Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 12

Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 VEIÐIHNÍFAR Í ÚRVALI VERÐ FRÁ 3 475 -. . Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is Opið virk a dag a frá 9-18 lau frá 1 0-16 Ný vefvers lun brynja.i s GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Hipphopphátíð Menning-arnætur í Reykjavíkverður haldin í þriðjaskiptið á laugardaginn á Ingólfstorgi og mætti þar með segja að hún sé orðin fastur liður. Hún hef- ur frá upphafi verið afar vel sótt og það sem kemur e.t.v. mest á óvart er að hún var hugarfóstur manns sem fæddist árið 2001. „Þegar ég fékk hugmyndina í byrjun hringdi ég strax í vini mína úr Hagaskóla sem hafa staðið að þessu með mér og okkur tókst að fá leyfi fyrir viðburðinum. Menn voru voða hissa þegar við mættum á fund hjá borginni, bjuggust eflaust við að hitta einhverja fullorðna, en svo komum bara við drengirnir,“ segir Snorri Ástráðsson, MH-ingur og sjálflærður plötusnúður, en Morgunblaðið tók hann tali þar sem hann var staddur erlendis. Samhentir vinir úr skóla Með honum í ár standa saman að hipphopphátíðinni þeir Jason Daði Guðjónsson, Róbert Vilhjálmur Ás- geirsson, Egill Orri Árnason og Úlfur Stígsson, fæddir árið 2000. Viðburð- inn héldu þeir fyrst árið 2016 á Hverf- isgötu við Vatnsstíg og sló hann held- ur betur í gegn, en þar mættu um fjögur þúsund manns. Í fyrra sóttu þeir aftur um og fengu að vera á Ing- ólfstorgi og tókst hátíðin með slíkum ágætum að um sex þúsund manns mættu þegar mest var, að sögn Snorra, sem þakkar það m.a. mætti samfélagsmiðla. Aldurshópurinn sem mæti í stórum stíl sé frá tólf til um það bil 26 ára, en fólk á öllum aldri hafi mætt. Hipphopphátíðin verður aftur á Ingólfstorgi í ár. „Dagskráin er stút- full af bestu röppurum landsins og við búumst jafnvel við enn fleiri gestum en síðast,“ segir Snorri, en rapp- ararnir JóiPé & Króli, Sura, Yung Nigo Drippin’, Huginn, ClubDub, Jo- ey Christ, Sturla Atlas, Birnir og Flóni munu troða upp ásamt gestum úr Dansi Brynju Péturs, sem byrja, en dagskrá hátíðarinnar er frá kl. 18 til 22. „Við reynum að bóka fjöl- breyttan hóp úr senunni til að það sé eitthvað fyrir alla gestina,“ segir Snorri um dagskrána. Spurður hvort hann þekki lista- mennina segir Snorri: „Ég hef verið plötusnúður fyrir u.þ.b. helminginn af þeim, en svo hef ég unnið með útgáfu- fyrirtæki að útgáfu og dreifingu á tónlistinni þeirra, en bróðir minn, Eg- ill Ástráðsson, er umboðsmaður þeirra, hann er framkvæmdastjóri hjá Retro Stefson og Loga Pedro,“ segir Snorri, sem segir reynsluna af þessu stússi bestu kennslu í „brans- anum“ sem völ er á. Um helstu áskoranir við að halda viðburðinn segir Snorri: „Það er auðvitað fjármögnunin. Það er ekki hægt að gera mikið ef maður er ekki með peninga til að borga fyrir það og við viljum reyna að borga fólki fyrir vinnuna sína. Við reynum að safna eins miklu og við getum; bóka fundi, hafa samband við fyrirtæki og fá styrktaraðila. Svo er að tala við tónlistarmennina, en þar eru hæg heimatökin.“ Snorri segir að þrátt fyrir að ýmislegt geti komið upp á sé þetta mjög skemmtilegt og þeir félagarnir sjái sig ekki fyrir sér vera að gera neitt annað á Menningarnótt. Hipphopp í uppsveiflu í dag „Hipphopp hefur verið á mikilli uppleið undanfarin ár. Ísland er svo lítið, það þekkjast allir og hipphopp- menningin hérna er svolítið frábrugð- in þeirri sem þekkist úti í heimi þegar kemur að rappi. En það eru svo sem allir að reyna að gera sitt,“ segir Snorri, aðspurður um senuna hér- lendis. Um hvort hipphopp sé vinsælt á Íslandi segir Snorri: „Ef maður skoð- ar Ísland á helstu streymisveitum heims þá er nánast bara hipphopp þar. Maður sér það hjá ungu fólki, sem er aðalmarkhópur tónlistar- manna í dag, að þar er hipphopp vin- sælast.“ En hipphopp, eða rapp, sem tón- listar- og tískustefna er ekki nýtt af nálinni heldur rekur uppruna sinn til loka áttunda áratugarins í New York. „Hipphopp hefur verið að þróast undanfarin ár og áratugi, það tekur á sig nýjar myndir með tímanum, hlut- irnir breytast,“ segir Snorri, sem seg- ir að tískan og dansinn fylgi með og taki einnig á sig ný form. „Stefnan hefur risið hratt núna; fyrir þremur eða fjórum árum var þetta ekki neittneitt og eftir þrjú til fjögur ár gæti það aftur verið orðið þannig. Maður veit aldrei hvernig þetta sveiflast.“ Hipphopphátíðin orðin fastur liður Stórhuga ungir vinir halda nú í þriðja sinn hipp- hopphátíð á Menningarnótt, en uppátækið sló ræki- lega í gegn frá byrjun og er sótt af þúsundum gesta, þar sem úrval rappara Íslands ber menninguna á borð. Morgunblaðið/Eggert Menningarfrumkvöðlar Egill Orri, Úlfur, Jason Daði og Róbert Vilhjálmur, en Snorri er staddur í útlöndum. Ljósmynd/Aðsend Varð að veruleika Hugmynd Snorra Ástráðssonar um hipphopphátíð á Menningarnótt hefur verið vel tekið af gestum og samstarfsaðilum. Vantar þig pípara? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.