Morgunblaðið - 15.08.2018, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 5. Á G Ú S T 2 0 1 8
Stofnað 1913 190. tölublað 106. árgangur
VERK Á MÖRKUM
MYNDLISTAR
OG TÓNLISTAR
NORRÆNT OG
JAPANSKT Í EINA SÆNG
HIPPHOPPHÁTÍÐIN
ER ORÐIN
FASTUR LIÐUR
MANGA-HÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 33 MENNINGARNÓTT 12LILJA MARÍA 30
Morgunblaðið/Ómar
Framkvæmdir Byggingargeirinn á mikinn
þátt í fjölgun starfa það sem af er árinu.
Vinnumálastofnun áætlar nú að
2.000 til 2.500 ný störf verði til í ár.
Til samanburðar spáðu sérfræð-
ingar stofnunarinnar í ársbyrjun að
2.500 til 3.000 ný störf yrðu til í ár.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur
hjá Vinnumálastofnun, telur líklegt
að talan verði nærri 2.000 nýjum
störfum. Það er mikil breyting frá
fyrri spá um allt að 3.000 störf.
Þá spáir stofnunin 3.250 nýjum
störfum árin 2019 og 2020. Gangi
það eftir munu um 31.500 ný störf
hafa orðið til árin 2012-2020. Til
samanburðar urðu til 22.600 störf
árin 2005-2008. „Þetta er orðið
langt tímabil með mikilli fjölgun
starfa og trúlega mesta samfellda
fjölgun starfa á vinnumarkaði síð-
ustu áratugina,“ segir Karl. » 6
Vinnumálastofnun
spáir nú færri
nýjum störfum í ár
WOW air
» Rekstrartap var um 4,8
milljarðar íslenskra króna frá
júlí 2017 til júní 2018.
» Eigið fé félagsins nam rúm-
lega einum og hálfum milljarði
króna í lok júní.
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Rekstrartap (EBIT) flugfélagsins
WOW air nam um 45 milljónum
bandaríkjadala, jafngildi 4,8 millj-
arða íslenskra króna, á tólf mánaða
tímabili frá júlí 2017 til júní 2018, að
því er fram kemur í fjárfestakynn-
ingu sem Morgunblaðið hefur undir
höndum. Rekstrarspá fyrir árið 2018
í heild sinni gerir ráð fyrir rekstr-
artapi upp á 28 milljónir dala, sem
nemur um 3 milljörðum íslenskra
króna.
Eigið fé WOW air í lok júní var 14
milljónir dala, um 1,5 milljarðar
króna. Skúli Mogensen, forstjóri og
eigandi WOW air, vildi ekki tjá sig
um efni kynningarinnar en hann leit-
ar nú fjárfesta til að fjármagna fé-
lagið. Er ráðgert að ljúka fjármögn-
unarferlinu undir lok mánaðarins.
Samkvæmt kynningunni er stefnt
að útgáfu skuldabréfa fyrir 500-1000
milljónir sænskra króna, jafngildi 6-
12 milljarða íslenskra króna, sem
ætlað er til að endurfjármagna
skuldir og brúa fjárþörf fram að
frumútboði félagsins, sem stefnt er
að innan 18 mánaða.
WOW leitar aukins fjármagns
Rekstrartap flugfélagsins WOW air nemur um 4,8 milljörðum króna á síðustu
tólf mánuðum Félagið leitar fjármagns fram að frumútboði innan 18 mánaða
MRekstrartap WOW air.. » .16
Jákvæð Katrín Björk lítur bjartsýn
fram á veginn þrátt fyrir erfiðleika.
„Þótt mínu maraþoni sé hvergi
nærri lokið mun styrkurinn sem þið
hafið gefið mér nýtast mér út það
allt. Reykjavíkurmaraþonið gerði
kraftaverk fyrir mig, og þegar ég
verð orðin nógu kraftmikil ætla ég
að hlaupa og láta gott af mér leiða
og þá vonandi gera kraftaverk rétt
eins og gert var fyrir mig,“ skrifar
Katrín Björk Guðjónsdóttir á
bloggsíðu sína. Hún lamaðist í
heilaáföllum fyrir rúmum þremur
árum en þakkar stuðningi sem hún
fékk í Reykjavíkurmaraþoninu í
kjölfarið að bataferlið hófst.
Katrín er 25 ára gömul og þótt
hún geti ekki talað eða gengið
hjálparlaust getur hún skrifað á
bloggsíðu sína án hjálpar. Þar segir
hún frá bataferli sínu og leggur
áherslu á að miðla jákvæðum hugs-
unum. Í nýjustu færslunni fjallar
hún meðal annars um Reykjavíkur-
maraþonið og áhrif stuðnings
hlauparanna og fólksins sem hét á
hana. „Það má því segja að hlaup-
ararnir hafi hlaupið í mig kraft því í
framhaldinu fóru kraftaverkin að
gerast,“ segir Katrín í samtali við
Morgunblaðið. »9
Kraftaverk eftir maraþon
Stuðningurinn hafði góð áhrif á Katrínu Björk
„Ég berst á fáki fráum fram um veg,“ segir í
kvæðinu góða en ekki er ljóst hvort hópur reið-
manna hefur raulað eða verið ofarlega í huga
ljóð Hannesar Hafsteins, Sprettur, er hópurinn
tölti í gegnum Heiðmörk í gær. Ótal reiðstígar
liggja um hið mikla og vinsæla útivistarsvæði í
Heiðmörk og því tilvalið að skella sér í hestaferð
með góðu fólki til þess að njóta skaplegs veðurs
og þeirrar fjölbreyttu náttúru sem er á svæðinu.
Ferðamannahópur á fráum fákum á ferð um Heiðmörk
Morgunblaðið/Eggert
Á stærsta og einu vinsælasta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins finna allir eitthvað við sitt hæfi
Einstæð móðir
sem Morg-
unblaðið ræddi
við er í miklum
vandræðum
vegna þess að
sonur hennar fær
ekki fulla vistun
á frístundaheim-
ili í Reykjavík í
vetur. Vegna
manneklu er
ekki hægt að bjóða öllum börnum í
fyrsta til fjórða bekk fulla vistun.
Skrifstofustjóri frístundamála hjá
Reykjavíkurborg er bjartsýnn á að
fleiri ráði sig bráðlega til starfa. »2
Mannekla á frí-
stundaheimilum
Kátir Krakkar að
leik í veðurblíðu.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Elliði Vignisson, nýr sveitarstjóri
Ölfuss, segir sveitarfélagið vera afar
ósátt við þá töf sem orðið hefur á af-
greiðslu Skipulagsstofnunar á til-
lögu að nýju deiliskipulagi fyrir
Hveradalasvæðið.
Elliði bendir á í samtali við
Morgunblaðið í dag að þær fram-
kvæmdir sem Hveradalir ehf. vilji
ráðast í á Hveradalasvæðinu, þ.e.
gerð baðlóns og bygging hótels, séu
gríðarlega umfangsmiklar og muni
hafa umtalsverð áhrif á ferðaþjón-
ustu m.a. í Ölfusi.
„Ég gæti trúað að það lægi nærri
að bara fyrsti áfangi væri fjárfesting
upp á vel á þriðja milljarð króna og
heildarframkvæmdin hátt í sex millj-
arðar króna,“ sagði Elliði.
Hann segir mikilvægi þess að fara
eftir leikreglum og virða mikilvægi
umsagnar- og eftirlitsaðila ríkisins
ljóst en á sama hátt verði eftirlits-
kerfið að vera meðvitað um vald sitt
og mikilvægi og koma með öllum
leiðum í veg fyrir að það valdi skaða,
seinki eða hindri góð verk. » 4
Gagnrýnir Skipulags-
stofnun fyrir tafir