Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 ✝ Engilráð Ósk-arsdóttir, alltaf kölluð Stella, fædd- ist í Reykjavík 26. febrúar 1931. Hún andaðist 6. ágúst 2018. Foreldrar hennar voru Anna Eiríks- dóttir, f. 26.5. 1906, d. 8.12. 1986, og Óskar Þórðarson, f. 1.6. 1903, d. 3.9. 1972. Anna og Óskar voru aldr- ei í samvistum, en eiginmaður Önnu frá 15.10. 1932, Guðbjörn Þórarinsson, f. 11.5. 1894, d. 3.9. 1988, gekk Stellu í föð- urstað allt til dauðadags. Systk- ini Stellu sammæðra eru Sigríð- ur Guðbjörnsdóttir, f. 1933, Anna Björk Guðbjörnsdóttir, f. 1938, Eiríkur Steinar Guð- björnsson, f. 1940, d. 1940, og Þórunn Guðbjörnsdóttir, f. 1944. Bróðir Stellu samfeðra er Þórð- ur Óskarsson, f. 1925, d. 1944. Stella ólst upp hjá móður sinni og fósturföður á Langeyri í Hafnarfirði í góðum hópi óvenjusamrýndra systra, oft nefndar í daglegu tali Langeyr- arsystur. hamla sér meir en það að hún vann fulla vinnu til 68 ára ald- urs, lengst af við símsvörun hjá Gunnari Ásgeirssyni og Velti hf. en síðustu árin á bæjar- skrifstofu Hafnarfjarðar. Þá vann hún einnig við saumaskap enda lék það í höndunum á henni. Stella var góð söngkona og var í vinsælum sönghóp sem hét Ránardætur. Ásamt henni voru í hópnum Ragnheiður Sig- urðardóttir og Sigrún Þórð- ardóttir. Léku þær á flestum skemmtistöðum á höfuðborg- arsvæðinu og víða úti um land. Stella var ein af fáum Íslend- ingum sem kunnu að jóðla, gerði hún það listavel. Stella tók mikinn þátt í félagslífi, var í kirkjukór Víðistaðakirkju í 20 ár og meðlimur í systrafélagi kirkjunnar. Hún var einnig virk í slysavarnafélaginu Hraun- prýði, var þar formaður um skeið, jafnframt starfaði hún í orlofsnefnd húsmæðra í Hafn- arfirði. Á vegum þessara félaga spilaði hún og söng á flestum samkomum þeirra, langt fram eftir aldri meðan getan leyfði, stundum ein, en oft með öðrum t.d. í sönghópi sjö kvenna sem nefndu sig Sjöurnar. Síðastliðin tvö ár naut Stella góðrar aðhlynningar á Hrafn- istu í Hafnarfirði (Ölduhraun). Útför Stellu fer fram frá Víðistaðakirkju í dag, 15. ágúst 2018, klukkan 13. Stella giftist hinn 5.4. 1953 Guðmundi Er- lendssyni, f. 18.6. 1928, d. 1.8. 1978, hann var lengst af starfandi sem rannsóknarlög- reglumaður, en var jafnframt lærður vélstjóri og sem leikari út- skrifaðist hann 1967. Lék hann hjá Leikfélagi Reykjavíkur, m.a. stór hlutverk í Fjalla-Eyvindi, Pilti og stúlku og Indjánaleik. Börn Stellu og Guðmundar eru: 1) Anna, f. 3.10. 1953, framkvæmdastjóri, maki Logi Egilsson, lögmaður, f. 8.10. 1952. 2) Gestur Friðrik, f. 22.7. 1956, kennari og myndlistar- maður, maki Sylvía Kristjáns- dóttir, f. 23.6. 1964, grafískur hönnuður. Barnabörnin eru sex og barnabarnabörnin tólf. Stella fékk lömunarveiki þeg- ar hún var 15 ára, sem tak- markaði alla tíð síðan líkamlega getu hennar. Hún lét það þó vegna þrautseigju sinnar ekki Elsku amma Stella. Mikið er skrítið að þú skulir vera farin. Því er erfitt að kyngja því þú hefur alltaf verið svo stór hluti af lífi mínu. Vinkona mín, amma mín og ein af helstu fyrirmyndum mínum í lífinu. Þegar ég hugsa til baka er svo margs að minnast. Sögurnar sem þú samdir og sagðir okkur ótelj- andi sinnum með röddum og lát- bragði, sögur sem þú varst nú í seinni tíð farin að segja lang- ömmubörnunum. Svo söngst þú svo oft fyrir okkur ömmubörnin þín og spilaðir á gítarinn og þann- ig lærðum við ótal lög og vísur. Þegar við bjuggum á Laufvang- inum var ég svo lánsöm að þú bjóst í íbúðinni fyrir ofan okkur. Ég mátti alltaf gista hjá þér og þá var sko dekrað við mann. Ég fékk að horfa fram eftir á sjónvarpið og fá morgunmat á bakka yfir barna- tímanum. Ég fékk líka oft að fljóta með á kóræfingar og í messu í Víðistaðakirkju þar sem ég sat við fætur þér á meðan þú söngst í kirkjukórnum. Við fórum líka oft í sund og þá alltaf í gömlu laugina og mér þótti það alltaf svo gaman, enda við mikið fyrir sundið. Þú saumaðir listavel og ég fékk nýja flík við hvert tilefni, benti bara á kjólinn í blaði eða sagði hvað ég var með í huga og þú töfraðir það fram. Frá því að ég man eftir mér höfum við yfirleitt eytt öllum há- tíðisdögum saman og það hefur mér þótt forréttindi. Þú elskaðir allar veislur og samkvæmi. Þegar ég var orðin unglingur þótti mér alltaf gott að koma og tala við þig. Ég þreif íbúðina þína vikulega á tímabili og fór í búðina en mesti tíminn fór yfirleitt í spjall og samveru. Í dag finnst mér ótrú- legt að þú hafir nennt að hlusta á ærandi þungarokkið sem ég spil- aði þegar ég var að þrífa. Ekki hefðu allar ömmur þolað það. Við áttum líka kósí kvöldstundir sam- an þegar ég var orðin fullorðin, hlustuðum á hljóðbækur eða horfðum á bíómyndir. Við náðum svo vel saman og skildum hvor aðra, sem gerði samband okkar al- veg einstakt. Elsku amma, þegar ég flutti svo til Boston man ég hvað okkur þótti erfitt að kveðja hvor aðra. Mér þótti erfitt að búa svona langt í burtu eftir að þú fluttir á Hrafn- istu og að geta ekki orðið þér að liði, hitt þig og spjallað við þig. En ég er svo fegin að hafa verið komin til landsins áður en þú kvaddir þennan heim og getað knúsað og kvatt þig. Elsku amma mín, vin- kona mín. Ég mun alltaf sakna þín. Þín Agnes. Elsku amma Stella, nú hefur þú kvatt þennan heim og ert komin yfir í Sumarlandið til afa. Ég sit hér með söknuð í hjarta og minn- ingarnar streyma um hugann. Það er erfitt að ætla að skrifa saman- tekt á þeim minningum og sam- verustundum sem við höfum átt. Frá því að ég kom í heiminn hefur þú alltaf verið hér og þegar ég hugsa til baka, sama hvort það eru hátíðisdagar, veisluhöld eða ein- faldur hversdagsleikinn, hefur nærveru þinnar alltaf notið við. Það er sárt til þess að hugsa að stundirnar með þér í þessum heimi verða ekki fleiri, en ég er endalaust þakklát fyrir allar minningarnar sem ég á um glæsi- lega og dásamlega ömmu. Það var alltaf gott að koma í heimsókn til þín, þú tókst manni opnum örmum og heilsaðir manni brosandi með orðunum: „Hæ sweetie pie!“ Umsvifalaust var haft til kaffi og bakkelsi, svo var setið og spjallað um lífið og til- veruna. Þú fylgdist vel með því sem var að gerast í lífi okkar allra og þér var mikið í mun að okkur liði vel og að við værum glöð í líf- inu. Þú varst mikill fagurkeri, varst alltaf vel tilhöfð og vildir hafa fínt og fallegt í kringum þig. Einkunn- arorð þín voru elegant, lekkert og smart. Þú fylgdist vel með tísku- straumum hverju sinni og það var ósjaldan sem maður sat með stafla af móðinsblöðum, spekúleraði og spjallaði um það sem var nýmóð- ins. Þú varst einstaklega listræn og handlagin og gast galdrað fram ótrúlegustu hluti. Ef nýr kjóll var það sem var efst á óskalistanum var nóg að koma með hugmyndina til þín og krota niður skissu af kjólnum. Málbandið var þá tekið upp, maður mældur í bak og fyrir, efni valið og áður en maður vissi af var draumakjóllinn tilbúinn. Söngur og ástríða fyrir tónlist fylgdi þér alla tíð. Gítarinn var iðulega hafinn á loft þegar fjöl- skyldan kom saman þar sem þú spilaðir, söngst og jóðlaðir. Þú varst líka alltaf í kór og það er mér minnisstætt að hafa fengið að fylgja þér sem barn á kóræfingu og í messu þar sem maður sat við fæturna á þér á kórpallinum og raulaði með. Þessi einstaka söng- gleði hefur alltaf fylgt manni og orðið til þess að maður fór sjálfur að taka þátt í kórstarfi og er sís- yngjandi. Þú hafðir líka gaman af því að segja sögur og gast spunnið upp ævintýralega frásögn um furðu- verur og ævintýraheima. Þú lagð- ir þig alla fram við frásögnina; notaðir mismunandi raddir fyrir hverja persónu og lýsingarnar svo dásamlegar að það var engu líkara en ævintýrið lifnaði við. Þegar ég fór að fullorðnast óx með okkur mikill vinskapur og við áttum dýrmætar stundir saman. Þegar ég eignaðist svo Ómar Loga minn og langömmubörnun- um fór að fjölga voru rifjaðar upp allar sögurnar þínar og barna- söngvarnir. Þú varst alveg jafn yndisleg langamma eins og þú varst amma. Það eru engin orð sem lýsa því nægilega vel hversu einstök og dásamleg kona þú varst, elsku amma mín. Veröldin er tómlegri án þín. Yndislegar minningar um þig lifa í hjarta mínu og munu ylja mér um ókomna tíð. Ég kveð þig nú með orðum þín- um og segi: „Bæ sweetie pie!“ Þín dótturdóttir og nafna, Ingigerður Stella. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Í dag kveðjum við Stellu, kæra systur okkar, hinstu kveðju. Hún var elst okkar fjögurra systra frá Langeyri, og fyrirmynd á mörg- um sviðum. Við yngri systurnar litum upp til hennar og vorum mjög stoltar af henni, hún kunni svo margt. Hún var t.d. lagin við að sauma föt og saumaði marga fallega kjóla á okkur yngri syst- urnar. Einnig hafði hún atvinnu af að sauma fyrir aðra um áraraðir. Stella kunni að syngja og spila á gítar og svo kunni hún líka að jóðla. Hún hafði fallega söngrödd, og söng alla tíð gegnum lífið. Hún byrjaði að syngja opinberlega þegar hún stofnaði söngtríóið „Ránardætur“ með vinkonum sín- um, Ragnheiði Sigurðardóttur og Sigrúnu Þórðardóttur, og komu þær víða fram, m.a. í „Bláu Stjörn- unni“, sem var vinsæl revía á ár- unum rétt fyrir 1950. Seinna á æv- inni var hún í öðrum sönghópi með sex vinkonum og komu þær víða fram á skemmtunum. Stella söng einnig í kórum t.d. Pólýfónkórn- um, Kirkjukór Víðistaðakirkju og Gaflarakórnum, og nú allra síð- ustu árin í Hrafnistukórnum. Stella veiktist af lömunarveiki árið 1946 og lamaðist annar fótur hennar, en með mikilli eljusemi þjálfaði hún sig svo að hún komst aftur á fæturna. Árið 1950 fór hún til Danmerkur til lækninga á heilsuhæli sem hét Humlegaarden og hafði hún gott af því. Fór hún svo í framhaldi af því til Kaup- mannahafnar og lærði að lita ljós- myndir, sem hún vann við um tíma. Þegar Stella kom aftur heim frá Danmörku, hitti hún fljótlega hann Mumma sinn, Guðmund Er- lendsson frá Ísafirði, og giftu þau sig 1953. Þau eignuðust tvö mann- vænleg börn, þau Önnu og Gest Friðrik. Guðmundur lést langt fyrir aldur fram, árið 1978. Fyrsta barnabarnið kom einmitt í heim- inn það sama ár, og urðu þau alls sex . Langömmubörnin komu svo síðar hvert af öðru og eru orðin tólf. Stella var á öðru árinu þegar hún kom inn í líf föður okkar með mömmu og var það mikið lán fyrir þau bæði, og einnig fyrir okkur yngri systur hennar. Guðbjörn faðir okkar reyndist henni sem besti faðir og þótti honum jafn vænt um hana eins og okkur hin- ar. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Við kveðjum kæra systur með trega. Sigríður (Lilla), Anna Björk (Bidda) og Þórunn (Tóta) Guðbjörnsdætur. Engilráð Óskars- dóttir (Stella)  Fleiri minningargreinar um Engilráð Óskarsdóttur bíða birtingar og munu birt- ast í blaðinu næstu daga. ✝ Berent Theo-dór Sveinsson fæddist í Vest- mannaeyjum 21. ágúst 1926. Hann lést 29. júlí 2018 á heimili sínu, Suð- urlandsbraut 68b í Reykjavík. Foreldrar hans voru Sólrún Ingv- arsdóttir frá Hellnahóli (1891- 1974) og Sveinn Sigurhansson frá Stóru Mörk (1892-1964), múrari og vélstjóri í Vestmannaeyjum. Berent kvæntist 1949 Lauf- eyju Guðbrandsdóttur (1924- 2013). Þau voru barnlaus. For- eldrar Laufeyjar voru úr Fló- anum: Þuríður Ingibjörg Ámundadóttir frá Kambi (1898-1991) og Guðbrandur Gunnlaugsson frá Hákoti (1900-1949). Laufey var elst fermdist 1940 og hóf störf í peyjaflokki hjá Einari Sigurðs- syni. Lauk kvöldskóla iðn- aðarmanna og fór sumarið 1943 sem háseti á Metu VE 236 á síldveiðar fyrir Norður- landi. Settist um haustið í Reykjaskóla í Hrútafirði og sneri eftir veturinn aftur til Eyja með héraðsskólapróf. Gagnfræðingur 1945 og fór þá í Loftskeytaskólann. Réðst að loknu prófi á togarann Helga- fell (ex Surprise TFSC) 1946- 47 og svo til flugþjónustunnar í Gufunesi 1947-49. Lauk sóló- prófi í ágúst 1947 frá flugskól- anum Cumulus og síðar bók- legu námi til einkaflugmanns- prófs en ekki varð framhald á. Sneri aftur til sjós, nú á Elliða- ey VE10 (TFGC) til 1953 er Berent flutti til Reykjavíkur ásamt eiginkonu sinni. Í sigl- ingum hjá Eimskip í afleys- ingum 1953-58 og í landi hjá skipadeild radíóverkstæðis Landssímans þess á milli. Sótti námskeið í radartækni hjá Sperry Gyroscope í New York 1957. Réðst til Landhelgis- gæslunnar 1958 og starfaði þar óslitið til starfsloka 1996. Sótti Loran C-skólann hjá US Coast Guard í Groton, Con- necticut 1962. Tók við sem yf- irloftskeytamaður Landhelgis- gæslunnar 1974 og frá 1987 varðstjóri í stjórnstöð til starfsloka. 1954-63 í stjórn og trúnaðarmannaráði Félags ís- lenskra loftskeytamanna. Fulltrúi Landhelgisgæslunnar í ratsjárnefnd frá stofnun 1985 þar til hún var lögð niður 1993. Gekk í skátafélagið Faxa í Vestmannaeyjum árið 1939 og síðan í Útlaga 1945, skátaflokk Eyjaskáta í Reykjavík, og tók þátt í starfi þeirra óslitið í 73 ár. 2006 sæmdur skátakeðjunni úr gulli af Bandalagi íslenskra skáta. Hóf að æfa skylmingar hjá Skylmingafélagi Reykjavík- ur 1947, sæmdur gullmerki Skylmingasambands Íslands 2008 og gerður að heiðurs- félaga. Sæmdur heiðursmerki sjómannadagsráðs á sjó- mannadaginn 2010. Virkur í starfi Frímúrarareglunnar á Íslandi um áratugaskeið. Útför hans fer fram í dag, 15. ágúst 2018, frá Fossvogs- kirkju kl. 13. fjögurra systra sem allar eru látn- ar: Inga Þuríður (1927-2006), Auð- björg G. Steinbach (1930-2007) og Jó- hanna Guðbjörg (1936-2011). Berent var í fimm systkina hópi en fjögur komust á legg: Ágústa var elst (1920-2012), ógift og barnlaus, þá Berent, svo Garðar Aðalsteinn (1933- 2012), kvæntur Ólöfu Karls- dóttur (1935-2000), þau voru barnlaus, og svo Tryggvi, f. 1934, sem er síðastur systkina sinna á lífi. Kona hans var Þóra Eiríksdóttir (1933-2016). Börn þeirra: Skúli (1958-1998), Sólrún, f. 1959, Eiríkur Sveinn, f. 1963, Tryggvi Þór, f. 1965, og Gísli, f. 1967. Berent lauk barnaskólanámi, Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Í dag kveð ég besta vin minn. „Sönn vinátta er seinvaxinn gróð- ur“ segir spakmælið. Hjá okkur Berenti fékk hún langan tíma til að dafna, alla mína ævi og rétt rúma hálfa hans. Vináttan skaut fyrst rótum þegar ég, barn að aldri heimsótti hann og Laufeyju kon- una hans, móðursystur mína, og naut óskiptrar athygli og ástríkis þeirra beggja. Þegar ég hugsa til baka skynja ég hvernig gott atlæti þeirra og fyrirmynd hafði mótandi áhrif til lífstíðar. Þau eiga meira í manni en maður áttar sig á í fyrstu. Berent var þolinmóður sögumaður, hafsjór af fróðleik og alltaf tilbúinn að hlusta og svara spurningum þótt reyndi kannski stundum á þolrifin. Berent var smekkvís heiðurs- maður í besta skilningi þess orðs, með ríka réttlætiskennd og knúinn áfram af óbilandi sjálfsbjargar- viðleitni. Hann var stálminnugur, snyrtimenni fram í fingurgóma og kurteis með afbrigðum. Hann hafði fyrir löngu áttað sig á að góð- ir mannasiðir eru smurolía góðra samskipta. Aldrei bar neinn skugga á samskipti okkar, þó örl- aði á að hann skipti skapi þegar mér láðist að vera stundvís. Og lexían lærðist og var aldrei framar á hana minnst. Eftir að Laufey féll frá 2013 hafði ég tækifæri til að kynnast Berenti enn betur. Heilsu hennar hafði hrakað síðustu árin og hann hafði rækt umhyggjuhlutverk sitt af sérstakri natni. Það var honum mikill léttir þegar hún fékk inni á Grund. Þá vissi hann að hún væri komin í skjól hvað sem henti hann sjálfan. Hann var vakinn og sofinn yfir velferð hennar. Eftir fráfall hennar rann mér því blóðið til skyldunnar og reyndi að hlúa að honum eftir bestu getu. Eftir 64 ára hjónaband er það mikil breyt- ing að standa eftir sem ekkill. En ég vissi að allir vildu honum vel og alls staðar var hann aufúsugestur. Hann var duglegur að þiggja heimboð og tók alltaf vel í þegar stungið var upp á bíóferð, bíltúr, skoðunarferðum eða fræðsluferð- um á fyrirlestra og söfn. Í samtölum okkar um daginn og veginn barst talið oft að upp- vaxtar- og mótunarárunum hans í Vestmannaeyjum. Hann tjáði mér að hugur sinn hefði staðið til byggingarlistar en fátækt hefði hamlað frekari námsferli. Hann þurfti ungur að fara að vinna fyrir sér og leggja með sér til heimilis- ins. Hann lærði því snemma að fara vel með og tileinka sér dyggðir sparsemi og nýtni. Það var dá- semd að sjá hversu úrræðagóður hann var. Ein af sögunum sem hann sagði var um karlinn sem varð ríkur á að „leysa hnútana í stað þess að skera á snærið“. Kjörorð hans var: „Treystu Guði og sjálfum þér“. Hann ruddi sína braut sjálfur. Fátæktin í æsku mótaði lífsviðhorf hans. Hann varð sinnar eigin gæfu smiður. Guð snýr kannski lyklinum en þú verður sjálfur að ljúka upp dyr- unum, var kjarninn í lífsspeki hans. Að leiðarlokum fæ ég lánaða orðkynngi skáldsins og fæ að gera hana að mínum þegar ég segi: „Guð og góðir englar gæti þín, elsku vinur.“ (Davíð Stefánsson) Árni Sigurðsson. Mig langar að minnast hér frænda míns Berents. Kynni okk- ar hófust fyrir alvöru eftir að kon- an hans hún Laufey dó. Hann af- rekaði að fara með mér í þrjár vinnuferðir út á land. Sú fyrsta og vafalaust sú eftirminnilegasta var farin í janúar 2014. Fórum við norður í Skagafjörð með viðkomu á nokkrum stöðum. Veðrið var nokkuð skaplegt framan af en þeg- ar við vorum komnir á Blönduós var komin stórhríð. Á Skagaströnd urðum við að snúa við því allt var orðið ófært þar innanbæjar. Við náðum að festa okkur nokkrum sinnum en með góðra manna hjálp komumst við aftur á Blönduós. Be- rent hafði á orði að hann hefði á sinni löngu ævi aldrei lent í öðru eins. Á köflum var skyggni ekki meiri en 2 til 3 metrar. Í bakaleið- inni stoppuðum við á Reykjum í Hrútafirði þar sem Berent var eitt skólaár. Hann vildi endilega skoða gamla herbergið sitt, en það var búið að breyta því í salerni. Hann var ekki yfir sig hrifinn af því. Við fórum einnig til Vestmannaeyja og þótti Berent mjög gaman og koma á æskuslóðirnar aftur. Það er með söknuði sem ég kveð frænda minn. Blessuð sé minning Berents Th. Sveinssonar. Eiríkur Sveinn Tryggvason. Berent Th. Sveinsson  Fleiri minningargreinar um Berent Th. Sveinsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.