Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 20

Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 ✝ Helgi Hró-bjartsson fædd- ist í Reykjavík 26. ágúst 1937. Hann andaðist í Awasa í Eþíópíu 6. júlí 2018. Foreldrar hans voru Ingibjörg Þor- steinsdóttir, Lang- holti í Flóa, fædd 15. september 1909, dáin 11. júlí 2004, og Hróbjartur Árnason burstagerðarmeistari, fæddur 12. júní 1897, dáinn 11. febrúar 1953. Helgi var þriðja barn þeirra hjóna af sex. Þau eru þessi í aldursröð: Margrét, Helga Steinunn, Helgi, Árni (d.), Frið- rik og Jón Dalbú. Helgi giftist Unni W. Nass 1965, fædd 14. júlí 1939, dáin 1991. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Thora og Knut Nass og bjuggu í Larvik í Suður- Noregi þar sem Unnur fæddist og ólst upp ásamt syst- ur sinni. Helgi og Unnur eignuðust þrjú börn, Hjalta, fæddan 13. júlí 1966, Hönnu Maríu, fædda 26. september 1967, og Ingi- björgu Margréti, fædda 11. nóv- ember 1974. Afabörn Helga eru fimm talsins og búa öll í Noregi. Helgi starfaði sem kennari, prestur og kristniboði. Útför hans mun fara fram frá Laugarneskirkju í dag, 7. ágúst 2018, klukkan 15. Þú mikli Guð ert með oss á jörðu, miskunn þín nær en geisli á kinn. Eins og við finnum andvara morguns eins skynjar hjartað kærleik þinn. Þannig orti Sigurbjörn Einars- son biskup. Kristin trú er um nær- veru Guðs og ást á öllum mönnum. Helgi bróðir minn vissi snemma hvert ævistarf hans yrði og allt sem hann lærði og vann við sem ungur maður var undirbúningur undir kristniðboðsstarfið. Hann fór til Eþíópíu ásamt eiginkonu og tveimur börnum árið 1967, þriðja barnið fæddist í Eþíópíu. Ævistarf Helga var fyrst og síðast kristni- boð. Hann starfaði í Eþíópíu, Senegal, Noregi og á Íslandi, en óháð því hvar hann hafði búsetu hélt hann alltaf sambandi við kirkjuna í Waddera í Eþíópíu og fylgdi eftir því starfi sem þar var. Þann 26. júní sl. kom hann í tveggja sólarhringa heimsókn til Íslands en hélt svo rakleitt út til Eþíópíu að halda sitt árlega nám- skeið í Waddera fyrir leiðtoga kirkjunnar á sínu starfssvæði eins og hann hafði gert í júlílok und- anfarna áratugi. Nú í sumar voru liðin fimmtíu ár frá því Helgi kom fyrst til Eþíópíu. Af því tilefni höfðu heimamenn undirbúið hátíð í þakkargjörð og gleði honum og starfinu til heiðurs sem skyldi verða að námskeiði loknu. Kvöldið áður en námskeiðið skyldi byrja varð Helgi bráðkvaddur á heimili vinar síns. Helgi hafði einkaflug- mannspróf og flaug á milli staða í þessu stóra landi og komst þannig til þeirra sem bjuggu á afskekkt- um svæðum Eþíópíu, í fjöllum og skógum. Hann fékk heimamenn til þess að hjálpa sér við að byggja flugvelli og halda þeim við. Eitt sinn kom Helgi í byggðarlag þar sem hann hafði aldrei áður verið. Fólkið þar var í miklum vanda vegna þurrka, hann spurði nær- stadda hvort hann mætti biðja til síns guðs fyrir öllu því sem það hafði tjáð honum. Síðan hélt hann ferð sinni áfram. En stuttu eftir að hann fór byrjaði að rigna! Það vissi hann ekki fyrr en löngu síðar er hann kom aftur á sama stað. Fólk- ið kom þá til hans og bað hann að segja sér meira frá Guði sem heyr- ir bænir. Helgi hefur oft verið í Eþíópíu á þurrkatímum og lagt hönd að verki ásamt fleirum. Hann hefur gengið til verka sem heima- maður og flutt þurfandi og nauð- stöddum mat og vatn, mörgum til lífs. Helgi hefur einnig hlúð að menntun og menningu, bæði fyrir börn og fullorðna. Hann vann að heilsugæslu með því að kalla til heilbrigðisstarfsfólk og skapa því skilyrði. Þá var hann iðulega ráð- gefandi vegna ýmissa úrlausnar- efna í daglegu lífi fólks en síðast en ekki síst hefur hann sagt fólki frá Jesú Kristi og boða trú. Helgi var einstakur maður, gæddur ótal hæfileikum m.a. á sviði tónlistar, myndlistar, tækni og samskipta. Honum var gefið óvenjulegt þrek til líkama og sálar sem hann nýtti í þágu þeirra málefna sem honum voru á hjarta lögð. Í dag er hans sárt saknað í þeim byggðarlögum Eþíópíu sem lengst og best nutu krafta hans, en tugir þúsunda núlifandi Eþíópa eiga betra líf vegna þjónustu Helga bróður míns. Fyrir það er ég bæði þakklát og stolt. Ég samhryggist börnum hans, barnabörnum og öðrum ástvinum. Hann var mér dýrmætur bróðir. Helga St. Hróbjartsdóttir. Minn kæri bróðir er látinn. Ég fékk þessa frétt í símtali hinn 6. júlí á föstudagskvöldi frá vini Helga í Eþíópíu, aðeins viku eftir að Helgi kom í stutta heimsókn til Íslands. Þetta kom svo flatt upp á mann því Helgi var í fullu fjöri og kenndi sér einskins meins, þegar hann heimsótti mig aðeins sjö dög- um áður. Við Helgi áttum margar góðar stundir saman og ræddum oft um trú mál, Biblíuna og Ísarael þang- að sem við fórum í ferð saman. Það var gaman og fræðandi að fara með Helga í þessa ferð, því hann gat frætt mig vel um þá staði sem við heimsóttum vegna þekkingar hans á Ritningunum. Fjórum sinnum fór ég til Afríku í heimsókn til Helga. Þessar ferðir eru mér ógleymanlegar í alla staði. Þarna kynntist ég starfi Helga í hnotskurn. Ég var með honum í ferðum hans um héraðið þar sem Helgi ræddi við ráðamenn í hinum ýmsu þorpum um stöðu mála, hjálpar- þörf og fleira. Einnig var ég með honum á mörgum samkomum þar sem mikill fjöldi manna var ávallt mættur. Starf Helga í Afríku var alveg einstakt, hann vann jafnframt að margskonar hjálparstarfi og boð- un kristinnar trúar. Fyrir nokkrum árum geisuðu miklir þurrkar á svæðum þar sem Helgi starfaði. Þá var Helga falið af Hjálparstofnun norsku kirkj- unnar að flytja drykkjarvatn í stórum stíl til þessara þurrka- svæða. Þessi aðgerð tókst svo vel að eftir var tekið. Aðeins tveim vikum eftir lát Helga hefði hann átt 50 ára starfs- feril í Eþíópíu. Það var verið að undirbúa mikla hátíð vegna þessa mikla áfanga honum til heiðurs. Helgi naut mikillar virðingar og hylli meðal allra á sínu starfs- svæði, einnig má nefna það hér að Helgi var sennilega eini kristni- boðinn sem hlotið hefur þann heið- ur að vera boðinn í einkaviðtal til forseta Eþíópíu í konungshöllina. Margt fleira gæti ég sagt um Helga, en eitt er víst, hans verður lengi minnst fyrir sín miklu og óeigingjörnu störf í Eþíópíu. Blessuð sé minning þín, kæri bróðir. Friðrik. Fráfall Helga bróður míns kom mörgum mjög á óvart, því hann hafði verið svo heilbrigður og hress alla tíð. En þegar hann nú er allur, þá koma minningarnar upp í hugann um þennan einstaka og hæfileikaríka bróður og vin. Hér verða aðeins fáeinar minn- ingar dregnar fram, en hann er 10 árum eldri en ég svo hann var sannarlega stóri bróðir í mínum huga. Helgi var fjölmenntaður, en hann var kennari, guðfræðingur og hafði einkaflugmannsréttindi. Hann var kennarinn minn í handavinnu og teikningu við Lindargötuskólann í Reykjavík og sinnti því af mikilli gleði og frá- bærum hæfileikum sem bjuggu með honum og leið mér alltaf vel í þessum tímum þótt tengsl okkar væru svona náin. Fyrir nákvæmlega 50 árum fór Helgi fyrst til Eþíópíu sem kristni- boði. Ég var svo heppinn að fá einu sinni tækifæri til að heimsækja Helga í Eþíópíu ásamt bróður mínum Friðriki og mági mínum Karli Sævari. Við sáum hluta af starfssvæðinu, sem Helgi hafði starfað á og komið að stofnun kristinna safnaða víða um héraðið, þar sem einnig var öflugt hjálpar- starfi og skólastarfi. Hluti af starfssvæði Helga var á afskekktum stöðum, sem ferðast þurfti til fótgangandi eða með flug- vél. Helgi flaug með okkur á einn þessara staða, þar sem hann sjálf- ur ásamt heimafólki hafði búið til flugvöll. Þegar við lentum hópaðist fólkið að, því það vissi hver var á ferð. Hvar sem við komum þá kom mjög vel í ljós hve Helgi var vel lið- inn og elskaður af heimafólki. Eitt kvöld á þessum stað er mér sérstaklega minnisstætt, en þá hafði verið boðað til kvöldsam- komu. Til að komast í kirkjuna, sem byggð hafði verið af innfæddum, varð að ganga nokkuð langt upp brattan dal. Á áfangastað var okk- ur mætt með mikilli virðingu og kærleika, því okkur var boðinn fótaþvottur, upplifun sem maður getur aldrei gleymt og minnti óneitanlega á þekktan atburð sem Nýja testamentið segir frá, þegar Jesús þvoði fætur lærisveinanna og hvatti þá til að gjöra hið sama til að auðsýna náunganum kærleika og elsku. Þessir fulltrúar kirkj- unnar höfðu sannarlega tekið orð Jesú til sín. Menn höfðu ekki áhyggjur af birtunni þarna inni, eitt kertaljós var látið duga sem tendrað var með glóð frá einu af húsunum í ná- grenninu, sem tók sinn tíma. En fólk var líka fyrst og fremst komið til að hlusta og syngja saman. Um nóttina fengum við að gista í kirkjunni á mjúku gólfinu. Þessi ferð og allt sem við sáum og fengum að upplifa dró fram það fjölbreytta starf sem Helgi fékk náð til að byggja upp og styðja öll þessi ár. Hann var sannarlega öfl- ugt verkfæri í hendi Guðs. Ég vil með þessum línum fá að þakka allt sem ég fékk að upplifa með bróður mínum fyrr og síðar og ekki síst samverustundirnar sem ég og fjölskylda mín fengum að njóta með honum hin síðustu ár og nú síðast í vor áður en hann fór í sína síðustu ferð á kristniboðs- akurinn. Mest þakka ég Guði sem gaf okkur Helga, megi hann hvíla í ljósinu eilífa. Megi blessun Guðs fylgja börnunum hans og fjöl- skyldum þeirra alla tíð. Jón Dalbú og fjölskylda. „Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni.“ (Jóh. 15.16) Þessi orð koma í huga okkar þegar Helga vinar okkar Hró- bjartssonar kristniboða er minnst með nokkrum orðum. Helgi var alinn upp á kristnu heimili þar sem kristniboðshugsjónin logaði skært og snemma drakk hann í sig hina heilnæmu kenningu og kristniboðshugsjónina. Ungur að árum gerði Helgi köllun sína og útvalningu vissa og gekk Kristi á hönd sem erindreki hans. Það er einmitt í ár sem Helgi átti hálfrar aldar kristniboðsafmæli sem kristniboði í Eþíópíu. Starfsvettvangur hans var lengstum í Wadera og fékk Helgi þar að vera stórt verkfæri í hönd- um meistara síns. Er þar nú lif- andi og öflugur söfnuður. Það var ekki bara í Eþíópíu sem Helgi fékk að vera til mikillar blessunar, heldur einnig hér á landi, í Senegal, Noregi og Fær- eyjum. Helgi var gæddur sérstakri náðargáfu að boða Guðsorð til vakningar og blessunar, auk þess hafði hann gáfu til að spila á harm- óníku og píanó og syngja svo undurvel með blessunaráhrifum á tilheyrendur. Hann hefur nú fullnað skeiðið og öðlast þann sigursveig réttlæt- isins sem honum var geymdur á himnum. Megi blessun Guðs hvíla áfram- haldandi um ókomna tíð yfir því verki sem Helgi Hróbjartsson kristniboði fékk að ganga inn í og inna af hendi. Friður og gæska Guðs veri yfir og allt um kring um hans nánustu og vinina mörgu nær og fjær. Við viljum þakka allt gott fyrr og síðar. Bjarni Árnason og Jón Oddgeir Guðmundsson. Helgi Hróbjartsson  Fleiri minningargreinar um Helga Hróbjartsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Systir mín og frænka okkar, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, Kópavogsbraut 1b, áður Digranesvegi 60, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 26. júlí. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Þökkum auðsýnda samúð og þökkum þeim sérstaklega sem önnuðust hana í veikindum hennar. Ólafur Guðmundsson og systkinabörn Elskuleg amma, tengdamóðir og langamma, BJARNHEIÐUR ÁSTGEIRSDÓTTIR, Ártúni 10, Selfossi, lést mánudaginn 30. júlí. Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 9. ágúst klukkan 11. Bjarnheiður Ástgeirsdóttir Erlendur Ástgeirsson Elísabet Sveinsdóttir Sigurrós Jóhannesdóttir Sigmar Ólafsson Kristín Andersdóttir Kristbjörn Ólafsson og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTDÍS JÓHANNA STEFÁNSDÓTTIR, Ytra-Hrauni, Landbroti, Kirkjubæjarklaustri, sem lést á heimili sínu laugardaginn 28. júlí, verður jarðsungin frá Prestbakkakirkju á Síðu, miðvikudaginn 8. ágúst klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Björgunarsveitina Kyndil á Kirkjubæjarklaustri. Arnar Eysteinn Sigurðsson Sigurður Arnarsson Guðrún Þorsteinsdóttir Guðrún Arnarsdóttir Þorkell Arnarsson Sigríður Sveinsdóttir Guðni Arnarsson Aðalbjörg Runólfsdóttir Steinunn Ósk Arnarsdóttir Gunnar Örn Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLGRÍMUR GUÐJÓNSSON, fyrrv. bóndi, Hvammi í Vatnsdal er látinn. Útför auglýst síðar. Ingibjörg Rósa Hallgrímsdóttir Gísli Ragnar Gíslason Þuríður Kr. Hallgrímsdóttir Finnbogi Kjartansson Margrét Hallgrímsdóttir Gunnar Þór Jónsson Hafsteinn Gunnarsson Ásta Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR LONG, kvikmyndagerðarmaður, vélstjóri, rennismiður og þúsundþjalasmiður, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 3. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Valdimar Long Björg Long Karl Þorvaldsson Ásdís Björg Jóhannesdóttir Hrönn Bergþórsdóttir Smári Ásgeir I. Jóhannesson Long Rebeca Cedron Rögnvaldur Á. Ragnarsson Long Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR JÓN SVEINSSON, Hátúni 17, Vík í Mýrdal, lést á Dvalarheimilinu Hjallatúni föstudaginn 3. ágúst. Útförin fer fram frá Víkurkirkju, föstudaginn 10. ágúst kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Víkurkirkju, reikn. 0317-13-1406, kt: 700269-0869. Áslaug Halla Vilhjálmsdóttir Sveinn Þórðarson Inger Schiöth Sólveig Þórðardóttir Árni Eiríksson Kristján Þórðarson Sigrún Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.