Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 ✝ Guðbjörg JónaGuðmundsdótt- ir fæddist í Naust- vík, Árneshreppi í Strandasýslu 5. des- ember 1935. Hún lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 31. júlí 2018. Foreldrar hennar voru Steinunn Guð- mundsdóttir, f. 29.9. 1896, d. 19.2. 1986, og Guð- mundur Árnason, f. 29.5. 1889, d. 2.4. 1972. Steinunn og Guð- mundur voru bændur í Naustvík frá 1916 til 1967. Jóna var áttunda í röð níu systkina. Þau eru: Anna Margrét, f. 29.7. 1917, d. 2.3. 2010; Þórarna Kristjana, f. 8.10. 1919, d. 3.8. 1920; Ingibjörg Kristjana, f. 22.7. 1921, d. 14.11. 2010; Sveinn, f. 14.4. 1923, d. 4.11. 1991; Guðfinna Magney, f. 3.5. 1926, d. 1.1. 2003; Áslaug Halla, f. 22.10. 1929; Kjartan Ólafs, f. 16.4. 1932, og Þóra Kristín, f. 15.12. 1938. Dóttir Guðbjargar Jónu og Magnúsar Þórðarsonar, f. 6.9. 1932, d. 12.10. 1992, er Guðrún, f. 11.2. 1956. Eiginmaður hennar er Jóhann Rúnar Hilmarsson, f. 27.3. 1953. Dætur þeirra eru: Jóhanna, f. 20.2. 1981, og Steinunn, f. 14.1. 3.3. 1967. Eiginmaður hennar er Ragnar Þór Hauksson, f. 25.12. 1960. Börn þeirra eru: Sveinn Stefán, f. 17.1. 1993; Hildur Jóna, f. 23.3. 1994; Halldóra, f. 22.12. 2000; og Brynjar Skúli, f. 4.6. 2006. 4) Guðmundur Steinar, f. 17.10. 1973. Eiginkona hans er Ragna Kristinsdóttir, f. 17.6. 1970. Sonur þeirra er Steinar Snær, f. 2.3. 2006. Sonur Rögnu er Hlynur Kristinn Rúnarsson, f. 23.1.1989. Fósturbörn Guð- mundar Steinars og Rögnu eru: Svanhildur Sigríður Mar, f. 20.2. 1995; Guðný Bernhard, f. 17.11. 1995; Klara Lind Óskarsdóttir, f. 20.2. 2002; og Bjartur Elí Arturs- son, f. 20.12. 2010. Guðbjörg Jóna ólst upp í Naustvík og byrjaði ung að taka þátt í öllum almennum sveita- störfum. Hún stundaði hefð- bundið barnaskólanám þess tíma við barnaskólann á Finn- bogastöðum og var einn vetur í gagnfræðaskólanum í Hvera- gerði. Þaðan lá leiðin til Reykja- víkur þar sem hún stundaði ým- iskonar störf. Árið 1960 gerðist hún ráðskona á símstöðinni í Brú í Hrútafirði. Þar kynnist hún verð- andi eiginmanni sínum, Skúla Helgasyni. Þau hófu búskap í Kópavogi 1962 en settust svo að í Guðlaugsvík haustið 1963. Þar bjuggu þau samfellt þar til hún lést, en voru með annan fótinn í Reykjavík síðastliðið ár. Útför Guðbjargar Jónu fer fram í dag, 15. ágúst 2018, frá Seljakirkju og hefst athöfnin kl. 11. 1986. Sambýlis- maður Jóhönnu er Samson Bjarni Jón- asson, f. 19.10. 1983. Synir þeirra eru Jó- hann Eldór, 30.11. 2011, og Jónas Bjartur, f. 30.11. 2011. 14. nóvember 1964 giftist Guð- björg Jóna eftirlif- andi eiginmanni sín- um, Skúla Helgasyni, f. 6.10. 1936. Foreldrar hans voru hjónin í Guðlaugsvík, Anna Sigríður Sig- urðardóttir, f. 3.7. 1907, d. 18.8. 1995, og Helgi Skúlason, f. 1.7. 1901, d. 25.4. 1994. Börn Guðbjargar Jónu og Skúla eru: 1) Helgi Sigurður, f. 2.7. 1964. Eiginkona hans er Anna Ósk Kolbeinsdóttir, f. 18.9. 1970. Börn þeirra eru: Kolbrún Jóna, f. 30.4. 2001, og Skúli Sturla, f. 4.7. 2006. 2) Unnur Þóra, f. 6.2. 1966. Barnsfaðir hennar er Kristinn Ólafur Kristinsson, f. 2.7. 1963. Sonur þeirra er Skúli Jón, f. 7.1. 1986. Eiginmaður Unnar Þóru er Bjarni Amby Lárusson, f. 30.7. 1970. Börn þeirra eru: Guð- björg Jóna, f. 24.12. 2001; Signý Lára, f. 17.8. 2003; Árni Kjartan, f. 22.12. 2004, og Matthildur, f. 11.7. 2006. 3) Anna Sigríður, f. Þegar tækin sem þú varst tengd við byrjuðu að pípa opnað- irðu augun og spurðir: „Er þetta Fríkirkjan?“ Ég játaði hikandi og þú leist á mig og brostir. Í huganum skaut upp minningu um fögnuð lítillar stúlku þegar mamma kom heim á sumrin. Ég var oft hálffeimin við þig í byrjun því þú varst svo falleg og fersk. Þú komst úr henni Reykjavík, þar sem vorin voru fegurst með ang- andi runnum og trjám og þar var Fríkirkjan. Það var ekki bara þú sem komst á sumrin. Litla húsið fyllt- ist af ungu glaðværu fólki. Um Naustvík alla ómuðu smitandi hlátrasköll og hispurslaus skoð- anaskipti frá þessu lífsglaða og skemmtilega fólki. Það eru perlur minninganna. En svo varst þú og allir farnir og við tók snjóþungur og jafnvel ísilagður vetur og óttinn við ís- birni. Hvað var til ráða ef þessi ógnarskepna réðist á bæinn? Ég hafði heyrt ömmu tala um að þau afi væru bæði orðin gagnslaus gamalmenni og sjálf var ég nú ekki mikill bógur. Þú skrifaðir alltaf og svo kom að því að eitt bréfið var öðruvísi en hin. Þá varstu komin inn í Brú og undir þér vel. Aftan á bréfið teikn- aðir þú símstöðvarhúsið og nán- asta umhverfi, þ.á m. veginn upp á Holtavörðuheiði. Seinna kom í ljós að það var einmitt neðan af þess- ari heiði sem hann kom, ungi myndarlegi maðurinn. Hann vann þar við snjómokstur og kom við til að fá sér kaffisopa í Brú. Það var tregablandið þegar ég fluttist til þín inn í Guðlaugsvík. Hver átti nú að lesa Tímann fyrir afa, sem orðinn var hálfblindur? Og amma, var hún ekki einfald- lega vís til að nota blöðin til upp- kveikju? Hún gat verið svo skeyt- ingarlaus í svona málum. Nú og svo ísbirnirnir! En ég var að fara til þín, í nýtt hús og fékk sérherbergi sem sneri í norður. Út um gluggann horfð- um við oft hugfangnar á sólarupp- komuna sem er hvergi fallegri en í Guðlaugsvík. Við horfðum á hana saman, þú og ég, og ísbjarnar- hræðslan hvarf. Þú sagðir mér sögur úr lífi þínu í Reykjavík. Frá frúnni sem þú varst í vist hjá þegar þú gekkst með mig og hvað hún hvatti þig mikið til að gefa barnið. Það kom aldrei til. Sagðir mér frá Túngötu 30 og nöfnu minni þar, henni Guð- rúnu Þórðardóttur, en þar varstu í vist tveimur árum fyrr. Sagðir mér frá boðunum sem þú fékkst frá nöfnu þegar hún frétti hvernig komið var. Þau voru stutt og skor- inorð: „Þú kemur til mín með barnið.“ Seinna, svo margt, margt löngu seinna, gengum við Túngötuna saman. Við gengum niður að Tjörn og að Fríkirkjunni. Ég veit samt ekki, mamma, hvers vegna Fríkirkjan var þér svona hugleikin. Þú sagðir mér aldrei neinar sögur um hana. Guðrún Magnúsdóttir. Elsku amma! Þú varst besta amma sem nokkur gæti hugsað sér og ég elskaði þig svo mikið. Þú varst frábær manneskja, góð, hugulsöm, hjartahlý, ástrík, fynd- in og hreinskilin, á góðan hátt. Þú varst einnig frábær kokkur. Þú varst ein gjafmildasta manneskja í heimi. Það voru aldrei nein vand- ræði í kringum þig. Vanalega trúi ég ekki á guð en ég veit að núna ert þú við hægri hönd hans. Þegar ég heyri ein- hvern nefna guð þá hugsa ég um þig og hef alltaf gert það. Maður lifnaði alltaf við hláturinn þinn og svo var alltaf svo skemmtilegt þegar þú hermdir eftir röddum annarra manna. Allt við þig var svo fallegt og hlýlegt. Ég elskaði þig og elska þig enn þá. Þú átt allt- af stað í hjarta mínu. Ég elska þig. Þú hverfur aldrei úr mínum huga. En nú ert þú í friðarheimi og flýgur um eins og lítil fluga. Er mig dreymir þá ert þú þar á sveimi sem engill í draumaríki sem eigi vill að einhver svíki. Þitt ömmubarn, Matthildur. Elsku Jóna mín, mikið kvaddir þú snögglega. Minningarnar hlað- ast upp í huga mér. Við áttum svo margar góðar stundir saman. Hjá okkur var alltaf stutt í hláturinn og Kanaríferðirnar með ykkur Skúla eru ógleymanlegar. Í mörg sumur varst þú sumar- mamma Guðmundar, sonar míns. Hann elskaði að vera hjá ykkur og gat ekki hugsað sér að vera ann- ars staðar en í Guðlaugsvík. Þú munt alltaf eiga stóran sess í hjarta mínu. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Ég votta Skúla, börnum og öðr- um aðstandendum samúð mína. Við eigum öll góðar minningar um Jónu og hún verður áfram í huga okkar. Hvíl í friði og takk fyrir allt. Ingveldur Kristinsdóttir. Guðbjörg Jóna Guðmundsdóttir  Fleiri minningargreinar um Guðbjörgu Jónu Guð- mundsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT Á. HALLDÓRSDÓTTIR Snotrunesi, Borgarfirði eystra, andaðist á hjúkrunarheimilinu Dyngju á Egilsstöðum 9. ágúst. Minningarathöfn verður í Egilsstaðakirkju föstudaginn 17. ágúst klukkan 15. Útför hennar fer fram frá Bakkagerðiskirkju laugardaginn 18. ágúst klukkan 11. Gróa Eiðsdóttir Júlíus Snorrason Halldór Á. Eiðsson Hulda Eiðsdóttir Hjörleifur Gunnlaugsson Eygló Eiðsdóttir Knútur S. Hafsteinsson Njáll Eiðsson Sigrún Viktorsdóttir Egill Eiðsson Fjóla Hólm og fjölskyldur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINBJÖRN SIGTRYGGSSON húsasmíðameistari, lést á dvalarheimilinu Grund miðvikudaginn 1. ágúst. Bálför hefur farið fram að ósk hins látna. Útför fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 25. ágúst klukkan 13 og duftker jarðsett í Ólafsvíkurkirkjugarði. Kristinn Vigfús Sveinbjörns. Ena Dahl Guðbjörg Sveinbjörnsdóttir Sigfinnur Snorrason Olga Sveinbjörnsdóttir Jóhann Ágústsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BOGI RAGNARSSON frá Laufási, Djúpavogi, lést miðvikudaginn 8. ágúst. Útförin fer fram frá Djúpavogskirkju laugardaginn 18. ágúst klukkan 13. Erla Jóhannsdóttir Svandís Guðný Bogadóttir Reynir Arnarson Ragnar Jóhann Bogason Svava Skúladóttir Ágúst Bogason Bríet Birgisdóttir Ómar Bogason Margrét Urður Snorradóttir Gísli Borgþór Bogason Gunnlaugur Bogason Kolbrún Eiríksdóttir Hafdís Erla Bogadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓR ARASON Skagaströnd, lést á heimili sínu, Bogabraut 26 á Skagaströnd, laugardaginn 11. ágúst. Útför hans fer fram frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 25. ágúst klukkan 14. Fjóla Jónsdóttir Ari Jón Þórsson Þórarinn Kári Þórsson Ann Þórsson Atli Þór Þórsson María Kristín Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, ÁGÚST ÖNUNDARSON, sem varð bráðkvaddur þriðjudaginn 31. júlí á Möltu, verður jarðsunginn föstudaginn 17. ágúst klukkan 11 frá Fossvogskirkju. Ester Ösp Guðjónsdóttir Hrefna Ýr Ágústsdóttir Harpa Ágústsdóttir Sigurður Harðarson Önundur Jónsson Gróa Stefánsdóttir Hrönn Önundardóttir Ólafur Atli Sigurðsson Marinó Önundarson Herdís Bragadóttir Stefán Björnsson Önundars. Erna Rut Steinsdóttir Agnes Eir Önundardóttir Einar Grímsson Guðjón Kjartansson Dagbjört Hjaltadóttir Sölvi Mar Guðjónsson og aðrir vandamenn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA MÖLLER Eiðismýri 30, lést á heimili sínu föstudaginn 3. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ólafur Einarsson Þorleifur Sívertsen Helga Kristinsdóttir Stella Sívertsen Claudio Adam Víglundur Möller Sívertsen Halldóra Karlsdóttir Sigurður Sívertsen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG INGUNN MAGNÚSDÓTTIR, Ársölum 1, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 9. ágúst. Útförin fer fram frá Lindakirkju mánudaginn 20. ágúst klukkan 15. Trausti Þorláksson Magnús Traustason Guðlaug Traustadóttir Þorlákur Traustason Guðrún H. Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, BJÖRK HJALTADÓTTIR, Garðabæ, lést á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi sunnudaginn 12. ágúst. Útför fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 24. ágúst klukkan 13. Guðmundur Brynjólfsson Hjalti Guðmundsson Sigrún Ýr Svansdóttir Brynhildur Guðmundsdóttir Örlygur Auðunsson Lena Björk, Aníta, Kamilla, Guðmundur Thor, Þórhildur Stella, Hugrún Birna, Kristófer Páll

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.