Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 Styrmir Gunnarsson skrifar:   Fyrir áratug undirbjó þáver-andi forysta Sjálfstæðis- flokksins aðgerðir til þess að breyta afstöðu flokksins til aðildar að Evrópusamband- inu. Þau áform komu ekki alveg í ljós fyrr en snemma árs 2009 en fóru út um þúfur vegna mikillar andstöðu í grasrót flokksins.“    Styrmir bendir svo á að nú erannað mál á ferðinni af sama toga, sem er að koma til ESB „yf- irráðum yfir einni af helztu auð- lindum Íslendinga, orku fallvatn- anna.    Nú hafa engar vísbendingarkomið fram um, að núver- andi forystu Sjálfstæðisflokksins detti í hug að samþykkja þennan pakka, nema ein grein eftir vara- formann flokksins í Morgun- blaðinu. Hún veldur áhyggjum um að þetta sé ekki allt á hreinu og er að því leyti í ætt við grein, sem birtist eftir tvo, þá unga, þing- menn flokksins, í Fréttablaðinu í desember 2008.    Rúmum mánuði seinna var þá-verandi forystu Sjálfstæðis- flokksins orðið ljóst að hún mundi ekki komast upp með að breyta stefnu flokksins og taka upp stuðning við aðild að Evrópusam- bandinu. Fyrir utan þessa einu blaðagrein hefur ekkert komið fram, sem bendir til þess að áþekk áform og þá fóru út um þúfur séu í farvatninu nú.    En það er skynsamlegt fyrir nú-verandi forystu Sjálfstæðis- flokksins að átta sig á að hreyfing sjálfstæðissinna innan Sjálfstæðis- flokksins er sterk.“ Styrmir Gunnarsson Að gefnu tilefni STAKSTEINAR Veður víða um heim 14.8., kl. 18.00 Reykjavík 12 skýjað Bolungarvík 14 skýjað Akureyri 14 rigning Nuuk 11 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Ósló 17 skýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Stokkhólmur 16 súld Helsinki 19 skýjað Lúxemborg 21 skýjað Brussel 21 léttskýjað Dublin 19 skýjað Glasgow 17 rigning London 23 heiðskírt París 24 heiðskírt Amsterdam 19 skýjað Hamborg 22 léttskýjað Berlín 23 skýjað Vín 24 skýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 25 heiðskírt Madríd 32 heiðskírt Barcelona 28 heiðskírt Mallorca 29 skýjað Róm 24 léttskýjað Aþena 30 heiðskírt Winnipeg 16 skýjað Montreal 25 skúrir New York 22 þoka Chicago 27 þoka Orlando 31 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 15. ágúst Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 5:20 21:46 ÍSAFJÖRÐUR 5:11 22:05 SIGLUFJÖRÐUR 4:53 21:48 DJÚPIVOGUR 4:46 21:19 Ármúla 24 - s. 585 2800 Stjórnandi báts sem lagðist að bryggju í Vest- mannaeyjum á mánudagskvöld var undir áhrif- um fíkniefna. Örlítið af fíkniefnum fannst um borð í bátnum. Þetta staðfesti lögreglan í Vest- mannaeyjum, sem framkvæmdi ít- arlega leit í bátnum. „Það vöknuðu grunsemdir um að stjórnandi bátsins væri undir áhrifum vímuefna og nú hefur sá grunur verið staðfestur,“ segir Jó- hannes Ólafsson, yfirlögreglu- þjónn í Vestmannaeyjum. Að sögn Jóhannesar kom bát- urinn til Vestmannaeyja frá Fær- eyjum í fyrrakvöld en upphaflega kom hann frá Noregi. Um borð í bátnum voru tveir menn en stjórnandinn var einn undir áhrifum vímuefna að sögn Jóhannesar. ge@mbl.is Vestmannaeyja- höfn  Örlítið af fíkniefn- um fannst um borð Skipstjóri undir áhrifum Níu fyrrverandi starfsmenn Hvals hf. hafa stefnt fyrirtækinu fyrir hér- aðsdóm. Verkalýðsfélag Akraness fer með sjö þeirra mála. „Þetta eru mál sem eru með nákvæmlega sama hætti og málið sem vannst fyrir Hæstarétti. Þau eru byggð á sama grunni; orðalagi í ráðningarsamn- ingum og vikulegum frídegi sem Hæstiréttur er búinn að staðfesta. Ég geri fastlega ráð fyrir því að við munum vinna þessi mál líka,“ sagði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, í samtali við mbl.is í gær. Hval hf. var gert að greiða fyrr- verandi starfsmanni sínum rúmar 500 þúsund krónur vegna brota á kjarasamningum, í kjölfar dóms Hæstaréttar frá 14. júní. Starfsmað- urinn höfðaði málið vegna launa sem voru ekki í samræmi við kjarasamn- ing Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins, sem Verkalýðsfélag Akraness á aðild að, en maðurinn starfaði í hvalstöðinni sumarið 2015. „Við fórum með þetta eina mál á sínum tíma sem prófmál og núna er- um við að reyna að fara með þessi sjö mál sem munu þá endurspegla allan fjöldann. Hjá okkur eru þetta tæplega 100 manns. Fordæmisgildi þessa dóms getur numið allt að 250 til 300 milljónum króna,“ sagði Vil- hjálmur við mbl.is. axel@mbl.is Fyrrverandi starfsmenn stefna Hval hf.  Verkalýðsfélag Akraness fer með sjö málanna  Félagið gerir ráð fyrir sigri Morgunblaðið/Golli Mál Formaður VLFA er bjartsýnn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.