Morgunblaðið - 07.08.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft virkilega á einveru að halda svo
að þú getir fullkomnað ætlunarverk þitt. Hlut-
irnir eru að breytast og það kemur sér vel að þú
hefur mikla aðlögunarhæfni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert að velta fyrir þér stórum spurn-
ingum um lífið og tilveruna í dag. Um leið og þú
gerir það getur þú breytt öllu til hins betra.
Leggðu þitt af mörkum með því að sýna skiln-
ing og umburðarlyndi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Hafðu góðar gætur á peningunum
þínum næstu tvær vikurnar og fylgstu með því
sem þú eyðir í gjafir og þess háttar. Sú fjárfest-
ing mun fljótt skila arði.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Stundum er ekki nóg bara að heyra það
sem sagt er heldur þarf líka að taka með í reikn-
inginn hvernig hlutirnir eru settir fram. Það þarf
lítið til að rugla þig í ríminu þessa dagana.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú er fullur orku þessa dagana en að
sama skapi hugsanlega dálítið tilfinningasamari
en þú átt að þér að vera. Mundu að einbeita þér
einungis að því sem þú hefur áhuga á.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Óvænt tækifæri berst þér og þér er fyrir
bestu að nýta þér það til hins ýtrasta. Treystu á
að það sé regla og réttlæti í alheiminum. Taktu
þér tíma til að einbeita þér og safna orku.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú þarft að komast í smáfrí til að endurnýja
sjálfan þig til sálar og líkama. Skjóttu þessu ekki
á frest því annars sérðu eftir því, allir þurfa tíma
fyrir sjálfa sig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Allt er á hreyfingu í kringum þig og
þú átt fullt í fangi með að fóta þig í straumnum.
Nú er rétti tíminn til þess að gera langtímaáætl-
anir fyrir heimilið og vinnuna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Notaðu tímann á næstunni til þess
að vera í félagsskap vina og kunningja. Fólk vill
vera með þér af því að þú ert mannlegur. Njóttu
dagsins með því.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að leysa fjárhagslega flækju
sem upp hefur komið. Vertu vel undirbúinn og
hafðu öll þín mál á hreinu. Þér finnst eins og
verk þín þjóni öðrum meira en þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Taktu einn hlut fyrir í einu því ef þú
ert með of mörg járn í eldinum þá nærðu ekki
tökum á neinu. Láttu fólk ekki fara í taugarnar á
þér heldur sýndu því skilning.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Leggðu þig fram um að sýna sjónar-
miðum annarra þá virðingu sem þú vilt þér til
handa. Notaðu kraftana til að láta hlutina ganga
greiðlega fyrir sig.
Sigrún Haraldsdóttir orti þessafallegu kvöldstemningu á
fimmtudag:
Hjá kjarrinu stend ég
í kvöldblænum mjúka
kyrr meðal hárra stráa
sumardvöl gestanna
senn fer að ljúka
saxast á ljós og gljáa
vikna er horfi á
vængina strjúka
vatnsflötinn rökkurbláa.
Ólafur Stefánsson yrkir á Leir:
Hann lifði til hárrar L-i
Þótt lífið oft færði’onum skelli.
„Ég C þig í haust “
söng hann við raust
við Sigrúnu sætu á Felli.
Helgi R. Einarsson skrifar mér
og segir, að „þeir sem kynnst hafa
starfi með kórum vita að oft fljúga
sakleysislegar athugasemdir milli
radda, sérstaklega milli tenóra og
bassa.“
Seinþroska tenórinn:
Tenórsins tæri hljómur
töfrar sem helgidómur,
en mér skilst það á konum
að hausinn á honum
sé h.u.b. alveg tómur.
Bráðþroska bassinn:
Þekkið þið Bjössa frá Bala
bassasöngvara’ á Scala?
Hann fór í mútur
sá magnaði kútur
meðan hann lærði að tala.
Páll Imsland heilsar leirliði á
sumardegi, sem engin ástæða er til
að kvarta undan:
Kornungur kom hann í heiminn,
kjökurbarn skrýtinn og feiminn,
en fór þaðan fyrst
í funheita vist
karlægur kýttur og gleyminn.
Hinn 1. ágúst skrifaði Pétur Stef-
ánsson í Leirinn:
Út í kvöldið arka feginn,
eftir mikið líkams streð,
gólf var skúrað, garður sleginn,
grindverk málað, hreinsuð beð.
Ólafur Stefánsson gat ekki setið
á sér:
Blár í framan blæs hann Pétur,
bjástra vissi þennan gikk.
Gömul kona gerir betur,
gólfin þvær í einum rykk.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kvöldstemmning
og karlmannsraddir
„ÞETTA ER AÐ GERAST OF HRATT. VIÐ HÖFUM
BARA ÞEKKST Í TVÆR VIKUR OG SAMBANDIÐ
ER ÞEGAR ORÐIÐ GAMALT OG FÚLT.“
„ÉG VERÐ AÐ RJÚKA, SNÚLLAN MÍN. ÉG ER
MEÐ SJÚKLING.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að afkvæmast saman.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KETTIR ERU
BETRI EN HUNDAR OG ÞURRARI
ÆÐI!
HÚRRA!
VEI!
TIL HAMINGJU!
VIÐ UNNUM BARDAGANN!
OG ENGINN
FÓR YFIR Í
HANDANHEIMA!
SEM ÞÝÐIR AÐ VIÐ FÖRUM ALLIR Í
HANDANPARTÍIÐ!
Ef marka má myndir í fréttatímumog umfjöllun fjölmiðla hafa flestir
landsmenn verið á faraldsfæti um
helgina. Það var dansað og drukkið í
Eyjum, á Akureyri, fyrir vestan og
fyrir austan. Og svo var grillað,
svamlað í sundlaugum og reynt að
sleikja þá sólargeisla sem fyrir fund-
ust. Víkverji tók upplýsta ákvörðun
um að halda sig víðsfjarri þjóðveg-
unum þessa ferðahelgina sem aðrar –
enda fátt leiðinlegra en að ferðast
þegar allir aðrir eru að ferðast.
x x x
Nei, Víkverji naut lífsins í höfuð-borginni og helgin var góð. Svo
góð að stærstu afrek helgarinnar
voru að renna í gegnum tvo nýlega
reyfara meðfram því að borða góðan
mat og bjarga rauðvíni frá því að
skemmast. Spennusögurnar sem Vík-
verji spændi sig í gegnum voru þær
nýjustu frá tveimur af meisturum
formsins; Lee Child og Jo Nesbø.
Báðir eru þeir í góðu formi að þessu
sinni, sér í lagi sá norski.
x x x
Meðfram því að liggja í skrudd-unum kláraði Víkverji loks lang-
þráð málningarverkefni á heimilinu.
Það hefði ekki verið gerlegt nema
fyrir aðstoð hlaðvarps í eyrunum. Að
þessu sinni hlustaði Víkverji á þætti
Veru Illugadóttur, Í ljósi sögunnar,
sem höfðu safnast upp. Þættir um
spillingu innan FIFA, morðið á Ro-
bert Kennedy og þegar eitrað var fyr-
ir Alexander Litvinenko voru afar vel
heppnaðir og héldu Víkverja að verk-
inu. Ekki veitti nú af.
x x x
En nú er nóg komið af lestri oggáfumannaefni. Fram undan er
nýtt tímabil í enska boltanum og Vík-
verji er kominn með fiðring í tærnar.
Sigursælasta lið Englands virðist
mæta laskað til leiks en erkifjend-
urnir í næstu borg hafa styrkt sig til
muna. Wenger gamli er horfinn á
braut og enn einn stjórinn mættur til
starfa hjá Chelsea. Aron Einar kom-
inn aftur upp og tilbúinn að kljást við
Jóhann Berg og Gylfa. Veislan hefst á
föstudagskvöld og heldur áfram alla
helgina. Svei mér þá ef Víkverji hætt-
ir ekki bara að bölva sumrinu sem
aldrei kom. vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels, því
að hann hefur vitjað lýðs síns og búið
honum lausn.
(Lúkasarguðspjall 1.68)
Gullfiskur
Kæliþurrkaður harðfiskur
semhámarkar ferskleika,
gæði og endingu.
Inniheldur 84%prótein.
84%prótein - 100% ánægja
Framleiðandi: Tradex ehf, Eyrartröð 11, 220Hafnarfjörður, tradex@tradex.is
Harðfiskur // Bitafiskur // Skífur
Fullkominn
ferðafélagi
Allt um sjávarútveg