Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
Staðalbúnaður í Comfort útgáfu er meðal annars: 16” álfelgur, leiðsögukerfi með Íslandskorti,
þokuljós, miðstöð með loftkælingu, brekkuhemlun (eingöngu í 4x4), hraðastillir með
hraðatakmörkun, fjarlægðarskynjarar að aftan, neyðarhemlunarhjálp, start/stopp búnaður,
skyggðar rúður að aftan, hiti í framsætum.
Aukalega í Prestige útgáfu: 17” álfelgur, Multiview 360° myndavélakerfi, sjálfvirk miðstöð með
loftkælingu, lykillaust aðgengi, leðuráklæði á sætum.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
7
8
0
8
Nýr Dacia Duster
Gerðu virkilega góð kaup!
Sjálfskiptur, framhjóladrifinn
Verð frá:
3.650.000 kr.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
7
8
0
8
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Katrín Björk Guðjónsdóttir, 25 ára
kona sem er í bataferli eftir þrjú
heilaáföll sem hún fékk fyrir þrem-
ur árum, segir að sá samhugur og
velvilji sem hún fann þegar safnað
var fyrir styrktarsjóð hennar í
Reykjavíkurmaraþoninu nokkrum
mánuðum eftir að hún fékk alvar-
legasta áfallið hafi veitt henni styrk
til að takast á við framhaldið. Þeg-
ar hlaupið fór fram var hún nýlega
komin úr öndunarvél og eftir
hlaupið gat hún hreyft vinstri
höndina. „Það má því segja að
hlaupararnir hafi hlaupið í mig
kraft því í framhaldinu fóru krafta-
verkin að gerast,“ skrifar Katrín í
samtali við Morgunblaðið. Hún ætl-
ar sjálf að taka þátt í Reykjavík-
urmaraþoninu þegar hún verður
komin með getu til þess að halda
jafnvægi og ganga eða hlaupa.
Skrifar jákvæðar hugsanir
Liður í bataferli Katrínar eru
skrif hennar á bloggsíðuna katr-
inbjorkgudjons.com. Þar skrifar
hún á jákvæðan hátt um það
hvernig lífið er hjá 25 ára konu í
bataferli eftir þrjú heilaáföll. „Það
eru þrjú ár núna, 14. júní, síðan ég
fékk stærsta áfallið. Það skildi mig
eftir sem 22 ára gamla stelpu sem
lifði af stóra heilablæðingu og
heilaskurðaðgerð en það þarf meira
til að slökkva alla þá drauma, þrár
og væntingar sem fylgja bæði mér
og aldrinum en þegar ég vaknaði
þá hafði ég engan vöðvakraft,“
skrifar Katrín í nýjustu færslunni.
Fyrstu vikurnar var hún í önd-
unarvél sem dældi ofan í hana lofti.
„Á þessum þremur árum hafa svo
endalaust margir sigrar unnist þótt
ég nái ekki ennþá að mynda skilj-
anleg orð og hafi ekkert jafnvægi
og geti því hvorki talað né gengið.
Þrátt fyrir að ég nái hvorki að tala
né ganga án hjálpar frá einhverjum
öðrum þá get ég setið við tölvuna
og skrifað hjálparlaust niður allar
jákvæðar hugsanir, óskir og vænt-
ingar mínar.
Ég skrifa á þann hátt að veikindi
mín eru ekki eitthvert aðalatriði
hjá mér. Ég skrifa bara sem stelpa
í blóma lífsins, ég vil með þessum
skrifum mínum vera innblástur og
sýna fólki að þrátt fyrir að maður
sé með hömlur þá geti allir komist
þangað sem þeir ætla sér. Ég er 25
ára gömul stelpa sem talar með því
að stafa á stafaspjaldi og ég hef
svo lítið jafnvægi að ég nota hjóla-
stól. Þrátt fyrir það dreymir mig
stórt og ég stefni hátt.“
Lífið hékk á bláþræði
Katrín Björk var 21 árs þegar
hún fékk sína fyrstu heilablæðingu
og hún var það lítil að henni fannst
varla ástæða til að foreldrar henn-
ar gerðu sér ferð frá Flateyri suð-
ur til Reykjavíkur. Höggið kom tíu
dögum síðar þegar hún fékk blóð-
tappa og missti við það allan kraft
hægra megin í líkamanum. „Ég
lifði næstu sjö mánuði í kvíðamóðu,
dansandi taugaveiklaðan og ótta-
fullan dans við lífið. Þá fékk ég
aðra heilablæðingu og hún var svo
stór að það þótti undur að ég vakn-
aði eftir aðgerðina, þótt það væri
reyndar rúmum sólarhring of seint.
Þá gat ég hreyft annað augað en
ég gat þó hreyft annað augað. Vik-
urnar í kjölfarið voru erfiðar, líf
mitt hékk á bláþræði,“ skrifar
Katrín.
Veitti mér styrk
Hún víkur að ótrúlegum stuðn-
ingi, samhug og velvilja sem hún
fékk í gegnum hlaupara og áheit
fólks í Reykjavíkurmaraþoninu sem
fór fram tíu vikum eftir að hún
fékk áfallið. „Ég fann allan kraftinn
og þetta veitti mér endalausan
styrk til að takast á við framhaldið.
Í kjölfarið fóru kraftaverkin að
gerast. Ég er svo innilega þakklát
öllum sem hlupu fyrir Styrktarsjóð
Katrínar Bjarkar og öllum sem
hétu á hlauparana, það var gífur-
legur fjöldi fólks, sem skilaði sjóðn-
um í fyrsta sæti yfir félög sem
styrktu einstaklinga. En þetta er
ekki keppni heldur er það hugurinn
sem gildir. Árangurinn var ótrúleg-
ur og eftir Reykjavíkurmaraþonið
fóru vöðvarnir mínir að vakna og
ég er sannfærð um að krafturinn
sem þið veittuð mér hafi haft mikið
að segja í því.
Þótt mínu maraþoni sé hvergi
nærri lokið mun styrkurinn sem
þið hafi gefið mér nýtast mér út
það allt. Reykjavíkurmaraþonið
gerði kraftaverk fyrir mig, og þeg-
ar ég verð orðin nógu kraftmikil
ætla ég að hlaupa og láta gott af
mér leiða og þá vonandi gera
kraftaverk rétt eins og gert var
fyrir mig. Ég er svo innilega þakk-
lát!“ skrifar Katrín á bloggsíðu
sína.
Hlaupararnir hlupu í mig kraft
Katrín Björk Guðjónsdóttir, sem lamaðist við þrjú heilaáföll fyrir þremur árum, segir að bataferlið
hafi byrjað í Reykjavíkurmaraþoninu 2015 Kraftaverkin fóru að gerast í framhaldinu
Af stað Katrín Björk Guðjónsdóttir segist hafa fengið mikinn kraft í veik-
indum sínum þegar hún fann samhug og velvilja í söfnun áheita í Reykja-
víkurmaraþoninu árið 2015. Vöðvarnir hafi farið að vakna í kjölfarið.