Morgunblaðið - 15.08.2018, Page 6

Morgunblaðið - 15.08.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 Lífrænar mjólkurvörur • Engin aukaefni • Meira af Omega-3 fitusýrum • Meira er af CLA fitusýrum sem byggja upp vöðva og bein • Ekkert undanrennuduft • Án manngerðra transfitusýra www.biobu.is Mangó jógúrt Fimm góðar ástæður til að velja lífræna jógúrt Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Þeir voru að veiða nálægt landi innarlega á firðinum og ég hef feng- ið símtöl út af þessu frá sjómönnum og öðrum bæjarbúum sem fannst bátarnir vera komnir fullnálægt,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, for- maður byggðaráðs Skagafjarðar, um dragnótaveiðar tveggja báta við Sauðárkrók í gærmorgun. Hann segir að þessar veiðar hafi áhrif á lífríkið í firðinum og menn hafi áhyggjur af uppeldisstöðvum fiskins. Þá verði lítið eftir handa þeim smábátum sem hafi verið að veiða á þessu svæði. Ekkert hlustað á okkur Stefán rifjar upp að undir lok síð- asta árs hafi banni á dragnótaveið- um á innanverðum Skagafirði verið aflétt. Byggðaráð og sveitarstjórn hafi mótmælt breytingunni harðlega og ráðherra og ráðuneyti verið skrifað bréf. Þar hafi meðal annars verið óskað eftir að ákvörðuninni yrði breytt á ný og áfram yrði mið- að við línu miklu utar í firðinum, frá Fagranesi í Kolkuós. „Því miður var ekkert hlustað á okkur,“ segir Stef- án Vagn. „Við vorum á aukafundi í byggða- ráði í morgun og fylgdumst með bátunum, sem voru nálægt landi og reyndar nálægt hafnarsvæðinu. Formlega fjölluðum við ekki um veiðarnar á þessum fundi en ég tel alveg klárt að við munum senda er- indi til ráðuneytisins aftur og ítreka beiðni okkar um að komið verði til viðræðna við okkur. Það hlýtur að vera hægt að finna einhverja leið og færa línuna utar.“ Óánægja með veiðar í dragnót nálægt landi  Vilja færa línuna utar í Skagafirði  Var breytt í fyrra Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vinnumálastofnun (VMST) áætlar að 2.000 til 2.500 störf verði til í ár. Spáin hefur því verið endurmetin til lækk- unar. Til samanburðar áætlaði stofn- unin í byrjun árs að 2.500 til 3.000 ný störf yrðu til á þessu ári. Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá VMST, segir tölur fyrstu sjö mánaða ársins benda til að færri störf hafi orðið til í ferðaþjónustu en spáð var. Samkvæmt nýrri júlískýrslu VMST var 2,2% atvinnuleysi í júlí en 1,8% atvinnuleysi í júlí í fyrrasumar. „Heildarfjölgun starfa virðist ætla að vera heldur minni en við áætluð- um í ársbyrjun. Hún gæti orðið nærri 2.000 störfum. Það er vöxtur í hag- kerfinu en hann er hins vegar hægari en síðustu ár. Ferðaþjónusta er í toppi og þar er farið að draga úr um- svifum og ráðningum.“ Gangi spáin eftir verða um 196.000 störf á vinnumarkaði að jafnaði á árinu 2018 en 194.000 í fyrra. Fjölgun hjá hinu opinbera Hann segir að hins vegar hafi störfum í byggingariðnaði haldið áfram að fjölga. Þá hafi störfum fjölgað töluvert hjá hinu opinbera. Þ.e. störfum í heilbrigðis- og fé- lagsþjónustu annars vegar og fræðslustarfsemi og opinberri stjórn- sýslu hins vegar. Þess sé að vænta að starfsfólki í heilbrigðisgeiranum muni fjölga frekar. Kallað sé eftir meiri þjónustu. Þá sé eldri Íslending- um að fjölga, sem aftur kallar á meiri heilbrigðis- og félagsþjónustu. Karl segir hægari vöxt ferðaþjón- ustu eiga þátt í minnkandi eftirspurn eftir erlendu vinnuafli. Jafnvel minnkandi eftirspurn „Það virðist sem eftirspurnin eftir starfsfólki í gegnum starfsmanna- leigur hafi náð jafnvægi og sé jafnvel byrjuð að minnka,“ segir Karl og bætir við að vinnumarkaður sé að komast í jafnvægi. Tímabil umfram- eftirspurnar eftir vinnuafli sé liðið. „Mörg fyrirtæki halda að sér höndum og reyna að nýta betur starfsfólkið,“ segir Karl. VMST áætlar að 1.750 ný störf verði til á næsta ári og 1.500 árið 2020, en fyrri spá gerði ráð fyrir 2.000 nýjum störfum árið 2019 og 1.900 störfum árið 2020. Þarna mun- ar um 650 störfum. Spáir nú minni fjölgun starfa í ár  Sérfræðingur Vinnumálastofnunar áætlar að nærri 2.000 störf verði til í ár  Lækkun frá fyrri spá  Stofnunin spáði í ársbyrjun að allt að 3.000 ný störf yrðu til í ár  Ferðaþjónustan þarf færra fólk 8 6 4 2 0 -2 -4 -6 -8 -10 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18* ’19* ’20* .000 -600 5.100 8.200 7.700 1.600 -11.100 -600 0 1.900 5.600 2.800 6.000 6.900 3.100 2.000 1.750 1.500 22.600 Fjölgun starfa 2005 til 2008 31.550 Fjölgun starfa 2012 til 2020 Breyting á fjölda starfandi milli ára 2004 til 2020* samkvæmt áætlun Vinnumálastofnunar *Spá fyrir 2018 miðað við fyrstu sjö mánuði ársins Meiri óvissa er um spá fyrir 2019-2020 Heimild: Vinnumálastofnun Lísbet Sigurðardóttir lisbet@mbl.is „Maður passar sig bara að vera ekki á svæðinu og annað er svo sem ekki hægt að gera, held ég. Þetta er bara náttúran,“ segir Finnbogi Leifsson, bóndi í Hítardal, um sprunguna hef- ur myndast við skriðusárið í Fagra- skógarfjalli í Hítardal. Sprungan uppgötvaðist um síð- ustu helgi þegar starfsmenn Land- helgisgæslunnar voru við æfingar í dalnum. Sprungan er skammt frá brotsári framhlaupsins sem féll 7. júlí síðastliðinn. Skriðan fór yfir Hítará og stíflaði hana með þeim af- leiðingum að lón myndaðist fyrir of- an skriðutunguna. Spildan sem skriðan afmarkar mun að öllum lík- indum falla ofan á framhlaupsurðina sem myndaðist þegar skriðan féll en spildan er á bilinu 50-150 þúsund rúmmetrar að sögn Veðurstofunnar. „Óvissan er alltaf óþægileg, í hverju sem er náttúrulega. Og þetta er sérstaklega vont fyrir þá bændur sem nota þetta beitiland hér fyrir vestan. Þeir hafa jafnan rekið féð beint niður úr fjallinu en geta það væntanlega ekki núna,“ segir Finn- bogi og bendir á að þeir taki einfald- lega ekki þá áhættu að reka féð nið- ur í grennd við skriðusárið ef spildan skyldi hrynja. Þurfi þeir því að fara aðra leið en áður við smölun í haust. Þegar blaðamaður og ljósmyndari nálguðust skriðusárið við lónið sem skriðan myndaði, leið ekki á löngu þar til drunur tóku að heyrast og allmikill reykur steig upp úr fjallinu. Náttúruöflin eru áþreifanleg í Hítardal og setur skriðusárið mark sitt á dalinn. Algengt er að hreyf- ingar eða hrun eigi sér stað í sárum þar sem framhlaup hafa orðið en Veðurstofan hefur varað við ferðum fólks í næsta nágrenni við skriðuna. Óvissan mjög óþægileg fyrir íbúana  Sprungan við skriðusárið í Fagraskógarfjalli í Hítardal kallar á varkárni  Sérstaklega óþægilegt fyrir bændur sem eiga beitiland í grennd  Drunur heyrðust frá fjallinu þegar blaðamenn voru þar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Skriða Útlit er fyrir að önnur skriða falli úr Fagraskógarfjalli í Hítardal innan tíðar. Sprunga hefur myndast í fjallinu. Hættuástand er því á staðnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.