Morgunblaðið - 15.08.2018, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú stendur frammi fyrir kröfum um
aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi.
Ekki láta hugfallast þótt þér sé hafnað í
fyrstu.
20. apríl - 20. maí
Naut Lífið er dálítið upp í móti núna og þú
finnur til kraftleysis og lasleika. Leitaðu
læknis því hann rannsakar, brýtur til
mergjar og hættir ekki fyrr en hann kemst
til botns í því sem hann vill vita.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Sköpunarmáttur þinn er mikill
þessa dagana og ímyndunaraflið á flugi. Þú
ert á villigötum í ástamálunum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt gaman sé að breyta til er fá-
ránlegt að gera það breytinganna vegna.
Vertu opin/n fyrir tillögum um hvernig þú
getur róað hugann og aukið samúð með
náunganum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ef fyrirmæli eða leiðbeiningar frá yfir-
manni eru óskýr skaltu forðast að draga af
þeim ályktanir. Gættu þess að halda eðli-
legri umgengni við vini þína og vanda-
menn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þetta er dásamlegur dagur til list-
sköpunar. Nú er tíminn til að koma sér inn
í nýjan hóp. Notaðu tækifærið til að koma
ár þinni sem best fyrir borð.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vertu óspar á að sýna öðrum hæfileika
þína því það þjónar tilgangi þínum best. Þú
hefur vit fyrir makanum í vissu máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það hefur verið erfitt fyrir þig
að byggja upp samband við annað fólk.
Reyndu að forðast að missa stjórn á þér
og mundu að sumt gerist eins og sjálf-
krafa.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það gengur ekki að þú hafir allt
á hornum þér, bæði við ástvini og vinnu-
félaga. Horfðu á jákvæðu hliðar málanna,
það verður allt auðveldara þannig.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Bjartsýni, kraftur og áhugi ein-
kennir þig. Ekki láta aðra taka ákvarðanir
fyrir þig. Treystu þínum tilfinningum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú nýtur mikilla vinsælda um
þessar mundir. Gakktu þó hægt um gleð-
innar dyr og mundu að ekki eru allir við-
hlæjendur vinir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér vegnar vel ef þú vinnur undir-
búningsvinnuna þína. Reyndu að hafa hlut-
ina á hreinu og láta ekki stressið ná tökum
á þér.
Bjarni Karlsson skrifaði áfimmtudag á Boðnarmjöð:
„Það er heldur hráslagalegt veður
á Norðurlandi eystra í dag. Ferða-
mönnum sem og landvörðum er
kalt“:
Kuldinn næðir, áfram æðir,
engin glæðir hjörtu manns.
Vörður fræðir, vel sig klæðir,
vegferð ræðir túristans.
Sama dag skrifaði Hallmundur
Guðmundsson „Ferðaljóð úr Afabíl“:
Mjög á Kili mér er vært
og mig þar vel um loftar.
En þokkalega þángað fært
þyrfti að vera oftar.
Jón Atli Játvarðarson hefur verið
á svipuðum slóðum:
Illa snúin öll mín tól,
ekkert vit að doka.
Báglegt skjól við Beinahól
og bæði súld og þoka.
Daginn eftir orti Hallmundur enn
„Ferðaljóð úr afabíl“ og var þá kom-
inn til Dalvíkur:
Nú í æðar færist fjör
og feikn öll mun ég sprikla.
Fæ að éta flot og mör
á fiskidaginn mikla.
Og enn orti Hallmundur frammi í
Firði „Loka ferðaljóð úr Afabíl“:
Hæst það ber að hér með er;
hættur að sulla í búsinu.
Svo amma ég trúi sé töpuð mér;
er týnd í Jólahúsinu.
Á Hóli á Ufsaströnd voru miklir
sjósóknarar og veiðiklær. Ort var
þegar þeir komu að landi með
óvenjumikinn hákarlsafla:
Allar gjafir eru frá
æðstum himna drottni.
En hákarlinn sem Hólsmenn fá
hann er neðan frá botni.
Látra-Björg var fædd á Stærri-
Árskógi árið 1716 og dó dauðavorið
1784 og er af ýmsum talið að hún sé
grafin á Ufsum. Sjórinn var henni
kært yrkisefni:
Bið ég höddur blóðugar,
þó bregði upp faldi sínum,
Ránardætur reisugar
rassi að vægja mínum.
Andófs þéttan eigum sprett,
það eykur setta pínu.
Við höfum rétt á Riflaklett
rakið slétta línu.
Eiríkur Hallsson (1614-1698) í
Höfða kvað:
Girnist öldin gjörvar stökur,
gaman í máta þekkast er,
þegar á kvöldin vaxa vökur,
vífin láta skemmta sér.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Á fiskidaginn mikla og ferðaljóð
„ÉG HEYRÐI AÐ BRÚÐKAUPSBANDIÐ ÞITT
HEFÐI FORFALLAST.“
„GETURÐU SENT DRÁTTARBÍL? ÉG ER
SVONA 300 METRA INNAN VIÐ HLIÐIÐ AÐ
LJÓNAGARÐINUM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að ganga í takt!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VEISTU HVAÐ ER
SKEMMTILEGT?
VEISTU ÞAÐ?
HA? HA?
JÆJA, ÉG SKAL
BÍTA. HVAÐ ER
ÞAÐ?
AÐ GELTA AÐ
KÖTTUM
ÉG VERÐ AÐ
PRÓFA ÞAÐ VIÐ
TÆKIFÆRI
EFTIR AÐ ÞÚ GIFTIR ÞIG ER NÁND VIÐ
TENGDAFÓLKIÐ MIKILVÆG!
SVO AÐ ÞÚ HEYRIR HVAÐ ÞAU
ERU AÐ SEGJA UM ÞIG!
Víkverji lenti á sunnudag í 11 þús-und bíla halarófu á þjóðvegi
eitt. Tala þessi er reyndar ekki ná-
kvæm, en fengin með því að hlýða á
fréttir af aðsókn á fiskidaginn á
Dalvík þar sem margt var um
manninn, en minna um bílastæði.
Víkverja fór að gruna að þessi bíla-
fjöldi væri ávísun á vandræði þegar
hann nálgaðist Hvalfjarðargöngin.
Hvarflaði meira að segja að honum
að aka fyrir Hvalfjörðinn, og nokkr-
um mínútum síðar nagaði hann sig í
handarbökin (án þess þó að taka
hendur af stýri) þegar hann ók fyrir
Akrafjallið, allt var stopp og um 12
kílómetrar í göngin.
x x x
Það tók sennilega rúman hálftímaað silast þessa tólf kílómetra að
göngunum. Vissulega er fallegt að
horfa yfir Hvalfjörðinn, en það var
ekki ætlunin þetta ágæta kvöld að
halda í slíkan útsýnistúr. Á meðan
Víkverji sat fastur hugsaði hann
með sér að hann hefði síst verið
lengur að fara fyrir Hvalfjörðinn.
Um leið velti hann fyrir sér að
venjulega borgaði hann með glöðu
geði fyrir að fara í gegnum göngin,
þar sem það flýtti för hans svo um
munaði. Í þetta skiptið borgaði
hann hins vegar fyrir að láta seinka
för sinni og fannst það öfugsnúið.
x x x
Þetta var í annað skipti í sumarsem Víkverji lenti í örtröð við
Hvalfjarðargöng. Kerfið við göngin
ræður engan veginn við þessa miklu
kúfa. Víkverji spurði sjálfan sig
hvers vegna göngin væru ekki ein-
faldlega opnuð fyrir umferð þegar
svona stæði á og hugsaði um leið
með sér að hægðarleikur væri að
setja upp skilti skömmu áður en
komið er að veginum, sem liggur
fyrir Hvalfjörðinn, með upplýs-
ingum um hvað biðin sé löng við
gangamunnann. Þá gætu vegfar-
endur tekið upplýsta ákvörðun um
hvort sé betra, krókur eða kelda.
Að síðustu velti Víkverji fyrir sér
hvort ekki væri allt of seint að velta
þessu fyrir sér því að ekki eru nema
nokkrar vikur í að Spölur afhendi
ríkinu göngin og gjaldtaka í þau
verði lögð niður.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.
(Sálmarnir 106.1)