Morgunblaðið - 15.08.2018, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér fannst það standa upp úr að
það er sáttahugur í fólki. Vilji til að
ná saman. Mér finnst stjórnvöld tala
þannig til bænda,“ segir Erlendur
Ingvarsson, bóndi í Skarði og for-
maður Félags sauðfjárbænda í
Rangárvallasýslu. Félagið hélt fund
í fyrrakvöld til að kynna tillögur
samráðshóps um endurskoðun bú-
vörusamninga og hvernig þær nýtist
til að bregðast við erfiðleikum í
sauðfjárrækt.
Haraldur Benediktsson, annar af
tveimur formönnum samráðshóps-
ins, kynnti tillögur hans. Á fundinn
komu einnig Kristján Þór Júlíusson
landbúnaðarráðherra og Unnur Brá
Konráðsdóttir, fyrrverandi alþingis-
maður og forseti Alþingis, sem skip-
uð hefur verið formaður samninga-
nefndar ríkisins við endurskoðun
samningsins.
Kristján er að fara í fundaferð um
landið til að kynna málefnið og
heyra sjónarmið bænda og verða
Haraldur og Unnur Brá með í för.
Boðað hefur verið til bændafunda í
Búðardal og Víðihlíð í Húnavatns-
sýslu í dag.
Jákvæðni gagnvart breytingum
„Mér fannst á pólitíkusunum að
það ætti að vanda til verka við end-
urskoðunina. Horfa til samstöðu og
aðgerða til langs tíma. Það þýðir
ekki að hjakka í fari bráðalausna
heldur verður að leysa bráðavand-
ann með því að leysa málin heild-
stætt,“ segir Erlendur.
Hann segir að hugmyndir um
breytingar á stuðningi ríkisins við
sauðfjárbændur þar sem lögð verði
áhersla á búsetugrunn þarfnist nán-
ari útfærslu til þess að hægt sé að
taka afstöðu þeirra. Á fundinum
voru rúmlega 60 manns og segir Er-
lendur að um þriðjungur þeirra hafi
tekið til máls. Taldi hann að enginn
hefði sett sig beinlínis á móti breyt-
ingunni og einhverjir lýst yfir stuðn-
ingi.
Erlendur taldi að sauðfjárbændur
gerðu sér grein fyrir því að menn
fengju ekki afurðaverðshækkun í
haust. Hins vegar yrði að byrja að
fækka fé strax í haust svo hægt yrði
að ná uppsveiflu afurðaverðs á ný.
Ef það tækist ekki væri hætt við að
lítið gerðist á næstu tveimur árum.
Erlendur segir einnig að ekki
megi tala atvinnugreinina niður með
því að tala eingöngu um fækkun fjár.
Nýta verði þau tækifæri til útflutn-
ings sem bjóðist og nefnir hann að
tollasamningur stjórnvalda við Evr-
ópusambandið sé tvíhliða og hann
bjóði upp á tækifæri til útflutnings,
ekki aðeins innflutnings.
Vilji til að ná saman
Fjölmenni á fundi sauðfjárbænda í Rangárvallasýslu með
landbúnaðarráðherra Þarf að ráðast strax í breytingar
Ljósmynd/Kristján Þór Júlíusson
Bændafundur Fjölmenni var á fundi sauðfjárbænda á Laugalandi í Holtum.
Kristinn Guðnason í Árbæjarhjáleigu er fremst fyrir miðju.
„Markmið mitt með þessum fundum er að eiga viðræður
við sauðfjárbændur um stöðu sauðfjárræktarinnar. Heyra
hvernig þeir meta stöðuna og hvaða leiðir þeir sjá til þess
að takast á við þau verkefni sem blasa við,“ segir Kristján
Þór Júlíusson landbúnaðarráðherra. Haraldur Benedikts-
son mun jafnframt kynna tillögur samstarfshóps um end-
urskoðun búvörusamninga.
„Mér fannst fundarmenn taka af velvilja allri viðleitni
til að brjótast út úr núverandi stöðu. En verkefnið er ærið
að vöxtum og engin ein borðliggjandi tillaga hefur komið
fram. Hún er heldur ekki auðfundin,“ segir ráðherra.
Spurður hvort hægt verði að grípa til aðgerða strax í haust segir Kristján
að í gildi sé búvörusamningur og hann gildi þar til samkomulag hafi náðst
um breytingar. Hugsanlegar breytingar kunni að kalla á lagabreytingar og
það taki sinn tíma. „Staðan í sauðfjárræktinni er þannig að við eigum ekki
að horfa til lausna sem bráðabirgðaúrræða heldur leita lausna sem duga til
lengri tíma. Það er í mínum huga stóra verkefnið,“ segir Kristján.
Leita lausna til lengri tíma
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA
Kristján Þór
Júlíusson
Menningarnótt verður haldin í 23.
skipti næstkomandi laugardag, 18.
ágúst, sem er afmælisdagur Reykja-
víkurborgar. Hátíðin verður sett á
hinu nýja Hafnartorgi og þar gefst
gestum kostur á að kynna sér svæð-
ið í kringum torgið og skoða sýningu
af því, en því verður lokað aftur og
ekki opnað fyrr en framkvæmdum
þar lýkur.
Að setningu lokinni rekur hver
menningarviðburðurinn annan víða
um borg. Meðal atriða má nefna
Toppinn, sem er í umsjón listræna
umbreytisins. Það er nýtt embætti
Menningarnætur og því gegnir að
þessu sinni Jóhann Kristófer Stef-
ánsson leikari sem mun breyta efstu
hæð bílastæðahússins við Hverfis-
götu 20 í bar.
Lúðrasveitin Svanur, Lúðrasveit
verkalýðsins og Lúðrasveit Reykja-
víkur munu útkljá áratugalangan ríg
í einvígi við Tjörnina, Færeyingar
verða sérlegir gestir hátíðarinnar og
í miðborginni verður boðið upp á
þrenna stórtónleika: tónleika Rásar
2 á Arnarhóli, garðpartí Bylgjunnar
í Hljómskálagarðinum og hipphopp-
tónleika á Ingólfstorgi. Því til við-
bótar verða yfir hundrað tónlistar-
viðburðir um alla borg.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
ætlar ekki að halda vöfflukaffi fyrir
gesti og gangandi á Menningarnótt í
ár líkt og hann hefur gert síðustu tíu
ár. „Þetta var í tíunda skipti síðast
og við ákváðum að taka pásu núna
og sjá hvað er í boði á Menningar-
nótt,“ sagði borgarstjóri kíminn í
samtali við mbl.is og sagði fjölskyldu
sína spennta fyrir að prófa eitthvað
nýtt í ár.
Frítt verður inn á öll söfn í mið-
borginni, dagskrá verður í Hörpu
frá kl. 13 til 18 og flugeldasýning
verður að vanda við Austurbakka kl.
23. solrun@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Menningarnótt Myndin var tekin í fyrra, þá var mikil stemning og búist er
við því að hún verði ekki síðri í ár. Menningarnótt er nú haldin í 23. skipti.
Fjölbreytt menn-
ing um alla borg
Engar borgarstjóravöfflur í ár
Viðbúnaður lögreglu og öryggisgæsla á Menningarnótt verður með svip-
uðum hætti nú og í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu. Fram kom í fréttum á síðasta ári að unnið hefði verið
samkvæmt aðgerðaplani, sem tók m.a. mið af atburðum sem nýlega höfðu
átt sér stað í Barselóna þar sem bíl var ekið inn í mannfjölda á göngugöt-
unni Römblunni. Unnið verður eftir sama aðgerðaplani í ár.
„Þetta er allt með sama hætti og í fyrra,“ sagði Ágúst Svansson, aðal-
varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Hann
vildi þó ekki meina að meiri viðbúnaður hefði verið í fyrra en árin þar á und-
an, heldur hefði umfjöllun um viðbúnaðinn verið meiri en áður.
Götum verður m.a. lokað með bílum til að tryggja að viðbragðsaðilar
komist inn á hátíðasvæðið, ef þarf.
Ágúst, sem nú mun standa vaktina á Menningarnótt í 21. sinn, vildi ekki
gefa upp hversu margir lögregluþjónar verða á vakt á Menningarnótt, en
sagði að nóg yrði af þeim. Þá vildi hann lítið gefa upp um útbúnað lögreglu
eða hvort lögreglumenn yrðu vopnaðir.
Svipuð öryggisgæsla og áður
Á VAKTINNI Á MENNINGARNÓTT Í 21. SKIPTI
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
GÓÐ HEYRN
GLÆÐIR SAMSKIPTI!
Með þeim heyrist talmál sérstaklega vel
vegna þess að þau þekkja tal betur
en önnur tæki.
Tæknin sem
þekkir tal
Nýju ReSound LiNX 3D
eru framúrskarandi heyrnartæki
ReSound LiNX3
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki