóma og taka þá rótarskot- in einnig upp. Mikilvægt að hreinsa við veg- ina Að sögn Sigurðar nær kerfillinn helst að nema land utan með vegum og berst milli staða með umferð. „Þetta er því erfið barátta en kerfill- inn berst stöðugt inn á svæðið, sennilega mest með snjóruðnings- tækjum.“ Sigurður telur af þeim sökum að Vegagerðin ætti að fara í aukið átak gegn kerflinum. „Vega- gerðin ætti náttúrlega að geta séð um þetta en hún hefur t.d. verið að slá vegkanta. Það eina er að hún slær yfirleitt síðsumars þegar skóg- arkerfillinn er búinn að sá sér. Þá er í raun verið að dreifa þessum plöntum í stórum stíl,“ segir Sig- urður og bætir við að með því að slá fyrr næðist mun betri árangur. Dreifing kerfils mjög lúmsk Kerfillinn og lúpínan eru oft nefnd í sömu andrá enda báðar teg- undir flokkaðar sem ágengar plöntur. Sigurður segir skógarker- fillinn hafa dreifst gífurlega mikið í kjölfar dreifingar lúpínunnar en hann vex víða þar sem lúpínan hefur þegar numið land. „Þegar hann hef- ur sáð sér er ekki auðvelt að losna við hann. Ég er ekki að segja að það sé heimsendir að skógarkerfill breiðist um landið, en það mun örugglega gera mönnum erfitt fyrir í ræktun. Hann er einráður og ryður öðrum tegundum í burtu, auk þess að vera hávaxinn,“ segir Sigurður og nefnir sem dæmi að í Hrísey hef- ur hann vaðið uppi á kostnað ann- arra plantna. Breyttar aðstæður í vistkerfum Þá sé dreifing skógarkerfilsins mjög lúmsk, með þeim afleiðingum að erfitt er að átta sig á umfangi dreifingarinnar. „Þetta á í raun við allar plöntutegundir og dýr líka, að í fyrstu ber lítið á þessum tegundum og svo verður sprenging. Kerfillinn mun allt í einu breiðast út um allt.“ Sigurður segir breyttar áherslur í náttúrulífi Íslands gera kerflinum auðveldara fyrir að fjölga sér á land- inu. „Kerfillinn þolir ekki vel sauð- fjárbeit og nú er sauðfé að fækka svo hann nær að dreifast betur við vegina. Eins er með áreyrarnar, þar sem lúpínan hefur t.d. verið að nema land og lítið er af sauðfé, þar á skóg- arkerfillinn örugglega eftir að aukast mikið.“ Skógarkerfillinn hef- ur sótt í sig veðrið víða í Evrópu þar sem hann vex náttúrulegur en þar hefur að sögn Sigurðar aukist mjög útbreiðsla hans á undanförnum ára- tugum. Má rekja það m.a. til þess að notkun á áburði hefur aukist en skógarkerfillinn þarf mikla næringu til að lifa af. Sigurður hvetur aðra til að fylgja í sín fótspor. „Ef menn bíða of lengi þá náttúrlega verður of seint að gera eitthvað þegar hann verður kominn út um allt.“ Sprenging í útbreiðslu skógarkerfils  Nauðsynlegt er að stöðva dreifingu skógarkerfils, segir plöntuvistfræðingur  Mjög erfitt að losna við hann  Landnám lúpínu greiðir veginn fyrir kerfilinn Ágengar tegundir Innflutningur Fundur greining Víðtæk vitneskja Útrýming einföld Útrýming möguleg Útrýming erfið Tími St of ns tæ rð Heimild: Náttúrufræðistofnun Íslands Útrýming útilokuð – staðbundin stjórn möguleg – dýrt Sigurður H. Magnússon Katrín Tanja Davíðsdóttir endaði í þriðja sæti á heimsleikunum í cross- fit, sem lauk í Madison í Wisconsin í Bandaríkjunum í fyrrakvöld. Björg- vin Karl Guðmundsson og Annie Mist Þórisdóttir lentu í fimmta sæti í sínum flokkum. Keppni leikanna lauk á „aeneas“-æfingalotu þar sem keppendur þurftu að nota tréhólka til að klifra upp holóttan vegg. Að því loknu þurftu þeir að ljúka 40 hnébeygjum og axlapressum ásamt því að bera lyftingagrind tíu metra með þremur stoppum þar sem grindin er þyngd. Efst í heildarstigagjöf í kvenna- flokki var Tia-Clair Toomey með 1.154 stig. Laura Horvath í öðru sæti með 1.090 stig og Katrín Tanja með 1.020 stig. Annie Mist lauk keppni með 866 stig. Efstur í heildarstigagjöf í karla- flokki var Mathew Fraser með 1.162 stig, Patrick Vellner var í öðru sæti með 944 stig. Björgvin Karl lauk keppni á leikunum með 834 stig. aronthordur@mbl.is Ljósmynd/CrossFit Inc. Endaði í þriðja sæti  Góður árangur íslenskra keppenda Katrín Tanja Hún endaði í þriðja sæti á crossfit-leikunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.