Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
Vogur Þorpið í Flatey í Breiðafirði er sérlega litfagurt. Bláa húsið sem speglast hér í Grýluvogi heitir Vogur. Jón Guðmundsson kaupmaður reisti það árið 1885 og það var lengi bústaður presta.
Eggert
Í byrjun komandi árs
verða 25 ár frá því að
samningurinn um Evr-
ópska efnahagssvæðið
– EES – tók gildi. Um
tvennt verður vart
deilt: Samningurinn
hefur tryggt Íslandi
öruggan og nauðsyn-
legan aðgang að mik-
ilvægum erlendum
mörkuðum en um leið
haft meiri áhrif á íslenskt samfélag
en nokkur reiknaði með. Samning-
urinn hefur tekið svo miklum breyt-
ingum að ekki er hægt að bera hann
saman við það sem upphaflega var
lagt upp með. Framsal valdheimilda
hefur orðið meira en nokkurn óraði
fyrir og því miður er íslenskt sam-
félag að breytast hægt en örugglega í
reglugerðarsamfélag. Hvorki al-
menningur né kjörnir fulltrúar á Al-
þingi, eiga möguleika á að móta
regluverkið með beinum hætti, nema
í besta falli mjög takmarkað.
Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn
er frá gildistöku EES-samningsins
hafa verið gerðir tugir bókana og yfir
20 viðaukar hafa tekið gildi og þeim
síðan breytt eða við þá bætt. Þannig
hefur samningurinn tekið miklum
breytingum í samræmi við þróun
reglna Evrópusambandsins sem falla
undir efnissvið EES. Sameiginlega
EES-nefndin tekur ákvörðun um
hvort nýjar reglur/tilskipanir sem
framkvæmdastjórn ESB gerir tillögu
um, varði efnissvið EES-samnings-
ins, í hvaða viðauka gerðin skuli tekin
upp og með hvaða hætti staðið skuli
að aðlögun að EES-samningnum.
Ef ákvörðun sameiginlegu EES-
nefndarinnar kallar á lagabreytingar
er gerður stjórnskipulegur fyrirvari
sem þýðir að ákvörðunin tekur ekki
gildi fyrr en EFTA-ríki EES hafa af-
létt fyrirvaranum. Aðeins Alþingi
getur aflétt stjórn-
skipulegum fyrirvara
fyrir hönd Íslands. Án
undantekninga hefur
það verið gert. Með öðr-
um orðum: Í 25 ár hefur
Alþingi aldrei látið
reyna á stjórn-
skipulegan fyrirvara
sem þó var og er ein
helsta forsenda þess að
samningurinn var sam-
þykktur hér á landi í
upphafi.
Alþingi hefur síðasta orðið
Stjórnskipulegur fyrirvari þýðir
einfaldlega að Alþingi á síðasta orðið,
eins og Bjarni Benediktsson, formað-
ur Sjálfstæðisflokksins og fjár-
málaráðherra, benti á 22. mars síð-
astliðinn, þegar hann svaraði
óundirbúinni fyrirspurn á Alþingi um
þriðju orkutilskipun Evrópusam-
bandsins. Hann benti á að samkvæmt
stjórnskipunarlögum sé ekki heimilt
að „skuldbinda Ísland við samninga-
borðið úti í Brussel án aðkomu Al-
þingis“. Þetta sé aðalatriðið.
Bjarni Benediktsson hefur ítrekað
lýst því yfir að tímabært sé að Alþingi
taki til skoðunar stöðu EFTA-
ríkjanna á grundvelli EES-
samningsins. Í umræðum um lög um
afleiðuviðskipti í febrúar síðast-
liðnum benti hann á að Íslendingar
stæðu frammi fyrir því „í hverju mál-
inu á eftir öðru, það er nánast orðinn
árlegur viðburður, að Evrópusam-
bandið krefst þess þegar við tökum
upp Evrópugerðir, tilskipanir eða
reglugerðir, að við Íslendingar fellum
okkur við að sæta boðvaldi, úr-
slitavaldi, sektarákvörðunum eða
með öðrum hætti skipunum frá al-
þjóðastofnunum sem Evrópusam-
bandið hefur komið sér upp en við
eigum enga aðild að“. Með þessu sé
vegið að grunnstoðum EES-
samningsins og tveggja stoða kerf-
inu.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra hefur gagnrýnt Evrópu-
sambandið fyrir að grafa undan
tveggja stoða kerfinu, með svipuðum
hætti og formaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Tveggja stoða kerfið sé kjarni
EES-samningsins og feli í sér að að-
ildarríki samningsins sem standa ut-
an Evrópusambandsins skuli heyra
undir stofnanir á vegum EFTA en
ekki sambandsins. Utanrík-
isráðherra hefur auk þess gagnrýnt
harðlega þá sem berjast fyrir aðild
Íslands að Evrópusamningnum fyrir
að tala niður EES-samninginn til að
ná fram pólitískum markmiðum sín-
um.
Undarleg og vond staða
Í júní stóð Alþingi frammi fyrir
þeirri undarlegu og vondu stöðu að
samþykkja innleiðingu reglugerðar
Evrópusambandsins um persónu-
vernd með lagasetningu áður en sam-
eiginlega EES-nefndin hafði lokið
umfjöllun sinni. Við atkvæðagreiðsl-
una benti Bjarni Benediktsson á „að
einn af kostum samstarfsins um Evr-
ópska efnahagssvæðið er að öll ríkin
geti komið sér saman um mikilvæga
löggjöf á sviði eins og þessu,“ en
bætti síðan við:
„Það sem hefur hins vegar skort á í
umræðunni á þinginu að mínu áliti er
að það er alvarlegt fyrir okkur Ís-
lendinga og Alþingi að sú staða geti
komið upp að fyrirtæki á Íslandi og
almenningur lendi í vandræðum
vegna innleiðingar á Evrópulöggjöf
áður en málið hefur verið afgreitt í
sameiginlegu nefndinni, að við eigum
í hættu á að lenda í verulegum vand-
ræðum í samskiptum við önnur Evr-
ópusambandsríki á Evrópska efna-
hagssvæðinu áður en málið hefur
einu sinni verið afgreitt í sameig-
inlegu nefndinni.“
Persónuverndarlögin – óháð góð-
um ásetningi og aukinni vernd ein-
staklinga – eru dæmi um þær ógöng-
ur sem EES-samningurinn hefur
ratað í og undirstrikar mikilvægi
þess að fram fari endurskoðun á
samningnum líkt og formaður Sjálf-
stæðisflokksins hefur lagt til. Brestir
í tveggja stoða kerfinu og ásælni Evr-
ópusambandsins að beita stöðugt
meira boðvaldi gagnvart fullvalda
ríkjum EFTA sem eiga aðild að
samningnum, leggur þær skyldur á
herðar íslenskra stjórnvalda að beita
sér fyrir endurskoðun.
En fleira þarf að koma til.
Aukinn meiri hluti þingsins
Líkt og bent var á í áfangaskýrslu
stjórnarskrárnefndar 2005-2007, var
aðildin að EES á sínum tíma ekki tal-
in fela í sér framsal ríkisvalds – hún
væri heimil án breytinga á stjórn-
arskrá. Um þetta var raunar deilt.
En eftir því sem EES-samningurinn
hefur þróast og orðið víðtækari hefur
hins vegar reynt stöðugt meira á
„þanþol“ stjórnarskrárinnar þegar
kemur að framsali valds. Í skýrslunni
segir enn fremur: „Mat fræðimanna
á því hvort aðild að EES væri heimil
án breytinga á stjórnarskrá byggðist
á því að stjórnarskráin heimilaði tak-
markað framsal ríkisvalds með samn-
ingum um einstök málefni. Í þessu
sambandi hafa fræðimenn bent á að
þótt takmarkað framsal ríkisvalds
með samningum um einstök málefni
hafi verið talið samrýmanlegt stjórn-
arskránni sé fyrirsjáanlegt að aukin
alþjóðleg samvinna, einkum milli
Evrópuríkja, muni kalla á frekara
framsal ríkisvalds. Að því kunni að
koma að talið verði að framsal hafi átt
sér stað í of ríkum mæli miðað við
reglur stjórnarskrárinnar eins og
þær eru nú.“
Við erum komin að þeim mörkum í
EES-samstarfinu að framsal hefur
„átt sér stað í of ríkum mæli“. Þess
vegna er nauðsynlegt að skýrt
ákvæði sé í stjórnarskrá um framsal
valds – ekki til að útvíkka heimildir
heldur þvert á móti að þrengja þær.
Framsal valds verður að einskorða
við afmörkuð svið og byggja á þeirri
forsendu að íslenska ríkið hafi jafna
stöðu á við önnur ríki í alþjóðlegu
samstarfi. Við framsal valds verður
að styðjast við aukinn meiri hluta Al-
þingis – að lágmarki 2/3. Nauðsyn-
legt er að tryggja möguleika minni-
hluta þingsins til að vísa ákvörðun um
framsal í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Í áfangaskýrslu stjórnarskrár-
nefndar 2013-2016, undir forystu Sig-
urðar Líndals, prófessors emeritus,
kemur fram að nefndin sé sammála
um að framsal ríkis „hljóti eðli máls-
ins samkvæmt að vera afturkræft frá
sjónarhóli íslenskrar stjórnskipunar,
enda væri önnur niðurstaða ósam-
rýmanleg fullveldi ríkisins“. Jafnvel
þótt þingmenn hafi þetta alltaf í huga
standa rök til þess að árétta þennan
fullveldisrétt með sérstöku ákvæði í
stjórnarskrá.
Fátt er eyþjóð mikilvægara en að
eiga greiðan aðgang að erlendum
mörkuðum. Þess vegna er EES-
samningurinn okkur mikilvægur. En
forsenda þess að við getum tekið þátt
í víðtæku alþjóðlegu samstarfi er að
sett verði ákvæði í stjórnarskrá um
framsal valdheimilda með þeim hætti
sem hér er rætt um. En um leið verða
Íslendingar að vera reiðubúnir og
hafa burði til að láta reyna á fullveld-
isrétt sinn sem er tryggður í EES-
samningnum, að minnsta kosti í orði.
Eftir Óla Björn
Kárason » Alþingi hefur aldrei
látið reyna á stjórn-
skipulegan fyrirvara
sem þó var og er helsta
forsenda þess að EES-
samningurinn var sam-
þykktur í upphafi.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Fullveldisréttur smáþjóðar og alþjóðlegt boðvald