Morgunblaðið - 15.08.2018, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 25
✝ Einar Ein-arsson flugum-
ferðarstjóri fæddist
í Reykjavík 21.
mars 1934. Hann
lést 4. ágúst 2018.
Foreldrar hans
voru Jón Einar
Guðmundsson bak-
ari, f. 19.1. 1902, d.
7.4. 1967, og Marta
Jónsdóttir hús-
freyja, f. 11.3. 1903,
d. 5.7. 1986. Systir hans var Sig-
urlaug E. Stewart, f. 18.11.
1925, d. 30.4. 2018.
Einar kvæntist 10.4. 1955 eft-
irlifandi eiginkonu sinni, Unu
Ásgeirsdóttur, f. 1.8. 1935. For-
eldrar Unu voru Ásgeir Sigur-
jónsson bílstjóri, f. 4.2. 1913, d.
18.8. 1995, og María Benedikts-
dóttir verkakona, f. 1.4. 1912, d.
5.2. 2003. Þau slitu samvistum.
Sambýlismaður Maríu og fóst-
urfaðir Unu var Jóhann Krist-
inn Kristjánsson, starfsmaður
hjá Rafveitu Siglufjarðar, f. 4.9.
1910, d. 23.10. 1991.
Börn Einars og Unu eru: 1)
María Marta, f. 22.8. 1955. 2)
Kristín, f. 28.7. 1957. 3) Jón Ás-
geir, f. 9.3. 1959.
þjónustu 1982-1986. Yfirflug-
umferðarstjóri þjálfunar-, eft-
irlits- og skipulagssviðs
1986-1992. Gegndi stöðu fram-
kvæmdastjóra flugumferð-
arþjónustu frá 1992-1995. Fór á
eftirlaun 1995 en starfaði sem
verktaki eftir það hjá flug-
umferðarsviði.
Sat í stjórn FÍF 1965-1966 og
1971-1972, sat í tækninefnd, for-
maður fyrstu öryggisnefndar
FÍF, fulltrúi á alþjóðlegum þing-
um flugumferðarstjóra og var í
undirbúningsnefnd alþjóða-
fundar flugumferðarstjóra 1973
sem haldinn var í Reykjavík. Sat
í ýmsum nefndum sem fulltrúi
Íslands á alþjóðavísu. Sat fyrstu
alþjóðlegu fundi öryggisnefnda
flugumferðarstjóra, sat einnig á
ýmsum samráðsfundum aðliggj-
andi flugstjórnarmiðstöðva. Sá
um samskipti við varnarliðið á
Keflavíkurflugvelli f.h.
Flugmálastjórnar um nokkurra
ára bil.
Gegndi ýmsum störfum fyrir
NATO. Síðustu opinberu störf
hans voru að útbúa flugreglur
fyrir flugvöllinn í Pristina í Kos-
ovo. Einar var einnig virkur fé-
lagi í Frímúrarareglunni á Ís-
landi.
Útför Einars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 15. ágúst
2018, klukkan 15.
Barnabörnin eru
10 talsins og barna-
barnabörn 24.
Einar tók lands-
próf frá Reykholti í
Borgarfirði 1951,
var í MR 1952-1953,
vann ýmis landbún-
aðarstörf í Banda-
ríkjunum 1953-
1954, verkamaður
hjá Reykjavík-
urborg 1954-1955
og bílstjóri hjá Steypustöðinni
1955-1956. Grunnnám í flug-
umferðarstjórn hjá Flugmála-
stjórn síðari hluta árs 1955.
Hann hóf störf hjá Flug-
málastjórn 28.5. 1956. Vann
samfellt sem flugumferðarstjóri
í Reykjavík og í flugstjórnar-
miðstöð nema, fyrstu árin vann
hann jafnframt í flugturni, að
undanskildum fimm mánuðum
er hann starfaði í flugturni
Vestmannaeyja árið 1956. Frá
árinu 1974 vann hann ásamt
störfum flugumferðarstjóra
jafnframt á skrifstofu fram-
kvæmdastjóra flugumferðar-
þjónustu við ýmis verk, s.s. gerð
vinnukorta, starfsreglna o.fl.
Eftirlitsmaður flugumferðar-
Elsku pabbi minn, þú hefur
kvatt mig að sinni eftir langa
og yndislega samferð. Söknuð-
urinn er sár en minningarnar
eru margar og góðar þennan
langa tíma sem við höfum átt
saman. Við vorum ekki alltaf
sammála, sem er gott, en alltaf
var hægt að ræða málin og
komast að málamiðlun. Margar
góðar minningar á ég úr
bernsku minni og uppvexti. All-
ar laxveiðiferðirnar sem við
systkinin fórum í með ykkur
mömmu og ævintýrin sem við
áttum þegar við keyrðum norð-
ur til ömmu og afa. Þú hafðir
gaman af því að segja sögur og
brandara, stríðinn með ein-
dæmum og hafðir gaman af að
æsa okkur systkinin í leik. Þú
varst ljúfur uppalandi, hækk-
aðir aldrei róminn en ef þú
varst ekki sáttur fékk maður
augnaráð og var það nóg. Ég
var svo lánsöm að fá að byggja
með ykkur mömmu og Kristínu
systur sumarbústað á stað sem
við teljum vera fallegasta stað
hér á landi. Sumarbústaðurinn
var ykkar griðastaður, þar vild-
uð þið helst alltaf vera. Ég
þakka þína traustu hönd sem
leiddi mig í gegnum lífið með
endalausri umhyggju og velferð
mína hafðir þú alltaf í huga.
Mikið mun ég sakna þín, elsku
pabbi minn.
Þín dóttir,
María Marta.
Elsku yndislegi afi.
Ég hlakkaði svo til að koma í
heimsókn í sveitina í sumar og
segja þér frá sumarfríi fjöl-
skyldunnar. Ég hélt alltaf að ég
myndi hitta þig aftur en núna
er komið að kveðjustund.
Þegar ég var lítil þótti mér
þú ansi merkilegur. Þú stjórn-
aðir flugvélunum í loftinu og ég
man hvað það var spennandi að
sjá hvar vélarnar voru hverju
sinni í tölvunni þinni. Ég man
líka vel hvað það var spennandi
að fara inn á skrifstofuna þína
og horfa á heimskortið. Þú
hafðir merkt inn á kortið alla
staðina sem þú og amma höfð-
uð komið til. Ég var heilluð af
öllum teiknibólunum á kortinu.
Ég man þá að þetta vildi ég
líka gera, eignast mitt eigið
kort og merkja inn á það. Þeg-
ar ég fór að eldast og ferðast
sjálf, þá vissi ég svo sannarlega
við hvern ég átti að tala. Þú
gafst mér alltaf góð ráð og
hafðir áhuga á því sem ég var
að segja og gera.
Síðan sagðir þú svo
skemmtilegar sögur af lífinu
þínu. En yndislegra er þó
hversu fallega þú talaðir um
ömmu og ævintýri ykkar. Þið
voruð búin að vera gift í 64 ár
og það var yndislegt að fylgjast
með vináttu ykkar í gegnum ár-
in. Þið voruð miklar fyrirmynd-
ir og væri óskandi að geta sinnt
vináttu og ást af jafnmikilli al-
úð og þið. Mér hefur einnig
alltaf þótt vænt um hvað þú
varst stoltur af öllu sem ég tók
mér fyrir hendur. Þú varst líka
algjör brandarakarl og komst
fólki til að hlæja. Þegar ég var
lítil stálumst við tvö gjarnan í
súkkulaði þegar amma sá ekki
til og sá brandari hætti alls
ekki að vera fyndinn, jafnvel
eftir að ég varð fullorðin. Það
var alltaf hægt að gera eitthvað
skemmtilegt með þér og stutt í
hláturinn.
Ég á margar góðar minn-
ingar af þér, elsku afi, og þá
sérstaklega síðustu ár í Fljót-
unum í sumarbústaðnum ykkar.
Það var ekkert betra en að
komast í sveitina til ykkar og
það fannst strákunum mínum
líka.
Hvíl í friði, elsku afi.
Þín,
Hrafnhildur.
Einar Einarsson
Fleiri minningargreinar
um Einar Einarsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýhug við
andlát og útför móður minnar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
AÐALHEIÐAR KARLSDÓTTUR
Lóu,
Grænumörk 1, Selfossi.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Ljósheimum og dvalarheimilinu
Ási fyrir hlýja og góða umönnun.
Erna Magnúsdóttir Steindór Kári Reynisson
Aðalheiður Millý Steindórsd. Kristján Guðnason
Elín Gíslína Steindórsdóttir
og barnabarnabörn
Okkar ástkæri
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
Dóri frá Tungu,
Mýrum 7, Patreksfirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á
Patreksfirði miðvikudaginn 8. ágúst og er
því kominn í hin eilífu berjalönd.
Útför fer fram frá Patreksfjarðarkirkju laugardaginn 25. ágúst
klukkan 14.
Aðstandendur
Við þökkum auðsýnda samúð við fráfall
elsku eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og systur,
KRISTBJARGAR SVEINSDÓTTUR,
sem lést hinn 18. júlí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðni Óskar Jensen
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Olíuskiljur - fituskiljur
- einagrunarplast
CE vottaðar vörur.
Efni til fráveitulagna.
Vatnsgeymar 100-50.000 lítra.
Borgarplast.is,
sími 5612211, Mosfellsbæ.
Ýmislegt
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Húsviðhald
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Kaldakinn, Dalabyggð, fnr. 211-6762 , þingl. eig. Hjörtur Egill Sigurðs-
son, gerðarbeiðandi Dalabyggð, þriðjudaginn 21. ágúst nk. kl. 14:00.
Mýrarholt 14, Snæfellsbær, fnr. 210-3736 , þingl. eig. Snædís Hjartar-
dóttir og Sólveig Eiríksdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðju-
daginn 21. ágúst nk. kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Vesturlandi
14. ágúst 2018
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opið hús t.d. vist og bridge kl. 13-16. Ljósbrotið prjóna-
klúbbur, lokaður hópur kl. 13-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffi-
sala kl. 15-15.45. Hægt að pútta úti og inni, tefla og púsla. Heitt á
könnunni, blöðin liggja frammi. Allir velkomnir. Sími 535-2700.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur alla daga í sumar.
Hádegisverður frá 11:30-12:30 og kaffisala alla virka daga frá 14:30-
15:30. Helstu dagskrárliðir eru í sumarfríi fram í miðjan ágúst. Úti
boccia völlur verður á torginu í sumar og við minnum á Qigong á
Klambratúni alla þriðju- og fimmtudaga kl. 11. Verið hjartanlega
velkomin. Vitatorg, sími: 411-9450
Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Opið í Jónshúsi
og heitt á könnunni alla virka daga frá 09:30-16:00. Hægt er að panta
hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt
frá 14:00-15:30. Félag eldri borgara í Garðabæ 565-6627 skrifstofa
opin miðvikudaga 13:30-15:30. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00.
Bridge í Jónshúsi kl. 13:00.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
hádegismatur kl. 11.30, stólaleikfimi og slökun kl. 13.15 og eftirmið-
dagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, ganga kl.10, síðdegis-
kaffi kl. 14:30, allir velkomnir óháð aldri, upplýsingar í síma 411-2790.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið
kl.8.50, listasmiðjan er opin fyrir alla frá 9-16, ganga kl.10, Zumba
dans leikfimi með Auði kl. 13, síðdegiskaffi kl.14:30, allir velkomnir
óháð aldri upplýsingar í síma 411-2790.
Korpúlfar Minnum á opið hús hjá Korpúlfum alla miðvikudaga eftir
hádegi í allt sumar í Borgum. Félagsvist, hannyrðir, góð samvera og
gleðilegt spjall. Kaffi á könnunni og kaffiveitingar frá 14:30 til 15:30.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Korpúlfar Gönguhópar Korpúlfa starfandi í allt sumar, hressir, bætir,
kætir allir velkkomnir kl. 10:00 alla mánudagsmorgna og miðviku-
dagsmorgna lagt af stað frá Borgum, með gleði í hjarta.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30, morgunleikfimi kl.9.45, viðtals-
tími hjúkrunarfræðings kl.10-12, upplestur kl.11, félagsvist kl.14,
Bónusbíllinn kl.14.40, heimildarmyndasýning kl.16.
Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum klukkan 10:30. Botsía í salnum
Skólabraut klukkan 11:00. Gæðastund á Listasafni Reykjavíkur,
brottför frá Skólabraut klukkan 13:20. Vatnsleikfimi Sundlaug Seltj.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13.00. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30-15.30. Allir
velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Félagslíf
Samkoma kl. 20 í Kristniboðs-
salnum. Ræðumaður Kristján
Þór Sverrisson. Allir velkomnir.
Smá- og raðauglýsingar
Dreifingardeild Morgunblaðsins leitar að
fólki 13 ára og eldra, til að bera út blöð.
Blaðburður fer fram mánudaga til laugardaga
og þarf að vera lokið fyrir kl. 7 á morgnana.
Allar nánari upplýsingar í síma 569 1440 eða dreifing@mbl.is
Hafðu samband í dag
og byrjaðu launaða líkamsrækt strax á morgun.
www.mbl.is/laushverfi
Vantar þig aukapening?