Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
A
nna Silvía Þorvarðar-
dóttir nam hárgreiðslu,
naglagerð og snyrti-
fræði en þegar til
lengdar lét fann hún
sig þó í engu af þessu. Áhuginn lá
annars staðar, þó að hún vissi ekki
nákvæmlega hvar. „Ég var at-
vinnulaus um tíma og fór á nám-
skeið hjá Vinnumálastofunun þar
sem okkur voru kynntir ýmsir
möguleikar á vinnumarkaði. Meðal
annars var okkur sagt að meira-
prófsnámskeið í ökuskóla væri
styrkhæft. Þá var eins og öll ljós
kviknuðu. Ég dreif mig auðvitað á
námskeið og var fljótlega komin í
draumastarfið,“ segir Anna Silvía,
sem er flutningabílstjóri hjá Eim-
skip. Hún er önnur tveggja kvenna
í fjölmennum hópi bílstjóra fyrir-
tækisins og segist ekki gefa körl-
unum neitt eftir.
Stýrið til vinstri og
vagninn fer til hægri
Bílstjórinn bakkaði Scania-
bílnum lipurlega að lúgudyrum á
stóru vöruhúsi og fipaðist hvergi.
Ökumaðurinn var greinilega þræl-
vanur. „Það er auðvitað gjörólíkt
að keyra Yaris eða stóran trukk.
En þetta lærist með tímanum og
smám saman kemur tilfinning fyrir
því hvernig hlutirnir virka; svo að
ef þú snýrð stýrinu til vinstri fer
dráttarvagninn til hægri. Aðalmálið
er að gefa sér tíma og hafa þolin-
mæði,“ segir Anna Silvía. Hún lauk
meiraprófinu árið 2013 og kom til
starfa hjá Eimskip árið eftir.
Fyrsta kastið var Anna Silvía
meðal annars í ýmsum ferðum út á
land en hún fann fljótt að innan-
bæjarakstur og dagvinnan hentaði
sér best. Var þá sett á Scania
R480, tólf gíra trukk á átta hjólum
og með 480 hestafla vél. Dráttar-
vagn er aftan í bílnum og á honum
40 feta gámar, sem notaðir eru til
flutninga til og frá afgreiðslustöð
Eimskips í Sundhöfn og stóru
verslunar- og framleiðslufyrir-
tækjunum á höfuðborgarsvæðinu
og þar í kring.
Stærri bílar og meiri áhugi
„Ég er allan daginn á rúnt-
inum. Í morgun var ég í Grafar-
vogi, fór svo austur í Þorlákshöfn
og núna er ég á Grjóthálsi. Fjöl-
breytnin er mikil og starfinu fylgja
samskipti við marga,“ segir Anna
Silvía, sem telur að flutningabíla-
akstur sé starf sem hafi átt fyrir
sér að liggja.
„Ég hef alltaf haft áhuga á bíl-
um og þeim mun meiri eftir því
sem stærri eru. Svavar Þór Guð-
jónsson, fósturfaðir minn, hefur
lengi keyrt flutningabíl og verið í
ferðum milli Reykjavíkur og Nes-
kaupstaðar, þar sem ég er uppalin.
Sem stelpu fannst mér talsvert til
þess koma að hann væri flutn-
ingabílstjóri og þótti spennandi að
heyra hann segja sögur úr starfinu.
Það munaði líka mjög um hvatn-
ingu og stuðning hans og annarra
þegar ég ákvað að fara í meira-
prófið og seinna sækja um vinnu.
Svavar sagði mér að konur hefðu
alveg jafn mikið í þetta starf að
gera og karlarnir. Mikilvægt væri
að vera jafn handsterk og karl-
arnir, þegar þyrfti að loka þungum
hliðarhurðum á bílunum eða færa
til varning.“
Hlakka til sérhvers
dags í starfi
Þrátt fyrir að konur í flutn-
ingaakstri séu fáar segist Anna
Silvía aldrei hafa fundið fyrir for-
dómum í sinn garð. Raunar þvert á
móti.
„Krakkar eru yfirleitt opnir
fyrir breytingum og skilja kannski
ekki hugmyndir þeirra eldri um
jafnrétti kynjanna. Nökkva Þór
syni mínum finnst mikið sport að
fara með mér á rúntinn og segir
með stolti öllum sem heyra vilja að
mamma sín sé trukkabílstjóri.
Strákarnir hjá Eimskip sem ég
vinn með eru afar hjálplegir og
hvetjandi. Þegar ég var ólétt að
stelpunni minni, sem núna er að
verða tveggja ára, leiðbeindu þeir
mér með rétt handtök og vinnu-
brögð, þannig að ég gat unnið þar
til ég var alveg komin á steypirinn.
Eftir fæðingarorlof í eitt ár byrjaði
ég svo aftur að vinna og fannst frá-
bært. Ég hlakka til hvers einasta
dags í þessu starfi,“ segir Anna
Silvía Þorvarðardóttir flutningabíl-
stjóri að síðustu.
Snyrtifræðingur keyrir trukk
Tólf gíra Scania á átta
hjólum með 480 hestafla
vél er ofurbíll. Anna
Silvía Þorvarðardóttir er
í draumastarfinu sem bíl-
stjóri hjá Eimskip þar
sem henni gefst kostur á
að fara víða um og hitta
marga.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bílstjórinn Það er auðvitað gjörólíkt að keyra Yaris eða stóran trukk. En þetta lærist, segir Anna Silvía í viðtalinu.
Scania Sterkbyggður bíll og á vagninum er 40 feta gámur sem í eru fluttar
vörur til og frá flutningamiðstöð og stærstu fyrirtækjunum í borginni.
Laugardagskvöldið 11. ágúst kl. 23
verður árleg flugeldasýning á Jökuls-
árlóni á Breiðamerkursandi. Sýningin
er nú í 18. sinn og hefur gestum fjölg-
að eftir því sem árin hafa liðið.
Undirbúningur fyrir sýninguna
hefst fyrr um daginn þegar menn á
gúmmíbáti fara um lónið og raða 150
friðarkertum á ísjaka. Áður en sýn-
ingin hefst er kveikt á kertunum og
flugeldum er skotið upp á nokkrum
stöðum á lóninu. Sýningin varir í um
það bil 20 mínútur. Upplýstir ísjak-
arnir eru baðaðir í litum og birtu frá
stórkostlegri flugeldasýningu í
magnaðri umgjörð náttúrunnar sem
skapar einstaka upplifun. Björgunar-
félag Hornafjarðar hefur veg og
vanda af sýningunni í samstarfi við
Ríki Vatnajökuls. Í ár er Ice Lagoon
helsti bakhjarl þessa viðburðar.
Aðgangseyrir sýningarinnar er
1.500 kr. á mann og hægt er að
greiða við innganginn. Aðgangseyrir
rennur óskiptur til Björgunarfélags-
ins, sem kemur sér vel við þau fjöl-
mörgu verkefni sem félagið tekur að
sér. Frítt er inn fyrir börn 12 ára og
yngri. Sætaferðir verða bæði frá Höfn
og Kirkjubæjarklaustri.
Árlegur viðburður í ríki Vatnajökuls
Mikið sjónarspil í vændum á
flugeldasýningu við Jökulsárlón
Jökulsárlón Upplýstir ísjakarnir verða baðaðir í litum og birtu flugelda
Alvöru bónstöð þar sem bíllinn er
þrifinn að innan sem utan,
allt eftir þínum þörfum.
Frábær þjónusta – vönduð vinnubrögð.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Bónstöð opin virka daga frá 8-19,
Alþrif verð frá 14.500,- (lítill fólksbíll)
Bónstöð Pantið tíma í síma577 4700