Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 07.08.2018, Blaðsíða 32
ÞRIÐJUDAGUR 7. ÁGÚST 219. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Hef aldrei verið eins hrædd á ... 2. Hreinsiefnið sem sagt er ... 3. Tvöfalt tvíburabrúðkaup 4. Hlaut innvortis blæðingar eftir ... »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hinir árlegu Reykjavik Pride-tónleikar hljómsveitarinnar Evu á barnum Kiki verða haldnir í kvöld kl. 21. Um tónleikana segir á Facebook að „sjomlurnar“ í Evu séu heldur betur spenntar því á dögunum hafi fæðst glænýtt lag sem verði formlega frum- flutt á tónleikunum. Auk þess mæti leynigestur og sá verði ekki af verri endanum. Húsið verður opnað kl. 20 og varað er við því að enginn posi verði á staðnum og því þurfi að greiða að- gangseyrinn, sem er 2.000 krónur, með reiðufé. Hljómsveitin Eva treður upp á Kiki Þrjú ung skáld semja fyrir Borgarleikhúsið Á miðvikudag Norðvestlæg átt 3-10 m/s og skýjað með köflum, en 8-13 norðaustan til og rigning. Hiti 4 til 7 stig norðanlands, en 7 til 16 stig um landið sunnanvert. SPÁ KL. 12.00 Í DAG N 8-15, en 15-23 um A-vert landið, hvassast SA-til. Rigning fyrir norðan og á A-landi, en bjart SV-til. Lægir aust- an til um kvöld. Hiti 5-10 stig nyrðra en 10-17 stig sunnan heiða. VEÐUR Svíinn Erik Hamrén verður samkvæmt heimildum Morgunblaðsins kynntur sem nýr þjálfari karlalands- liðs Íslands í knattspyrnu á morgun. Hamrén var síðast yfirmaður knattspyrnumála hjá félagi í Suður-Afríku sem tilkynnti í gær að hann hefði verið leystur undan samningi til að geta tekið við íslenska landsliðinu. Næsti leikur Íslands er eftir einn mánuð. » 1 Hamrén tekur við á morgun Aníta Hinriksdóttir hleypur af stað um níuleytið í dag í 800 metra hlaupi á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum. Aníta þarf að ná einu af þremur efstu sætunum í sínum riðli til að komast áfram í undanúrslit. Guðni Valur Guðnason hefur keppni um svipað leyti í kringlu- kasti og þarf að kasta yfir 64 metra til að kom- ast í úrslit. »1 Aníta og Guðni Valur á EM í Berlín í dag „Við ætlum okkur upp úr þessum riðli. Markmiðið er að ná í góð úrslit í fyrstu tveimur leikjunum sem gefur okkur hreinan úrslitaleik gegn Ajax,“ segir Halldór Jón Sigurðsson, þjálfari Íslandsmeistara Þórs/KA, en liðið er mætt til Belfast á Norður-Írlandi til að leika í riðlakeppni meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Liðið leikur þrjá leiki á næstu sex dögum. »2 „Við ætlum okkur upp úr þessum riðli“ ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á  Borgarleikhúsið leitaði í vetur eftir hugmyndum sex ungra höfunda að 30 mínútna leikritum og urðu þrjú verk fyrir valinu, verk Hildar Selmu Sig- bertsdóttur, Matthíasar Tryggva Har- aldssonar og Þórdísar Helgadóttur. Verkin verða þróuð áfram í samvinnu við dramatúrga Borgarleikhússins og leikstjóra verkefnisins, Kristínu Jó- hannesdóttur. Leikritin þrjú eru Sumó eftir Hildi Selmu, Stóri Björn og kona 2 eftir Matthías Tryggva og Þensla eftir Þórdísi og verða þau öll sýnd sama kvöld á Litla sviði leikhússins á sýningu sem ber yfirskriftina Núna. Sýningin verður frum- sýnd 11. janúar, á afmælisdegi Leikfélags Reykjavíkur. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslendingadagshátíðin á Gimli í Mani- toba í Kanada fer fram um verslunar- mannahelgina ár hvert og er hátíð með öllu, líka íslensku rúgbrauði, flatkök- um og pönnukökum. Þökk sé Jóni Grétari Axelssyni, stöðvarstjóra eld- varna hjá skógrækt fylkisins, en hann styrkir Íslendingadagsnefnd með því að baka góðmetið og gefa það nefnd- inni. „Mér hafa alltaf þótt pönnukökur góðar og þegar ég var 12 ára pjakkur á Selfossi byrjaði ég að baka þær ofan í mig,“ segir Grétar. „Maður varð að bjarga sér og ég kunni vel til verka í eldhúsinu eftir að hafa í mörg ár fylgst með afa í vinnunni en hann var kokk- ur, meðal annars í Tryggvaskála á Sel- fossi og á Hvolsvelli.“ 30 ár í Kanada Grétar, sem vann hjá Landsvirkjun við Búrfellsvirkjun í 15 ár, og Tammy, sem er frá Gimli og af íslenskum ætt- um, kynntust á Íslandi, gengu í hjóna- band 1987 og fluttu til vesturstrandar Kanada í júlí árið eftir eða fyrir um 30 árum. Skammt norðan við Vancouver starfræktu þau kaffihús og bakarí um tíma, en Gimli togaði í Tammy og þau fluttu þangað 1995. Þar hefur Grétar unnið hjá skógræktinni síðan en Tammy var lengi framkvæmdastjóri Safns íslenskrar menningararfleifðar, The New Iceland Heritage Museum á Gimli, bæjarstjóri eitt kjörtímabil og stýrir nú skrifstofu Jeff Warton, ráð- herra sveitarstjórnarmála, á Gimli. Hún er auk þess móttökustjóri sér- stakra gesta á Íslendingadagshátíðinni ásamt Tim Arnason. Mjög þurrt hefur verið í Manitoba undanfarna mánuði og þar með góðar aðstæður fyrir skógarelda. „Það var töluvert um skógarelda í vor, frá því um 20. apríl til um 20. júní, síðan hægði á þeim en svo byrjuðu þeir aftur seinni hlutann í júlí,“ segir Grétar, sem tekur sér ætíð frí þegar hátíðin er á Gimli. „Ég hef alltaf bakað mikið, fyrst og fremst fyrir heimilið, en líka fyrir sér- staka viðburði hér á Gimli,“ segir Grét- ar. Í því sambandi rifjar hann upp að hann hafi í mörg ár bakað íslenskt góð- gæti fyrir jólamarkað á Gimli og undanfarin þrjú sumur hafi hann verið með bás á markaðnum á Gimli alla laugardaga. „Þá byrja ég að baka pönnukökurnar um klukkan fjögur til fimm að morgni laugardags og mæti með þær volgar á markaðinn.“ Baksturinn hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár og Grétar bakaði meðal annars fyrir kvikmyndahátíðina á Gimli á dögunum. Hjónin byggðu nýtt hús fyrir um þremur árum og lagði Grétar sérstaka áherslu á eldhús- ið. „Við keyptum stóra eldavél og ég baka pönnukökur á fimm íslenskum pönnum í einu og svo er ísskápurinn af stærri gerðinni svo ég hafi nægt rými fyrir bakkelsið.“ Íslenskar pönnukökur á Gimli Ljósmyndir/Fiona Axelsson Bakari Grétar Axelsson bakar fimm pönnukökur í einu og telur það ekki eftir sér að vakna eldsnemma til bakstursins.  Jón Grétar bakar fyrir Íslendingadags- nefnd Sala Grétar við sölutjaldið góða á Gimli þar sem pönnukökurnar fást.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.