Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
LÍTILL TÍMI FYRIR
RÆKTINA?
Við höfum lausnina!
Kynntu þér haustafsláttinn á jsb.is
15. ágúst 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 108.43 108.95 108.69
Sterlingspund 138.55 139.23 138.89
Kanadadalur 82.78 83.26 83.02
Dönsk króna 16.585 16.683 16.634
Norsk króna 12.969 13.045 13.007
Sænsk króna 11.917 11.987 11.952
Svissn. franki 109.42 110.04 109.73
Japanskt jen 0.9769 0.9827 0.9798
SDR 150.48 151.38 150.93
Evra 123.65 124.35 124.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.8558
Hrávöruverð
Gull 1204.4 ($/únsa)
Ál 2038.5 ($/tonn) LME
Hráolía 73.0 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Greiningardeildir
spá því að vísitala
neysluverðs hækki
um 0,3-0,4% í
ágúst og að verð-
bólga breytist lítið.
Hagstofa íslands
birtir neysluvísitölu
næst hinn 30.
ágúst.
Arion banki gerir
ráð fyrir 0,3%
hækkun og að ársverðbólga haldist því
áfram 2,7%. Íslandsbanki spáir hins
vegar 0,4% hækkun og 2,8% árs-
verðbólgu.
Arion banki segir að áhrifaliðir á verð-
bólguna í ágúst séu áhugafólki um verð-
bólgu vel kunnar. Til hækkunar megi
helst nefna sumarútsölur sem ganga til
baka, en aðrir liðir sem hækka séu fast-
eignaverð, ýmsar innfluttar vörur, mat-
væli, hótel og veitingastaðir. Á móti vegi
að flugfargjöld lækki umtalsvert eins og
þau geri venjulega í ágúst.
Spá lítilli breytingu á
verðbólgu í ágúst
Verð Sumarútsölur
ganga nú til baka.
STUTT
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Á tólf mánaða tímabili frá júlí 2017
til júní 2018 nemur rekstrartap flug-
félagsins WOW air um 45 milljónum
bandaríkjadala, jafngildi um 4,8
milljarða króna, fyrir fjármagns-
gjöld og skatta (EBIT). Kemur
þetta fram í fjárfestakynningu fyrir
skuldabréfaútgáfu sem leidd verður
af norska fjárfestingarbankanum
Pareto Securities og Morgunblaðið
hefur undir höndum. Áður hefur
komið fram að rekstrartap WOW
air á árinu 2017 nam 13,5 milljónum
bandaríkjadala fyrir skatta og fjár-
magnsgjöld.
Samkvæmt kynningunni er stefnt
að útgáfu skuldabréfa fyrir 500-1000
milljónir sænskra króna, jafngildi 6-
12 milljarða íslenskra króna, sem
tryggð verða meðal annars með öllu
hlutafé félagsins og dótturfélaga.
Skuldabréfin yrðu til þriggja ára og
er ætlað að endurfjármagna skuldir
og brúa fjárþörf fram að frumútboði
félagsins, sem stefnt er að innan 18
mánaða.
Spá umskiptum
í afkomu 2019
Áætlanir fyrir árið 2018 sem sett-
ar eru fram í kynningunni gera ráð
fyrir því að tap verði á rekstrinum
fyrir fjármagnsgjöld, afskriftir og
skatta (EBITDA) sem nemur sex
milljónum dala á þessu ári. Til sam-
anburðar var EBITDA jákvæð um
fjórar milljónir á árinu 2017. Þá er
gert ráð fyrir að EBIT verði nei-
kvæð sem nemur 28 milljónum dala
á þessu ári, eða sem nemur þremur
milljörðum íslenskra króna.
WOW air áætlar um 16% vöxt í
tekjum af flugmiðum á þessu ári og
um 22% aukningu á næsta ári.
Samkvæmt spá félagsins í kynn-
ingunni er gert ráð fyrir að
EBITDA á árinu 2019 verði hag-
stæð um 64 milljónir dala og EBIT
um 42 milljónir dala.
Eigið fé 1,5 milljarðar króna
Að því er fram kemur í skulda-
bréfakynningunni nam eigið fé
WOW air í lok júní á þessu ári 14
milljónum bandaríkjadala, jafn-
gildi um 1,5 milljarða íslenskra
króna. Eins og fram kom í Morg-
unblaðinu í gær hefur Skúli
Mogensen styrkt eigið fé félagsins
um tvo milljarða króna með því að
færa eignarhlut sinn í Cargo Ex-
press inn í WOW air auk þess sem
hann breytti kröfum sínum á
hendur félaginu í eigið fé. Hluta-
fjáraukningin var gerð á öðrum
ársfjórðungi, samkvæmt upplýs-
ingum frá félaginu.
Þá kemur fram að félagið hefur
fengið sex milljóna dala víkjandi
hluthafalán á fyrri árshelmingi.
Þess má geta að eigið fé WOW air
í lok síðasta árs nam 40 milljónum
dala, rúmum 4,3 milljörðum
króna.
Þarf einnig aukið hlutafé
Fram kemur að skuldabréfa-
útgáfan leggur ýmsar kvaðir á út-
gefandann og er meðal annars
sett það skilyrði að eigið fé WOW
air sé að lágmarki 25 milljónir
dala og vaxi um fimm milljónir
dala á ári yfir lánstímann. Það er
því ljóst að félagið þarf jafnframt
að sækja aukið hlutafé áður en til
skuldabréfaútgáfunnar kemur.
Úr efnahagsreikningi félagsins
um mitt árið má sjá að fyrirfram-
greiddar tekjur flugfélagsins vaxa
umtalsvert frá áramótum. Þá
námu þær 73 milljónum dala en
voru komnar í 149 milljónir dala í
lok júní, jafngildi um 16 milljarða
króna. Þetta endurspeglar miklar
árstíðasveiflur í fyrirframgreidd-
um tekjum flugfélaga þar sem
flestar flugferðir eiga sér stað um
og eftir mitt árið.
Rekstrartap WOW air 4,8
milljarðar á 12 mánuðum
Flug Lággjaldaflugfélagið WOW air stefnir að útgáfu skuldabréfa fyrir jafngildi 6-12 milljarða íslenskra króna.
Eigið fé 1,5 milljarðar króna Skuldabréf eiga að brúa fjárþörf fram að frumútboði
Afli íslenskra skipa árið 2017 var
tæplega 1.177 þúsund tonn, 109 þús-
und tonnum meira en árið 2016. Afla-
verðmæti fyrstu sölu var um 110
milljarðar króna og dróst saman um
17,3% frá fyrra ári. Þetta kemur
fram á vef Hagstofunnar.
Tæplega 426 þúsund tonn af botn-
fiski veiddust á árinu 2017 sem er 30
þúsund tonnum minna en árið 2016.
Nam aflaverðmæti botnfisksafla
rúmum 76 milljörðum króna í fyrra
og dróst saman um 17,7% frá fyrra
ári.
Samdráttur í þorskveiðum var
5,4% í magni og 16,0% í aflaverðmæti
á milli ára. Alls veiddust 250 þúsund
tonn af þorski á síðara ári og nam
verðmæti hans 49 milljörðum króna.
Mest magn veiddist af uppsjávar-
tegundum eins og jafnan. Um 718
þúsund tonn veiddust árið 2017 sem
er aukning um 143 þúsund tonn mið-
að við árið 2016. Mest munar þar um
ríflega 89 þúsund tonna aukningu í
loðnuafla og 42 þúsund tonna aukn-
ingu á kolmunna. Árið 2017 nam
verðmæti uppsjávarfisks 23,8 millj-
örðum króna og dróst það saman um
14,6% frá árinu 2016 er aflaverðmæt-
ið nam 28 milljörðum króna.
Tæplega 22 þúsund tonn af flat-
fiski veiddust árið 2017 sem er 8,4%
samdráttur frá því í fyrra en verð-
mæti flatfiskafurða nam tæpum 7,5
milljörðum króna og dróst það sam-
an um 17,3% miðað við árið í fyrra.
Af skel- og krabbadýrum veiddust
10,6 þúsund tonn sem er 15,5% sam-
dráttur frá árinu 2016. Verðmæti
skel- og krabbadýraafurða dróst
einnig saman og nam rúmum 2,4
milljörðum króna samanborið við
tæpa 3,5 milljarða árið 2016.
peturhreins@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Útgerð Samdráttur var í þorsk-
veiðum 2017 frá árinu á undan.
Verðmæti afla
dróst saman 2017
Afli íslenskra
skipa jókst þó um
109 þúsund tonn