Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 19

Morgunblaðið - 07.08.2018, Page 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 ✝ Ólafur Krist-berg Guð- mundsson fæddist 29. maí 1930 í Hafnarfirði. Hann andaðist á líknar- deild Landspítalans 27. júlí 2018. Foreldrar Ólafs voru Guðmundur Guðmundsson, verkamaður í Hafnarfirði, f. 1900 á Þverlæk í Holtum í Rang- árvallarsýslu, d. 1991, og Guð- rún Sigurbergsdóttir, húsmóðir og verkakona í Hafnarfirði, f. 1906 í Skíðholtskoti, Hraun- hreppi á Mýrum, d. 1991. Albróðir Ólafs er Hörður Guðmundsson húsgagnasmiður í Hafnarfirði, f. 1929, og hálf- systir samfeðra Elín Ása Guð- mundsdóttir, f. 1926, d. 2016. Fósturbróðir er Bragi Þor- bergsson, f. 1935. Árið 1956 kvæntist Ólafur eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigurlaugu Jónínu Jónsdóttur (Gógó), f. 25. ágúst 1935 á Vé- steinsholti í Haukadal í Dýra- firði, húsmóður, fv. ökukennara og bjó þar í 35 ár, þar ólust upp börn Óla og Gógóar. Síðasta heimili hans var á Sólvangsvegi 3. Eftir gagnfræðapróf frá Flensborgarskóla nam hann raf- virkjun, varð meistari í því fagi 1954 og starfaði við það í nokk- ur ár. Hóf starfsferil sinn hjá Lögreglunni í Hafnarfirði 1958, var skipaður varðstjóri 1965 og aðstoðaryfirlögregluþjónn 1974. Einnig var hann ökukenn- ari frá 1963 og kenndi við meiraprófin hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins árum saman. Hann starfaði í stjórn Öku- kennarafélagsins, var lengi gjaldkeri Landssambands lög- reglumanna og í yfirkjörstjórn BSRB. Í Umferðarráði í þrjú ár. Ólafur var formaður Bridge- félags Hafnarfjarðar 1954-1955 og sveit hans varð tíu sinnum Hafnarfjarðarmeistarar. Árið 1971 gekk hann til liðs við Odd- fellow-regluna og var í stúku Bjarna riddara í Hafnarfirði þar sem hann gegndi ýmsum trún- aðarstörfum. Sem gamall skáti stóð hann ásamt öðrum að stofn- un St. Georgsgildisins í Hafnar- firði, var mjög virkur í skála- starfi þeirra við Hvaleyrarvatn og var gerður að heiðursfélaga árið 2004. Útför Ólafs fer fram frá Víði- staðakirkju í Hafnarfirði í dag, 7. ágúst 2018, klukkan 13. og starfsmanni á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Þeirra börn eru: 1) Guð- mundur Rúnar Ólafsson, tann- læknir, f. 1956, kvæntur Lindu Björk Magnús- dóttur, þeirra synir Gylfi Freyr, Hjalti Þór, Birgir Snær og Andri Fannar. 2) Elínborg Jóna Ólafsdóttir verk- fræðingur, f. 1957, gift Guð- mundi Kr. Tómassyni, þeirra börn Berglind Eik, Tómas Björn og Ólafur Örn. 3) Kristín Ólafs- dóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1962, gift Vali E. Valssyni, þeirra börn Kjartan Ágúst og Sigrún María. 4) Sigrún Ólafs- dóttir, f. 1973, dáin sama ár. 5) Ólafur Erling Ólafsson skógar- verkfræðingur, f. 1974, kvæntur Helmu Ýr Helgadóttur, þeirra synir Helgi Kristberg og Guð- mundur Logi. Barnabarnabörn Ólafs og Sigurlaugar eru 12. Ólafur bjó alla tíð í Hafnar- firði, fæddist og ólst upp á Sel- vogsgötunni, byggði Öldutún 8 Elsku pabbi okkar. Þú hefur kvatt okkur að sinni eftir langa og yndislega samferð. Við þökk- um þína traustu hönd sem leiddi okkur gegnum lífið með enda- lausri umhyggju og velferð okk- ar alltaf í huga. Mikið munum við sakna þín en minningarnar lifa. Horfin strönd, heimalönd, hljóðnar áralag. Vinabönd, hönd í hönd hefja nýjan dag. Ólgar blóð, æskuglóð alheims tekur völd. Ástarljóð, ung og rjóð, inn í nýja öld. Yndishljóm, lágan óm, eilíft syngjum lag. Friðarblóm, óskin fróm finnur nýjan dag. (HH) Þín, Rúnar, Elínborg, Kristín og Ólafur Erling. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þó í okkar feðrafold falli allt sem lifir enginn getur mokað mold minningarnar yfir. (Bjarni Jónsson frá Gröf) Elsku tengdapabbi, takk fyrir allt. Ég bið góðan guð að styrkja elsku Gógó. Þín tengdadóttir, Linda Björk. Fyrstu minningarnar sem ég á um afa Óla eru frá Öldu- túninu, þegar hann gekk með mig á tánum í strætóleik og söng vísur. Síðar bættust við ferðir í fjárhúsið, skátaskálann og kartöflugarðinn. Einnig á ég hlýjar minningar úr eldhúsinu hjá afa og ömmu, að borða ís- lensk bláber sem afi hafði tínt, afabollur sem hann bakaði sjálf- ur og pönnukökurnar hennar ömmu. Afi með kaffi í glasinu sínu að segja sögur og ævintýri frá sínum yngri árum. Hann var heimakær og leidd- ist ekki að horfa á góðan hand- bolta- eða fótboltaleik, sinna myntsafninu og leysa kross- gátur. Afi var ekki maður mik- illa breytinga og var meðal ann- ars með eindæmum tryggur Skoda-eigandi. Ég hef heldur aldrei kynnst neinum jafn stundvísum og afa Óla. Örlátari og gjafmildari mann- eskju er erfitt að finna. Meira að segja krummi mátti ekki verða útundan. Matarafgöngum var ekki hent á heimilinu, held- ur var þeim safnað saman og gaukað að krumma. Ég fékk reglulegar sendingar af glænýj- um afafiski, sem mér þótti ekki síst vænt um eftir flutninga til Svíþjóðar. Oftar en ekki laum- aðist með lakkríspoki úr lakkrísverksmiðjunni í Hafnar- firði. Afi Óli hefur kennt mér ótal- margt, þar með talið kenndu hann og amma mér að keyra bíl. Fyrir utan að vera frábær fyr- irmynd um mikilvægi stundvísi, heiðarleika og örlætis var hann ötull við að fræða okkur afkom- endur um eitt og annað, kenna nöfn á staðarháttum, stjörnu- merkjum, sem og minna þekkt orð úr krossgátum. Ég hef ávallt litið upp til hans hversu vel lesinn hann var og met mik- ils allar góðar bókagjafir sem ég hef fengið í gegnum tíðina frá afa og ömmu. Sumar nýjar, aðr- ar gamlar en allar góðar. Ég er þakklát fyrir hvað við fengum mörg ár og margar góð- ar stundir með afa Óla. Mér þótti sérstaklega vænt um að hafa fengið að vera með honum núna í júlí. Hann hefur alltaf verið duglegur að fylgjast með því sem var um að vera í lífi af- komenda sinna, ég veit að hann fylgist áfram með og verður með okkur í anda. Ég trúi því að þér líði vel núna, elsku afi Óli, kominn til ömmu Rúnu, afa Gumma, Sigrúnar litlu og elsku Birgis. Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar. Berglind Eik. Elsku afi. Nú höfum við kvatt þig í síð- asta sinn í þessu lífi. Söknuður okkar er mikill en við eigum margar góðar minningar sem lifa með okkur um ókomna tíð. Allar heimsóknir þínar til okkar í Noregi. Bæði þegar þið amma komuð og líka heimsóknir ykkar Rúnars. Umhyggja þín fyrir okkur öllum var takmarkalaus. Þegar við fluttum heim frá Noregi vor- ið 2017 stóðu dyrnar hjá ykkur ömmu opnar upp á gátt. Þrátt fyrir veikindi og háan aldur vor- uð þið amma boðin og búin að aðstoða okkur á alla lund svo að heimflutningarnir gengju sem best. Afi, svo manstu að ef þú þarft að vita hvað klukkan er geturðu alltaf kíkt á klukkuna góðu hjá ömmu. Elsku afi, við strákarnir þökkum þér fyrir allt og lofum að passa upp á ömmu. Þínir afastrákar Helgi Kristberg og Guðmundur Logi. Er Óli, kærasti stóru systur, kom í fyrsta sinn vestur í Haukadal var spenna í lofti. Skyldi hann ætla sér að taka hana frá okkur? Nei, Óli tók aldrei neitt frá neinum. Hann gaf, vissi að inneign hið efra felst í gjöfum. Hann átti nægta- brunn mannkosta sem hann jós úr allt sitt líf. – Teinréttur með ljóst liðað hárið eins og geisla- baug um höfuðið gekk hann sporléttur að mönnum og vann hjörtun í einu vetfangi. Þannig kom hann og þannig fór hann þótt sporin hans þyngdust með árunum. Það var auðvelt að láta sér þykja vænt um Óla og mér var hann sem annar faðir. Ómót- uðum unglingi var handleiðsla þeirra Gógóar, en ég kom fyrst til vetrardvalar hjá þeim þrett- án ára gömul, mér dýrmæt í margháttuðum skilningi. Hún markaði mér lífsbraut, gaf mér tækifæri sem ég er óendanlega þakklát fyrir. Samtölin í eldhús- inu á Öldutúni 8, ekki síst í kvöldkaffinu, eru ógleymanleg. Vinir mínir minnast oft þessara stunda. Þarna voru lífsins gátur ræddar og sumar leystar. Óli var fæddur leiðtogi, fólk dróst að honum. Hann náði vel til þess, hafði frá mörgu að segja á skilmerkilegan og oft glettinn hátt. Ævinlega var veisla, Gógó sá til þess og lagði gott til mál- anna. Þá var bakkelsi ekki orðið eins óhollt og nú og „kex og bleytt“, kaffi með mjólk, sykri og matarkexi, bráðhollt, jafnvel ungum börnum. Óli var dugnaðarforkur, gekk að starfi af heilindum. Var ár- risull, léttsvæfur og afar stund- vís. Maður skyldi klár kortéri fyrir ef svo bar undir. Hann var líka velvirkur maður og hand- fljótur. Hafði yndi af að fara í berjamó og tíndi manna hraðast bláber, oftast ætluð Gógó. Óli var mikill fjölskyldumaður og hafði þar sem annars staðar áhrif til heilla. Í blóma lífsins þurfti Óli í hjartaaðgerð til London. Vel tókst til og var hann þakklátur fyrir öll „bónusárin“. Þá voru uppi kenningar um breytt mat- aræði hjartasjúklinga sem voru honum lítt að skapi. Hann hélt sínu striki. Nú vita allir að fitan er holl. Einmitt þannig var Óli, lítt sveigjanlegur í grundvallarskoð- unum en framúrskarandi vand- aður maður til orðs og æðis. Hann var mér fyrirmynd um svo margt. Mér er líka ógleym- anlegt traust hans og uppörvun þegar ég, unglingurinn, þarfn- aðist hvatningar og hlýju. Hann kallaði mig stundum fóstur- dótturina. Sá titill var mér aðalsnafnbót. Síðustu árin stríddi Óli við al- varleg veikindi, hélt þó húm- ornum og reisn til hinstu stund- ar. Alls staðar elskaður og virtur. Nú er þessi góði maður allur. Skarð hans er vandfyllt en frá þeim hjónum er kominn fríð- ur hópur sem flytur minningu hans áfram. Líf Óla var á margan hátt fagurt ævintýri og ég veit að hans hafa beðið margir opnir faðmar. Hann vissi að hverju dró, var ferðbúinn, þakkaði fyrir sig, þótt okkur bæri að þakka honum; kvaddi sáttur. Hans lík- ar skilja þó aldrei við okkur. Þeir lifa áfram á meðal okkar í þeim góðu gildum sem þeir stóðu fyrir. Gógó og Óli, einstök hjón, einstakar manneskjur, fyrir- myndir í stórfjölskyldunni. Við Haukur, börnin okkar og fjölskyldur sendum ástvinum innilegar samúðarkveðjur. Kristín Jónsdóttir. Kynni okkar Óla hófust þegar við vorum mjög ungir að árum fyrir tæpum 90 árum síðan þar sem foreldrar okkar voru ná- grannar og varð strax mikill samgangur á milli okkar sem hélst meira og minna alla tíð. Þegar við síðan uxum úr grasi æxlaðist þannig til að við urðum áfram næstu nágrannar og bestu vinir þar sem við byggð- um okkur hús í kringum 1960 hlið við hlið á Öldutúninu í Hafnarfirði. Óli reyndist mér ákaflega vel við þá vinnu þar sem ég var mikið á sjó á þessum tíma og Óli tók að sér verk- stjórn á minni húsbyggingu á meðan. Fæ ég honum seint full- þakkað fyrir það. Vorum við ná- grannar þar í kringum 40 ár og mikill samgangur þar á milli fjölskyldna. Óli og Gógo hafa reynst allri minni fjölskyldu mjög vel í gegnum tíðina í alls- konar málum og var alltaf hægt að treysta á velvild þeirra í okk- ar garð, alveg sama um hvað mál snerust. Var það ómetan- legt að eiga þau að á þeim tíma. Óli var einstaklega traustur og úrræðagóður og gerði ekki upp á milli manna og var alltaf hægt að treysta á góðvild hans. Á tímabili störfuðu tveir synir mínir í lögreglunni með Óla og veit ég að hann reyndist þeim ákaflega vel þar og þótti þeim gott að starfa með honum. Vil ég að lokum þakka Óla fyrir að hafa verið samferðalangur minn í gegnum lífið og um leið sendi ég Gógo og fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur. Guðjón Frímannsson. Fallinn er nú frá mikið prúð- menni og kær vinur, Ólafur K. Guðmundsson. Leiðir okkar lágu saman sem samstarfsfélag- ar í lögreglunni í Hafnarfirði um þrjátíu ára skeið. Ólafur var sérstakt prúðmenni. Hann var ætíð nærgætinn í mannlegum samskiptum, sem var góður kostur í lögreglustarfinu, heiðarlegur, traustur og úr- ræðagóður. Hann var jákvæður að upplagi, í honum leyndist þó smá stríðnispúki við sérstakar aðstæður og átti hann ekki erf- itt með að koma af stað skemmtilegum og léttum um- ræðum. Ég vil með þessum fáu orðum, kæri vinur, þakka þér samfylgdina og vináttuna og þá sérstaklega þær samverustund- ir sem við áttum saman síðustu mánuði við dánarbeð þinn. Svo, vinur kæri, vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín gæta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Einhvers staðar bak við rangt og rétt munum við hittast, kæri vinur. Ég ber þér um leið kveðju frá Sálarrannsóknarfélaginu í Hafnarfirði. Arnbjörn Leifsson. Kveðja frá Ökukennara- félagi Íslands Góður félagi okkar, Ólafur K. Guðmundsson, er fallinn frá eft- ir erfið og ströng veikindi. Ólafur eða Óli Guðmunds eins og hann var oftast kallaður, réðst til starfa hjá lögreglunni í Hafnarfirði og eins og títt var með orkumikla menn hér fyrr á tíð kom hann sér fljótlega upp aukastarfi. Hjá Ólafi lá það nokkuð beint við að afla sér réttinda til ökukennslu og það gerði hann árið 1963. Fljótlega eftir það gekk Óli til liðs við Ökukennarafélag Íslands sem á þeim árum lét nokkuð að sér kveða varðandi umferðar- öryggismál og stefnumótun um- ferðar til framtíðar. Á næstu ár- um fór í hönd undirbúningur að gildistöku hægri umferðar á Ís- landi en á þeim vettvangi var Óli mjög virkur og þar nýttist hin mikla þekking hans á sviði umferðarmála vel. Ólafur kom með virkum hætti að stofnun ökuskóla félagsins árið 1967 ásamt fleiri nýjungum á sviði ökukennslu. Þá er ótalið að hann gegndi formennsku í Öku- kennarafélagi Íslands árin 1972 og 1973 og fórst það farsællega úr hendi. Ólafur var áhugasamur um að kynna starfsfélögum sínum nýjungar á sviði umferðarör- yggismála og ökunáms. Leitaði hann þá fyrst og fremst erlend- is, gjarnan til nágrannaland- anna, til að sækja slíkan fróðleik og treysta jafnframt sambandið við starfsbræður þar. Ólafur þótti traustur og vandaður öku- kennari og var sérstaklega til þess tekið hve natinn hann var við þá nemendur sem af ein- hverjum ástæðum áttu erfitt uppdráttar í náminu. Fyrir störf sín öll í þágu félagsins og fram- lags til bættrar umferðar, var Ólafur sæmdur æðstu viður- kenningu Ökukennarafélags Ís- lands, gullmerki félagsins. Ólafur K. Guðmundsson var alla tíð góður og traustur fé- lagsmaður og áhugasamur um þróun mála í greininni þó svo þau hjón væru hætt að sinna ökukennslu en Sigurlaug kona hans starfaði einnig við öku- kennslu um langt árabil. Við sendum henni, sem og fjöl- skyldu þeirra allri, innilegar samúðarkveðjur. Hafðu kæra þökk fyrir sam- fylgdina, Ólafur. Fyrir hönd Ökukennarafélags Íslands, Arnaldur Árnason og Guðbrandur Bogason. Ólafur K. Guðmundsson Elskulegur faðir okkar, ERLINGUR HALLSSON, sem lést föstudaginn 27. júlí, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins. Fyrir hönd aðstandenda, Einar, Guðrún, Tryggvi og Erlingur Erlingsbörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, MARÍA STEINUNN HELGA JÓHANNESDÓTTIR frá Dynjanda, lést á hjúkrunarheimilinu Eyri á Ísafirði þriðjudaginn 31. júlí. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju föstudaginn 10. ágúst klukkan 13. Sigurvin Guðbjartsson Þórey Kristín Guðbjartsdóttir Reynir Snæfeld Stefánsson Guðbjartur Guðbjartsson Sigurður Bjarki Guðbjartsson tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR JÓN JÓNSSON bóndi á Teygingalæk, sem lést laugardaginn 28. júlí, verður jarðsunginn frá Prestbakkakirkju á Síðu, föstudaginn 10. ágúst, klukkan 14. Sveinbjörg G. Ingimundardóttir Valgeir Ingi Ólafsson Kristín Anný Jónsdóttir Margrét Ólafsdóttir Ingi Kristinn Magnússon barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.