Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
Verð á mann í
tveggja manna herbergi
ISK159.900 ISK189.000
Miðað við 2 saman
Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600
Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 |
info@smyril-line.is | www.smyrilline.is
Hópferð með Fúsa
á Brekku 11. árið í röð
Bókaðu
snemma!
Uppselt
öll árin
Farið frá Seyðisfirði 5. september
og komið til baka 11. september
Færeyjaferð með Fúsa á Brekku og Svenna
frá Hafursá. Skoðunarferðir, skemmtun,
gisting í 4 nætur á Hótel Færeyjummeð hálfu
fæði. Gist er í Þórshöfn og þaðan er farið í
skoðunarferðir um eyjarnar. Hér getur þú
upplifað Færeyjar með skemmtilegu fólki.
Aðeins
6 sæti
laus
Verð á mann í
eins manns herbergi
Oftast hef ég haldið veislu og boðið fjölda fólks á stórafmælummínum en þetta verður lágstemmdara nú. Fjölskyldu og góð-um vinum er boðið hingað heim í tilefni dagsins, sem er líka
tilhlökkunarefni. Í fyrra þegar ég varð 69 ára hélt ég konunni minni
óvænta veislu með söng og gleði og allar vinkonur hennar voru leyni-
gestir. Það var skemmtilegt,“ segir Sigurður Lyngdal, fyrrverandi
kennari, sem er sjötugur í dag.
Sigurður er fæddur og uppalinn í Reykjavík en á rætur út á land
eins og flestir Íslendingar. Foreldrar hans voru Mikkelína Sigurðar-
dóttir og Reynir L. Magnússon og Ari Guðmundsson stjúpfaðir. „Ég
átti skemmtilega æsku hér í Reykjavík. Var fyrst að spá í skip-
stjórnarnám en fann síðan út að kennslan væri starf sem hentaði mér
og menntaði mig samkvæmt því. Ég byrjaði að kenna í Fellaskóla þeg-
ar starfsemi hans hófst árið 1972. Svo var ég skólastjóri í tvo vetur á
Borgarfirði eystra en sneri svo aftur í bæinn og kenndi frá 1975 og til
starfsloka árið 2008 við Hólabrekkuskóla. Kenndi þar meðal annars
leiklist, dönsku og íslensku. Þarna var fínt að vera; ég kynntist aldrei
Breiðholtsvillingum heldur bara fínum krökkum sem margir eru vinir
mínir enn í dag,“ segir Sigurður, sem í 15 ár var aðstoðarskólastjóri
Vinnuskóla Reykjavíkur. Hann segir margt minnisstætt frá þeim tíma
og víða sjái verkanna stað; svo sem í grænum skógarlundum í borg-
inni og nágrenni hennar.
„Áhugamálin eru mörg, til dæmis eldamennska, sagnfræðigrúsk og
þjóðmálin almennt. Ég lét líka alltaf til mín taka í málefnum minnar
stéttar,“ segir Sigurður, sem er kvæntur Magneu Antonsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Reyni, sem er 42 ára, Anton 34 ára og Kristínu Ýri
sem er þrítug. Barnabörnin eru þrjú. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sigurður Lyngdal er sjötugur í dag
Verka sér víða stað
Hamingjusöm Sigurður Lyngdal og Magnea Antonsdóttir kona hans.
H
erdís Gunnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
15.8. 1968 og ólst upp
í Njörvasundi. Hún
var í Langholtsskóla,
lauk stúdentsprófi frá MS 1988,
BSc-prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ
1993, MSc-prófi í hjúkrunarfræði frá
HÍ 2001 og MBA-prófi í við-
skiptafræði frá HÍ 2009. Hún er sér-
fræðingur í barnahjúkrun frá 2013
og hefur verið klínískur lektor í
barnahjúkrun við HÍ frá 2014. Eftir
stúdentspróf var Herdís hálft ár
sjálfboðaliði, m.a. í kristniboði og
hjálparstarfi í Hondúras.
Herdís var hjúkrunarfræðingur
við Landspítala 1993-2001, sinnti
rannsóknarverkefni sem hjúkr-
unarfræðingur á barnasviði Land-
spítala 2001, var hjúkrunardeild-
arstjóri á barnaskurðdeild og
dagdeild barna við Barnaspítala
Hringsins 2001-2007, verkefnastjóri
mannauðs- og gæðamála Hringsins
2007-2008, verkefnastjóri á þróun-
arskrifstofu framkvæmdastjóra
hjúkrunar Landspítala 2008-2011,
verkefnastjóri og klínískur ráðgjafi
hjá stjórn heilbrigðis- og upplýs-
ingatæknideildar Landspítala 2011-
2014 og er forstjóri Heilbrigðisstofn-
unar Suðurlands frá 2014.
Herdís Gunnarsdóttir, forstj. Heilbrigðisstofnunar Suðurlands – 50 ára
Með eiginmanni og sonum Herdís og Guðmundur með Davíð, Markúsi og Matthíasi í sumarblíðunni heima í garði.
Þrjár virkar kynslóðir
í starfi KFUM og K
Skógarmenn Markús, Davíð og Matthías við Gamla skála í Vatnaskógi.
Reykjanesbær
Savelijs Bobilevs
fæddist hinn 27.
desember 2017 kl.
15.35. Hann vó
3.365 g og var 50
cm langur. For-
eldrar hans eru
Kristine Borisova
og Dimitrijs Bobi-
levs.
Nýr borgari
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is