Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 30

Morgunblaðið - 15.08.2018, Side 30
Stjórnendum listasafnsins í Montreal í Kanada var brugðið á dögunum þegar auglýsingu safnsins um vænt- anlega sýningu á málverkum meist- arans Pablos Picasso var hafnað af Facebook vegna nektar í málverk- unum. Forstöðumenn safnsins bætt- ust þá í röð þeirra sem hafa krafist svara frá stjórnendum samfélags- miðilsins eftir að birting á listaverk- um sem algrími í hugbúnaði þess telja óásættanleg fá ekki að koma fyrir augu notenda miðilsins. Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað talsvert um þessi mál að undanförnu og þá er þess iðulega getið að heima- síðu myndlistarkonunnar Brynhild- ar Indriðadóttur var lokað eftir að hún birti á henni myndir af lista- verkunum sem hún sýndi á Aust- urvelli á Listahátíð í Reykjavík í sumar, af ungum berbrjósta konum við málverk af körlum í opinberum stofnunum í Reykjavík. Stjórnendur Facebook höfðu gefið út fyrr í sumar að þeir myndu leyfa birtingu á nekt í ljósmyndum ef hún væri hluti af viðurkenndum lista- verkum, og málverk mættu birtast, en bannið á málverkunum eftir Pi- casso þykir, að sögn Politiken, sýna að hugbúnaðinum sé það mögulega ekki ljóst. efi@mbl.is Facebook leyfði ekki málverk Picassos  Orð yfirmanna stangast á við gerðir Montreal Museum of Fine Arts Nekt Facebook stöðvaði auglýsingu safns vegna málverks Picassos „Femmes à la toilette“ frá 1956. 30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018 Til í mörgum stærðum og ge Nuddpottar Fullkomnun í líkamlegri vellíðan rðum Vagnhöfða 11 | 110 Reykjavík | www.ofnasmidja.is | sími 577 5177 lækka upphitunarkostnað Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Varmadælur Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk Ed Hamell, sem er betur þekktur undir sviðsnafninu Hamell on Trial, heimsækir Íslendinga í vikunni og heldur samtals ferna tónleika. „Hamell er þekkt vörumerki í neðan- jarðar og andspyrnusenunni vest- anhafs hvar hann hefur verið lengi að og unnið með tónlistarmönnum á borð við Mike Watt, Ani di Franco og Henry Rollins. Rætur Hamells liggja í síðpönkinu en hann sækir líka mikið ýmsa aðra strauma bandarískrar tón- listarhefðar,“ segir í tilkynningu frá tónleikarahaldara. „Tónleikar með Hamell on Trial eru mikil upplifun. Þar fer saman gríðarlega öflugt rokk og ról, hár- beittir og flæðandi textar og frábært samband við áhorfendur. Hann kem- ur einn fram með hljóðnema og Gib- son kassagítar frá árinu 1937 en á köflum fer hann slíkum hamförum að það er sem heil stórsveit standi á svið- inu. Hann fer um víðan völl í texta- gerð sinni en þeir einkennast gjarnan af megnri óbeit á valdi og valdbeit- ingu (hann kallar sig líberal anark- ista), virðingu og samúð með þeim sem minna mega sína og hárbeittum húmor, oftast sótsvörtum. Hann segir í mörgum lögum sínum sögur af skrautlegu persónugalleríi í undir- heimum bandarískra stórborga. Þá fá stjórnmálamenn, fjölmiðlamenn og álitsgjafar gjarnan hressilega á bauk- inn hjá Hamell, einkum þeir sem sá í og yrkja akur öfgahægris og mann- haturs. [… og hikar] ekki við að gera grín að sjálfum sér og áhorfendum ef þeir liggja vel við höggi. Á stundum geta skilin á milli tónleika og uppi- stands orðið býsna óljós. Það er mikill fengur fyrir áhugafólk um kraftmikið gítarpikkandi pönkrokk, flugbeitta samfélagsrýni og leiftrandi húmor á fá kallinn til landsins í sumar.“ Fyrstu tónleikarnir er á Húrra í Reykjavík annað kvöld og síðan leik- ur Hamell í Frystiklefanum á Rifi á föstudag, Daladýrð í Fnjóskadal á laugardag og loks í Havarí í Berufirði á sunnudag. Fer hamförum Ed Hamell þykir búa yfir leiftrandi húmor og vera flug- beittur samfélagsrýnir. Ed Hamell með ferna tónleika hérlendis Teitur Gissurarson teitur@mbl.is Tónverkið Internal Human verður í kvöld, miðvikudag, flutt í neðan- jarðarhvelfingunni í Brunel-safninu í London. Höfundurinn er Lilja María Ásmundsdóttir, tón- smíðanemi við City University of London. Verkið vinnur á mörkum mynd- listar og tónlistar en einnig tekur þátt í sýningunni einn dansari og er verkið í fjórum hlutum. Hver hluti hefur sinn karakter „Þeir hafa ákveðnar tengingar, “ segir Lilja um hlutana fjóra en bendir á að hver hluti hafi skýran karakter. Allir hlutarnir eru byggðir upp með raftónlist en síðan spila inn í m.a. bassaflauta, píanó og raf- magnsgítar. „Hver og einn kafli hefur með ákveðna hluti sem gerast innra með mannverunni að gera, ákveðnar til- finningar,“ segir Lilja og nefnir sem dæmi þá tilfinningu eða það um- breytingarferli þegar mannveran þarf að kljást við hræðslu en nær svo að leiða sig úr því. Verkið byrjaði hún að semja í febrúar og lauk við nú í júní. „Svo hefur bara tekið við æf- ingaferli og fínpússun og svo fram- vegis,“ segir Lilja. Flytjendurnir fjórir sem taka þátt í verki Lilju koma úr ýmsum áttum en þeirra á meðal er bróðir hennar. „Mikael Máni gítarleikari er bróðir minn. Berglind María flautu- leikari var leiðbeinandinn minn þeg- ar ég skrifaði bachelor-ritgerðina mína,“ segir Lilja María og bætir við: „Inês Zinho Pinheiro er dansari og ég kynntist henni bara í gegnum kennarann minn í háskólanum. Svo er Emily Eaton flautuleikari nýútskrifuð úr City Universiy of London.“ Leikið á hljóðskúlptúr Eins og áður segir tekur einn dansari þátt í verkinu en spurð hvort hún hafi samið bæði tónlistina og dansinn svarar Lilja: „Nei, en ég gaf dansaranum ákveðin fyrirmæli eða uppskrift að þessari veru sem hún á að túlka. Hún nálgast skúlp- túrinn út frá aðferð sem kallast „contact improvisation“ dans.“ Skúlptúrinn sem Lilja nefnir smíðaði hún sjálf og framleiðir hann bæði ljós og hljóð. Hann er að Lilju sögn mjög sjónrænn og bætir hún við: „Maður sér kannski ekkert við fyrstu sýn að þetta sé eitthvert fyrirbæri sem gefur frá sér hljóð. Það er hægt að nálgast hann á mismunandi vegu, til dæmis er hægt að setja strengi á hann, en í þessu tilfelli eru málmhlutir festir á rammann sem bregðast við því þeg- ar dansarinn er í sínum ham.“ Áður en Lilja hóf nám í tón- smíðum lærði hún á fiðlu og síðar á píanó, en hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands vorið 2016. Þá mun hún útskrifast með meistaragráðu í tónsmíðum frá áðurnefndum City University nú í lok ágústmánaðar. Ljósmynd/Aðsend Hæfileikarík Lilja María hefur bæði lært á fiðlu og píanó. Hún lýkur meistaranámi í tónsmíðum í lok mánaðar. Innra með mannverunni  Lilja María flytur frumsamið verk í London í kvöld  Verk í fjórum hlutum  Litli bróðir í hópi flytjenda

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.