Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 ✝ Pálína JónaÁrnadóttir fæddist 24. apríl 1924. Hún lést 3. ágúst 2018. Foreldrar henn- ar voru Árni Stefán Jónsson, f. 4.3. 1889, d. 19.5. 1956, bóndi á Ásmund- arstöðum og Hösk- uldarnesi og síðar póst- og símstöðv- Árni Árnason, f. 23.1. 1920, d. 8.4. 2011, Þorbjörg Árnadóttir, f. 3.3. 1922, d. 25.1. 2005, og Þórarinn Árnason, f. 6.3. 1929, d. 13.7. 1997. Pálína var fædd á Raufarhöfn og var næstyngst sex systkina. Hún fór í húsmæðraskóla Suð- urlands á Laugavatni veturinn 1944-1945. Seinna fór hún í Fóstruskólann og útskrifaðist hún árið 1953. Hún starfaði mestan sinn starfsaldur í leik- skólum í Reykjavík og var for- stöðukona meðal annars í Aust- urborg, Álftaborg og Garðaborg. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 15. ágúst 2018, klukkan 13. arstjóri á Raufar- höfn, og Þórhildur Guðnadóttir, f. 9.4. 1893, d. 24.11. 1975, húsmóðir og hannyrðakona. Pál- ína átti fimm systk- ini en þau voru Jón Þórhildarson Árna- son, f. 22.10. 1915, d. 3.4. 1981, Guðna Árnason, f. 2.11. 1917, d. 1.6. 1981, Nú er hún elsku Nabba mín farin. Búin að kveðja okkur eft- ir langt en farsælt líf 94 ára gömul. Margar tilfinningar vakna, bæði sorg og söknuður en einnig þakklæti yfir því að hafa notið návistar við hana í svona mörg ár. Frá því að ég fæddist hefur Nabba alltaf ver- ið allt um kring í mínu lífi. Mamma og hún unnu saman sem fóstrur í mörg ár, voru góðar vinkonur og brölluðu mikið saman á árum áður. Nabba var ógift og barnlaus en ég held að hún hafi upplifað mömmu sem fósturdóttur sína og mig þá sem ömmustelpuna sína, enda vorum við nöfnur. Eftir að ég eignaðist mína eigin fjölskyldu hefur hún verið í hlutverki ömmu og langömmu í mínu fjölskyldulífi. Hún var sjálfstæð, örlát og mikil barna- kona, enda vann hún á leik- skólum meirihluta starfsævinn- ar. Hún hafði yndi af leikhúsferðum og að hlusta á tónlist, ekki síst klassíska enda átti hún mikið og merkilegt plötusafn. Þó sagðist hún ekki hafa nokkurt vit á tónlist og vera alveg laglaus. Ég hef ekki verið mikið meira en fjögurra ára þegar ég fór á fyrstu sin- fóníutónleikana með henni og samkvæmt Nöbbu stóð ég mig vel, svaf sæl yfir tónlistinni, reis svo upp og klappaði á milli. Nabba hafði mjög ákveðnar skoðanir á mörgum málefnum og hélt ávallt sínu striki þótt aðrir væru eitthvað að malda í móinn, en aldrei lastaði hún neinn. Allir höfðu eitthvað til síns ágætis. Nabba var mikil hannyrðakona, prjónaði, heklaði og saumaði út. Hún var einnig mikill lestrarhestur og átti margar bækur og fannst gaman að gefa bókagjafir. Hún var einnig ótrúlegur dótasafnari og hafði gaman af því að dreifa dótinu allt í kringum sig. Var alltaf að reyna að koma röð og reglu á hlutina svo hún þyrfti ekki alltaf að vera að leita að einhverju sem hana vantaði og sem hún vissi að var til en fann samt ekki. Samverustundir okk- ar urðu alltaf fleiri með árunum og voru yngstu synir mínir litlir gullmolar í hennar augum. Kynni mín af Nöbbu gáfu mér gott veganesti inn í framtíðina og er ég mjög þakklát fyrir það. Hvíl í friði, elsku Nabba mín, og ég veit að þú munt vaka yfir mér og mínum. Minningarnar munu lifa með okkur. Pálína Árnadóttir og fjölskylda. Pálína Jóna Árnadóttir ✝ Sigríður Þor-björg Bjarney Ólafsdóttir frá Krók í Selárdal í Arn- arfirði fæddist 22. september 1922. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Seljahlíð 7. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru Ólafur Oddur Ólafsson, f. 5. nóv- ember 1890, d. 24. júlí 1970, og Guðrún Þuríður Þorbergsdóttir, f. 9. desember 1901, d. 10. júlí 1972. Systkini Þorbjargar eru Ragnar, f. 21. ágúst 1927, El- ísabet Auður, f. 27. júlí 1930, og Ragnheiður Katrín, f. 5. sept- ember 1939, d. 15. maí 2018. Hinn 6. september 1953 giftist Þorbjörg Sigurði Ingibergi dór Karl Hermannsson, f. 6. des- ember 1958. Maki Guðrúnar var Sigurður Hafþór Sigurðsson, f. 9. maí 1955, d. 15. desember 1998. Börn þeirra: a) Eva Björg, f. 27. maí 1978, maki Rafn Franklín Arnarson, f. 7. mars 1978, börn þeirra: Hafþór Örn, f. 2003, Hilm- ir Rafn, f. 2005, Heimir Karl, f. 2010, og Ísey Ólöf, f. 2017. b) Þröstur Þór, f. 3. ágúst 1988, í sambúð með Berglindi Ósk Krist- jánsdóttur, f. 1. desember 1989, c) sonur Halldórs: Guðmundur Ágúst, f. 1996. 3) Magnfríður Sig- ríður, f. 23. ágúst 1959, maki Ólafur Ólafsson, f. 5. maí 1957. Börn Magnfríðar með fyrri eigin- manni sínum, Þorleifi Jónassyni, eru: a) Jónas Ingi, f. 5. nóvember 1981, maki Kristin Björfelt, f. 30. ágúst 1980, börn þeirra: Sindri Sigurd, f. 2007, og Silja Rós, f. 2011. b) Jóhann Þórir, f. 17. júní 1985, maki Anna Sigríður Islind, f. 21. september 1985. Börn þeirra: Ninja Tíbrá, f. 2006, Skuggi Nóel, f. 2009, og Myrra Kókó, f. 2010. c) Birgitta Bjarney Guðmunda, f. 13. mars 1990, sambýlismaður Edvin Lennarts- son, f. 23. apríl 1990. Börn þeirra: Viðar Leví Lennart, f. 2013, og Vilda Amalía Magnfríður, f. 2016, d) sonur Ólafs: Ólafur, f. 18. ágúst 1991, í sambúð með Drífu Huld Guðjónsdóttur, f. 11. mars 1993. 4) Þórir, f. 23. ágúst 1959, d. 23. júlí 1982. 5) Sigurður Krist- inn, f. 3. janúar 1962. 6) Guðni Birgir, f. 3. janúar 1962, sam- býliskona hans er Hjördís Bech Ásgeirsdóttir, f. 9. júní 1960. Börn þeirra: a) Edith Soffía Sig- ríður, f. 30. september 1992, sam- býlismaður Baldur Már Guð- mundsson, f. 1991, börn þeirra: Mikael Helgi, f. 2017, og Drau- mey Lilja, f. 2018, barn Edithar: Jasmine Ösp, f. 2013, faðir George W. Tuers. b) Rakel Ösp, f. 21. ágúst 1994, sambýlismaður Adam Bouazzati, f. 1988, sonur Ismael Aron, f. 2015 c) Benjamín Aron, f. 8. ágúst 1997. Börn Hjör- dísar: Páll, f. 1979, og Stella Sif, f. 1986. Útför Þorbjargar fer fram í Grafarvogskirkju í dag, 15. ágúst 2018, og hefst athöfnin kl. 13. Bergssyni, f. 17. september 1926, d. 14. nóvember 2007. Foreldrar hans voru hjónin Guðbjörg Bjarnadóttir, f. 11. september 1883, d. 10. janúar 1964, og Bergur Bjarnason, f. 20. janúar 1899, d. 26. júní 1979. Systk- ini Sigurðar voru Þóra, f. 1923, d. 2014, og Snorri, f. 1925, d. 1988. Börn Þorbjargar og Sigurðar: 1) Bjarni Guðbergur, f. 12. maí 1953, barnsmóðir hans er Arna Hulda Jensdóttir, f. 24. mars 1959. Sonur Bergur Arnór, f. 21. apríl 1983, börn Huldu: Hrafn- hildur, f. 1975, og Róbert, f. 1977. 2) Guðrún Ólöf, f. 24. júlí 1956, sambýlismaður hennar er Hall- Elsku mamma, nú hefur þú lok- ið þinni vegferð hér á jörð. Þú hef- ur lifað langa ævi og ert ábyggi- lega hvíldinni fegin. Mamma var fædd á Neðribæ í Selárdal í Arn- arfirði, en þegar hún var átta ára fluttist fjölskyldan að Krók í sama dal. Hún var elst fjögurra systkina og byrjaði snemma að vinna. Fljót- lega fékk hún það starf að reka kýrnar og var það löng leið, gat farið upp í tvær klukkustundir að sækja þær á kvöldin. Upp úr tví- tugsaldrinum fór hún suður til Reykjavíkur til þess að vinna, en kom í mörg ár heim á sumrin til að hjálpa til við heyskap. Mamma og pabbi kynntust í Reykjavík og hófu búskap þar en fluttu síðan vestur á Þingeyri, en þaðan var pabbi, og bjuggu þau þar í um sjö ár. Börnin komu til sögunnar og urðum við alls sex, þar af tvennir tvíburar á rúmum tveimur árum. Því var ærið nóg að gera á stóru heimili og ekki síst þau ár sem pabbi var á sjó og mamma stóð vaktina með okkur börnin. Oft var þröngt í búi en mamma var nýtin og saumaði á okkur föt, bakaði, sultaði, bæði ber og rabarbara, tók slátur og bjó til góðan mömmumat. Mamma var heima- vinnandi þar til yngstu synirnir voru orðnir vel stálpaðir, þá fór hún að vinna hálfan daginn. Mamma og pabbi byggðu sér sum- arbústað við Þingvallavatn og dvöldu þar oft, sérstaklega eftir að þau hættu að vinna. Alltaf var heitt á könnunni og nýbakaðar kleinur þegar komið var við í bústaðnum. Eftir að pabbi lést árið 2007 lögð- ust bústaðaferðir mömmu að mestu niður, bjó hún þá ein, þar til árið 2015 er hún flutti í þjónustu- íbúð í Seljahlíð. Í fyrra fagnaði hún 95 ára afmæli sínu með okkur systkinum, öðrum ættingjum og vinum og eigum við góðar minn- ingar frá þeim degi. Nokkrum dögum fyrir andlátið talaði hún um að nú værir hún að fara heim, heim í dalinn sinn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku mamma, hafðu þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Þínar dætur, Guðrún og Magnfríður. Kveðjustundin er runnin upp. Síðustu misseri hafa verið ömmu erfið, heilsunni farið ört hrakandi og ánægjan af lífinu takmörkuð. Það sem gaf lífi hennar gildi voru heimsóknirnar sem hún fékk. Henni þótti gaman þegar ég kom með krakkana og þá sérstaklega hana litlu Íseyju. Heyrnin var orð- in svo léleg að erfitt var að halda uppi samræðum og þá var gaman að fylgjast með litlunni brasa við kremtúpur og skyrdósir á gólfinu. Eins lifnaði amma við þegar hún fór að segja frá lífinu í Selárdal og hve gaman var að leika álfadrottn- inguna og önnur smáhlutverk á samkomum, eða fylgjast með fólk- inu dansa svo fallega á böllunum í dalnum. Alveg fram á síðasta ár var amma með eindæmum minn- ug. Ég hef alla tíð furðað mig á því hvernig hún hefur getað rakið dag- setningar og ártöl eins og hún læsi þau af bók eða munað nöfn allra þeirra lækna sem hún gekk með börnin til þegar þau voru lítil. Sög- urnar sem hún hefur sagt mér frá í smáatriðum af ævi sinni og lífsbar- áttu hafa verið magnaðar og birst lifandi fyrir sjónum mér. Stundum hefur hvarflað að mér að skrifa bók um hana því hún var svo frá- bær sögumaður. En það verður víst ekki af því. Ævi ömmu var sjaldnast dans á rósum og eftir að þau afi eignuðust fjölskyldu var baráttan oft hörð. Á tímabili var hún heima með fjögur bleyjubörn þar sem hún mátti sjóða bleyjurn- ar í potti í kjallaranum. Og þar af eitt fatlað og mikið veikt barn. Aldrei veit ég til þess að hún hafi kvartað yfir neinu en oft var hún þó að vorkenna mér þegar ég var ein heima með mín börn. Þá minntist ég þess sem þessi kona mátti þola og þakkaði fyrir hvað ég hefði það gott. Á unglingsárunum bjó ég um tíma hjá ömmu og afa í Hólabergi. Minnisstæðust er mér amma í eldhúsinu að stússa í að elda mat. Steiktur fiskur hjá henni var sá allra besti í veröldinni en þó ekki betri en fiskibollurnar. En aldrei mun ég aftur bragða þvílík- ar bollur. Amma og afi bökuðu líka oft og iðulega kleinur. Bestu minn- ingarnar eru þó þær þegar ég var komin upp í rúm á kvöldin og var að fara að sofa, þá opnaðist hljóð- lega hurðin hjá mér og amma stóð í gættinni. Oftast var hún nú ekk- ert sérlega skrafhreifin en á þrösk- uldinum hjá mér gat hún talað. Stundum hugsaði ég með mér hvort hún yrði ekkert þreytt í bak- inu á að standa svona lengi, og stundum var ég hreinlega of þreytt til að hlusta. En þetta tengdi okkur stöllur og við vorum frá þessari tíð mjög góðar vinkonur. Í einni af síð- ustu heimsóknum mínum til ömmu töluðum við um Kötu frænku. Hvort hún væri nú ekki alheilbrigð og glöð í sumarlandinu. Við vorum sammála um að það hlyti hún að vera. En síðan lítur amma á mig og segir „en hvað heldurðu með roll- urnar, Eva, ætli hún hafi fengið að taka þær með sér yfir?“„Ja, jú ...ætli það ekki“, sagði ég og kímdi við henni. En þessar samræður sögðu mér að hún væri sjálf farin að velta fyrir sér þessu með lífið í sumarlandinu. Og ég er ekki í minnsta vafa um að þangað er hún komin, ung og falleg í gulum kjól í örmum hans afa. Ástarkveðja til þín, amma mín, frá mér. Eva Björg Sigurðardóttir. Þorbjörg Ólafsdóttir ✝ RagnheiðurMagðalena Jó- hannsdóttir fæddist á Ósi, Kálfham- arsvík í Austur-- Húnavatnssýslu, 17. júlí 1927. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 4. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru Jóhann Jós- efsson, bóndi á Ósi, f. 21.1. 1892, d. 29.4. 1980, og Rebekka Guðmunds- dóttir, húsmóðir, f. 21.8. 1895, d. 29.9. 1959. Þau eignuðust níu börn, tveir drengir dóu ungir og óskírðir en þau sem komust upp voru: Friðgeir Ingibjörn, f. 27.6. 1920, Kristinn Ágúst, f. 13.6. 1922, Sigurjón Edvard, f. 22.7. 1923, Jós- ef Ófeigur, f. 29.12. 1924, Valdimar Rós- inkrans, f. 1.7. 1929, og Hólmfríður Mar- grét, f. 5.5. 1933. Ragnheiður var síð- ust af þeim systk- inum til að kveðja þennan heim. Ragn- heiður giftist Kristni Magnúsi Guðbjörns- syni, f. 2.8. 1927, d. 23.5. 2005. Börn þeirra eru: Jóhann, dætur hans eru Kristi Jo og Nancy Lyn. Ester, gift Andrési Guðbirni Jónssyni, börn þeirra eru Íris Hrönn og Andri Þór. Barnabarnabörn eru sex. Útför Ragnheiðar fer fram frá Seltjarnarneskirkju í dag, 15. ágúst 2018, klukkan 13. Með fátæklegum orðum langar okkur Guðbjörgu að minnast Rögnu frænku eins og hún var allt- af kölluð. Ragna frænka er síðust systkinanna frá Ósi í Nesjum á Skaga til að kveðja þessa jarðvist. Hægt væri að skrifa heila bók um hana ef því væri að skipta því hún var stórbrotinn persónuleiki. Það sem einkenndi Rögnu var hversu heilsteypt og hrein og bein hún var og sagði sína skoðun umbúðalaust á kjarnyrtu máli og þótti sumum stundum nóg um. Hún ólst upp við fátækt og erfið kjör sem mörkuðu líf hennar. Mínar fyrstu minningar um hana eru þegar hún kom norð- ur í sínar árlegu sumarheimsóknir til afa á Ósi með Kidda manninum sínum og börnunum Jóhanni og Ester. Í fersku minni er dillandi hláturinn í Rögnu þegar pabbi og hún voru stundum að rifja upp gamlar minningar, en þeim kom alltaf sérlega vel saman og gátu al- veg gleymt sér. Kiddi maður Rögnu átti alltaf góðar myndavélar og tók mikið af myndum. Ekki alls fyrir löngu fékk ég að fara í gegn- um myndaalbúmin þeirra og fékk að skanna áhugaverðar myndir sem þau áttu. Eftir að Kiddi maður Rögnu féll frá hélt hún áfram að koma norður eins oft og hún gat og fórum við Guðbjörg oftast með henni að Ósi, þar sem hugur hennar leitaði alltaf til æskustöðvanna. Til gamans má segja sögu af Rögnu er við komum í eitt skipti að hliðinu að afleggjaranum niður að Ósi og Saurum, læstu með keðju og heng- ilás, þá varð hún afar ósátt og þau eru ekki prenthæf orðin sem hún notaði um þennan verknað sem hún taldi kolólöglegan. Næst þegar hún kom norður bað hún mig sérstak- lega að koma með sér út í Nes og lána sér járnsög því það skyldi eng- inn stoppa sig í að fara á æskuslóð- irnar og hróðug var kerla þegar bú- ið vara að saga keðjuna í sundur og fylgdu vel valin orð með. Þegar við komum að Ósi lifnaði yfir Rögnu er hún fór að rifja upp gamlar minn- ingar. Sagði hún okkur margar sög- ur af uppvexti sínum meðan hún dvaldi þarna á Ósi. Lýsti hún allri húsaskipan eins og verið hafði en bæjarhúsin voru löngu hrunin áður. Einu sinni hringdi ég í Rögnu og fékk hana til að fara í ákveðið bíla- umboð fyrir mig því þeir höfðu margoft svikið mig með pöntun á varahlutum í bíl sem ég átti. Ragna brá skjótt við og fór í umboðið og bað bara um viðtal við sjálfan for- stjórann og talaði vel yfir hausa- mótunum á honum. Varahlutirnir komu með fyrstu ferð því forstjór- ann langaði ekki í aðra heimsókn frá henni. Svona var Ragna, alltaf boðin og búin að hjálpa sínu fólki. Ragna hafði alltaf gaman af er við komum í heimsókn til hennar með okkar fólk. Hún var mjög frændrækin. Hún tók líka á móti frændfólki okkar úr Vesturheimi og skipulagði heimsóknir til ætt- ingja hér á landi og fór sjálf tvisvar í heimsóknir vestur. Við þökkum þessari mikilhæfu og ákveðnu konu samfylgdina og allar skemmtilegu heimsóknirnar og símtölin. Við vottum Jóhanni, Ester og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Finnur og Guðbjörg. Ragnheiður Magðalena Jóhannsdóttir Elskuleg frænka okkar, GUÐNÝ BALDVINSDÓTTIR frá Grenjum, andaðist á dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi laugardaginn 11. ágúst. Systkinabörn hinnar látnu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.