Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 Vogur Þorpið í Flatey í Breiðafirði er sérlega litfagurt. Bláa húsið sem speglast hér í Grýluvogi heitir Vogur. Jón Guðmundsson kaupmaður reisti það árið 1885 og það var lengi bústaður presta. Eggert Í byrjun komandi árs verða 25 ár frá því að samningurinn um Evr- ópska efnahagssvæðið – EES – tók gildi. Um tvennt verður vart deilt: Samningurinn hefur tryggt Íslandi öruggan og nauðsyn- legan aðgang að mik- ilvægum erlendum mörkuðum en um leið haft meiri áhrif á íslenskt samfélag en nokkur reiknaði með. Samning- urinn hefur tekið svo miklum breyt- ingum að ekki er hægt að bera hann saman við það sem upphaflega var lagt upp með. Framsal valdheimilda hefur orðið meira en nokkurn óraði fyrir og því miður er íslenskt sam- félag að breytast hægt en örugglega í reglugerðarsamfélag. Hvorki al- menningur né kjörnir fulltrúar á Al- þingi, eiga möguleika á að móta regluverkið með beinum hætti, nema í besta falli mjög takmarkað. Á þeim aldarfjórðungi sem liðinn er frá gildistöku EES-samningsins hafa verið gerðir tugir bókana og yfir 20 viðaukar hafa tekið gildi og þeim síðan breytt eða við þá bætt. Þannig hefur samningurinn tekið miklum breytingum í samræmi við þróun reglna Evrópusambandsins sem falla undir efnissvið EES. Sameiginlega EES-nefndin tekur ákvörðun um hvort nýjar reglur/tilskipanir sem framkvæmdastjórn ESB gerir tillögu um, varði efnissvið EES-samnings- ins, í hvaða viðauka gerðin skuli tekin upp og með hvaða hætti staðið skuli að aðlögun að EES-samningnum. Ef ákvörðun sameiginlegu EES- nefndarinnar kallar á lagabreytingar er gerður stjórnskipulegur fyrirvari sem þýðir að ákvörðunin tekur ekki gildi fyrr en EFTA-ríki EES hafa af- létt fyrirvaranum. Aðeins Alþingi getur aflétt stjórn- skipulegum fyrirvara fyrir hönd Íslands. Án undantekninga hefur það verið gert. Með öðr- um orðum: Í 25 ár hefur Alþingi aldrei látið reyna á stjórn- skipulegan fyrirvara sem þó var og er ein helsta forsenda þess að samningurinn var sam- þykktur hér á landi í upphafi. Alþingi hefur síðasta orðið Stjórnskipulegur fyrirvari þýðir einfaldlega að Alþingi á síðasta orðið, eins og Bjarni Benediktsson, formað- ur Sjálfstæðisflokksins og fjár- málaráðherra, benti á 22. mars síð- astliðinn, þegar hann svaraði óundirbúinni fyrirspurn á Alþingi um þriðju orkutilskipun Evrópusam- bandsins. Hann benti á að samkvæmt stjórnskipunarlögum sé ekki heimilt að „skuldbinda Ísland við samninga- borðið úti í Brussel án aðkomu Al- þingis“. Þetta sé aðalatriðið. Bjarni Benediktsson hefur ítrekað lýst því yfir að tímabært sé að Alþingi taki til skoðunar stöðu EFTA- ríkjanna á grundvelli EES- samningsins. Í umræðum um lög um afleiðuviðskipti í febrúar síðast- liðnum benti hann á að Íslendingar stæðu frammi fyrir því „í hverju mál- inu á eftir öðru, það er nánast orðinn árlegur viðburður, að Evrópusam- bandið krefst þess þegar við tökum upp Evrópugerðir, tilskipanir eða reglugerðir, að við Íslendingar fellum okkur við að sæta boðvaldi, úr- slitavaldi, sektarákvörðunum eða með öðrum hætti skipunum frá al- þjóðastofnunum sem Evrópusam- bandið hefur komið sér upp en við eigum enga aðild að“. Með þessu sé vegið að grunnstoðum EES- samningsins og tveggja stoða kerf- inu. Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra hefur gagnrýnt Evrópu- sambandið fyrir að grafa undan tveggja stoða kerfinu, með svipuðum hætti og formaður Sjálfstæðisflokks- ins. Tveggja stoða kerfið sé kjarni EES-samningsins og feli í sér að að- ildarríki samningsins sem standa ut- an Evrópusambandsins skuli heyra undir stofnanir á vegum EFTA en ekki sambandsins. Utanrík- isráðherra hefur auk þess gagnrýnt harðlega þá sem berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusamningnum fyrir að tala niður EES-samninginn til að ná fram pólitískum markmiðum sín- um. Undarleg og vond staða Í júní stóð Alþingi frammi fyrir þeirri undarlegu og vondu stöðu að samþykkja innleiðingu reglugerðar Evrópusambandsins um persónu- vernd með lagasetningu áður en sam- eiginlega EES-nefndin hafði lokið umfjöllun sinni. Við atkvæðagreiðsl- una benti Bjarni Benediktsson á „að einn af kostum samstarfsins um Evr- ópska efnahagssvæðið er að öll ríkin geti komið sér saman um mikilvæga löggjöf á sviði eins og þessu,“ en bætti síðan við: „Það sem hefur hins vegar skort á í umræðunni á þinginu að mínu áliti er að það er alvarlegt fyrir okkur Ís- lendinga og Alþingi að sú staða geti komið upp að fyrirtæki á Íslandi og almenningur lendi í vandræðum vegna innleiðingar á Evrópulöggjöf áður en málið hefur verið afgreitt í sameiginlegu nefndinni, að við eigum í hættu á að lenda í verulegum vand- ræðum í samskiptum við önnur Evr- ópusambandsríki á Evrópska efna- hagssvæðinu áður en málið hefur einu sinni verið afgreitt í sameig- inlegu nefndinni.“ Persónuverndarlögin – óháð góð- um ásetningi og aukinni vernd ein- staklinga – eru dæmi um þær ógöng- ur sem EES-samningurinn hefur ratað í og undirstrikar mikilvægi þess að fram fari endurskoðun á samningnum líkt og formaður Sjálf- stæðisflokksins hefur lagt til. Brestir í tveggja stoða kerfinu og ásælni Evr- ópusambandsins að beita stöðugt meira boðvaldi gagnvart fullvalda ríkjum EFTA sem eiga aðild að samningnum, leggur þær skyldur á herðar íslenskra stjórnvalda að beita sér fyrir endurskoðun. En fleira þarf að koma til. Aukinn meiri hluti þingsins Líkt og bent var á í áfangaskýrslu stjórnarskrárnefndar 2005-2007, var aðildin að EES á sínum tíma ekki tal- in fela í sér framsal ríkisvalds – hún væri heimil án breytinga á stjórn- arskrá. Um þetta var raunar deilt. En eftir því sem EES-samningurinn hefur þróast og orðið víðtækari hefur hins vegar reynt stöðugt meira á „þanþol“ stjórnarskrárinnar þegar kemur að framsali valds. Í skýrslunni segir enn fremur: „Mat fræðimanna á því hvort aðild að EES væri heimil án breytinga á stjórnarskrá byggðist á því að stjórnarskráin heimilaði tak- markað framsal ríkisvalds með samn- ingum um einstök málefni. Í þessu sambandi hafa fræðimenn bent á að þótt takmarkað framsal ríkisvalds með samningum um einstök málefni hafi verið talið samrýmanlegt stjórn- arskránni sé fyrirsjáanlegt að aukin alþjóðleg samvinna, einkum milli Evrópuríkja, muni kalla á frekara framsal ríkisvalds. Að því kunni að koma að talið verði að framsal hafi átt sér stað í of ríkum mæli miðað við reglur stjórnarskrárinnar eins og þær eru nú.“ Við erum komin að þeim mörkum í EES-samstarfinu að framsal hefur „átt sér stað í of ríkum mæli“. Þess vegna er nauðsynlegt að skýrt ákvæði sé í stjórnarskrá um framsal valds – ekki til að útvíkka heimildir heldur þvert á móti að þrengja þær. Framsal valds verður að einskorða við afmörkuð svið og byggja á þeirri forsendu að íslenska ríkið hafi jafna stöðu á við önnur ríki í alþjóðlegu samstarfi. Við framsal valds verður að styðjast við aukinn meiri hluta Al- þingis – að lágmarki 2/3. Nauðsyn- legt er að tryggja möguleika minni- hluta þingsins til að vísa ákvörðun um framsal í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í áfangaskýrslu stjórnarskrár- nefndar 2013-2016, undir forystu Sig- urðar Líndals, prófessors emeritus, kemur fram að nefndin sé sammála um að framsal ríkis „hljóti eðli máls- ins samkvæmt að vera afturkræft frá sjónarhóli íslenskrar stjórnskipunar, enda væri önnur niðurstaða ósam- rýmanleg fullveldi ríkisins“. Jafnvel þótt þingmenn hafi þetta alltaf í huga standa rök til þess að árétta þennan fullveldisrétt með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá. Fátt er eyþjóð mikilvægara en að eiga greiðan aðgang að erlendum mörkuðum. Þess vegna er EES- samningurinn okkur mikilvægur. En forsenda þess að við getum tekið þátt í víðtæku alþjóðlegu samstarfi er að sett verði ákvæði í stjórnarskrá um framsal valdheimilda með þeim hætti sem hér er rætt um. En um leið verða Íslendingar að vera reiðubúnir og hafa burði til að láta reyna á fullveld- isrétt sinn sem er tryggður í EES- samningnum, að minnsta kosti í orði. Eftir Óla Björn Kárason » Alþingi hefur aldrei látið reyna á stjórn- skipulegan fyrirvara sem þó var og er helsta forsenda þess að EES- samningurinn var sam- þykktur í upphafi. Óli Björn Kárason Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Fullveldisréttur smáþjóðar og alþjóðlegt boðvald

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.