Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 29

Morgunblaðið - 07.08.2018, Side 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 2018 »Tónlistarhátíðin Innipúkinn var hald- in um helgina í Kvos- inni, nánar tiltekið tón- leikastöðunum Gauknum og Húrra. Þó að hátíðin sé helguð innipúkum skemmti fólk sér líka utandyra, á úti- svæði þar sem boðið var upp á myndlistar- og fatamarkaði og tónlist að sjálfsögðu líka leikin. Meðal þeirra sem tróðu upp á fyrsta degi voru hljómsveitin Ateria og tónlistarmaðurinn Mugison. Hátíðin stóð yfir í þrjá daga, þ.e. föstudag, laugardag og sunnudag, og var haldin í Kvosinni í fimmta sinn. Innipúkar skemmtu sér vel, bæði inni og úti, á Innipúkanum Ljúfir tónar Hljómsveitin Ateria var meðal þeirra sem komu fram á Húrra og Gauknum í Kvosinni. Litadýrð Þar sem Tryggvagata og Naustin mætast safnast innipúkar saman. Gleði Kátína réði ríkjum í góðviðrinu í miðborg Reykjavíkur. Þorsti Margur vætti kverkarnar á hátíðinni. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Kvartett bassaleikarans Sigmars Þórs Matthíassonar kemur fram á djasskvöldi Kex hostels í kvöld kl. 20.30. Auk Sigmars skipa kvartettinn Sölvi Kolbeinsson á altósaxófón, Rögnvaldur Borgþórsson á gítar og Matthías Hemstock á trommur. Þeir munu flytja lög úr ýmsum áttum, uppáhaldsstandarda sína og fleira gott. Aðgangur er ókeypis. Kex hos- tel er að Skúlagötu 28. Á Kexi Sigmar Þór Matthíasson. Kvartett Sigmars á djasskvöldi Kona sem sakað hefur leikarann Geoffrey Rush um kynferðislega áreitni þegar hún lék með honum í uppfærslu á Lé konungi árið 2015 í Sydney í Ástralíu mun bera vitni gegn honum fyrir dómi. Rush höfðaði mál gegn dagblaðinu Daily Telegraph í kjölfar umfjallana þess um ásakanir konunnar. Dag- blaðið hefur nú fengið konuna í lið með sér í málsvörn sinni. Rush krefst skaðabóta frá dag- blaðinu vegna fjölda greina sem birtust um málið í nóvember og desember í fyrra. Hann segir þær rógburð og draga upp mynd af honum sem öfugugga og brota- manni. Konan hefur ekki tjáð sig opin- berlega eftir að dagblaðið birti fréttir sínar um málið en nú verð- ur breyting þar á, að því er frá er greint í dagblaðinu Guardian. Ber vitni gegn Rush Ásakaður Geoffrey Rush. --- ALLT A EINUM STAD � HÓT E L R E K S T U R Komdu og skoðaðu úrvalið í glæsilegri verslun að Hátúni 6a Hágæða rúmföt, handklæði og fallegar hönnunarvörur fyrir heimilið Eigum úrval af sængurvera settum Percale ofin – Micro bómul l, egypskri og indverskri bó mull Hátúni 6a, 105 Reykjavík | Sími 822 1574 | hotelrekstur.is ICQC 2018-20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.