Morgunblaðið - 15.08.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2018
Nú finnur þú það
sem þú leitar að á
FINNA.is
Borgarstjóri ítölsku borgarinnar
Trieste hefur mótmælt veggspjaldi
sem hinn heimskunni gjörninga-
listamaður Marina Abramovic var
fengin til að gera fyrir hina árlegu
Barcolana-siglingakeppni sem er
haldin úti fyrir Trieste. Borgar-
stjórinn er ósáttur við slagorðið á
fánanum sem listakonan veifar á
veggspjaldinu, en á honum stendur
„We’re all in the same boat“ – við
erum öll á sama báti.
Siglingakeppnin var fyrst haldin
árið 1969 og sú hefð hefur skapast
að fá á hverju ári listamann til að
gera nýtt veggspjald. Verk
Abramovic var opinberað í síðasta
mánuði og er sagt, samkvæmt The
Art Newspaper, bera „alþjóðleg
skilaboð þar sem hvatt er til virð-
ingar fyrir umhverfinu“.
Nokkrum vikum eftir að utan-
ríkisráðherra Ítalíu og formaður
hins hægrisinnaða flokks Lega
Nord, Matteo Salvini, hafði tilkynnt
að höfnum landsins yrði lokað fyrir
bátum með flóttamenn af Miðjarð-
arhafi tók settur borgarstjóri
Trieste, Paolo Polidori, að gagn-
rýna veggspjald Abramovic á sam-
félagsmiðlum. Hann sagði það vera
„óásættanlegt og smekklaust að
skapa pólitískan áróður úr þessum
viðburði, Barcolana-keppninni, sem
tilheyrir borginni allri“. Í öðrum
pósti líkti hann veggspjaldinu við
kommúnískt veggspjald af Maó for-
manni.
Í kjölfarið krafðist Polidori þess
að veggspjaldið yrði hvergi sjáan-
legt í Trieste og yrði ekki notað við
neina kynningu á keppninni. Hótaði
hann jafnframt að borgin hætti að
styrkja keppnina ef veggspjaldið
sæist. Talsmenn keppninnar segja
hins vegar að veggspjaldið verði
áfram notað við kynningu á keppn-
inni, heima við og erlendis.
Umdeilt veggspjald
Marinu Abramovic
Umdeilt Veggspjald Marinu
Abramovic er ekki öllum að skapi.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Við vorum svo gæfusöm að vera
valin einn af úrvalsæskukórum
Evrópu sem ásamt tveimur öðrum
kórum unnu að sameiginlegum
flutningi á verki eftir Arvo Pärt á
hátíðinni undir stjórn eistneska
stjórnandans Tönu Kaljuste. Í ár
unnum við með einum af bestu
æskukórum Þýskalands og Æsku-
kór Madrid,“ segir Þorgerður Ing-
ólfsdóttir, stjórnandi Hamrahlíðar-
kórsins, um vel heppnaða ferð
kórsins til Eistlands þar sem hann
tók þátt í virtustu og stærstu
kórahátíð Evrópu, Europa Cantat,
í Tallinn, en hátíðin var í ár haldin
í 20. sinn.
Sonja Greiner, framkvæmda-
stjóri Europa Cantat, deildi nokkr-
um upptökum af flutningi kórsins
á Facebook-síðu sinni og benti þar
á að Hamrahlíðarkórinn væri sá
kór í sögu hátíðarinnar sem oftast
hefði komið fram á henni. Meðal
þeirra sem skrifa athugasemdir við
færsluna er Ágnes C. Szalai, sem
um árabil hefur setið í stjórn EC
og tónlistarráði hátíðarinnar, en
hún er mjög þekkt kóramanneskja
og kórstjóri í Ungverjalandi. Rifj-
ar hún upp að hún hafi fyrst heyrt
í Hamrahlíðarkórnum fyrir rúmum
þrjátíu árum og bendir á að kórinn
heilli ávallt áheyrendur. „Lykillinn
að töfrum kórsins er Þorgerður
Ingólfsdóttir, leiftrandi og líflegur
persónuleiki hennar og ótrúlegt
músíkalítet,“ skrifar Szalai.
Sungu flesta tónleika allra
kóra á hátíðinni í ár
„Þetta var í 13. skiptið sem ég
sæki þessa hátíð með kórnum mín-
um, sem ávallt hefur verið skip-
aður nýju og ungu söngfólki,“ seg-
ir Þorgerður og tekur fram að það
sé ávallt gefandi og spennandi að
veita ungum Íslendingum tækifæri
á að taka þátt í menningarviðburði
á borð við kórahátíðina Europa
Cantat.
„Hátíðin er haldin á þriggja ára
fresti,“ segir Þorgerður, sem sótti
fyrstu hátíð sína 1976 og hefur æ
síðan mætt með kórinn sinn, að
undanskiptum tveimur skiptum.
„Árið 2003 mætti ég sem gestur
hátíðarinnar, en þá var kórinn að
fara til Filippseyja og hafði ekki
tök á að mæta líka á þessa hátíð. Í
hitt skiptið stjórnaði ég stóra
Evrópukórnum, Raddir Evrópu,
sem myndaður var þegar níu borg-
ir voru menningarborgir Evrópu
árið 2000.
Í ár voru þátttakendur á hátíð-
inni um 4.500 frá 51 landi. „Við
vorum sá kór sem var valinn til að
halda flesta tónleika, en við héld-
um sjö tónleika á átta dögum,“
segir Þorgerður og bendir á að
engir kórtónleikar hafi verið á há-
tíðinni daginn sem 100 ára sjálf-
stæðisafmælis Eista var minnst.
Aðra daga hátíðarinnar voru allt
að tíu til fjórtán kórtónleikar á
dag.
„Hápunktur ferðarinnar fyrir
okkur var þegar við fengum, fyrst
allra kóra, að syngja í húsakynn-
um Arvo Pärt-stofnunarinnar að
viðstöddu tónskáldinu, eiginkonu
hans og fjölskyldu. Byggingin, sem
er úti í miðjum skógi, er undur-
falleg og birtir dásamlega teng-
ingu milli himins og jarðar og við
listina,“ segir Þorgerður, en verið
er að leggja lokahönd á bygging-
una, sem er í Laulasmaa og vígð
verður um miðjan október. Haldin
var alþjóðleg samkeppni um bygg-
ingu hússins og bárust yfir 80 til-
lögur.
Aldrei sama prógrammið
Að sögn Þorgerðar hefur ríkt
mikill vinskapur milli hennar og
tónskáldsins og fjölskyldu hans
síðan hann samdi og tileinkaði
henni verkið … which was the son
of … árið 2000, en texti verksins
er ættartala Jesú úr Lúkasarguð-
spjalli. „Þegar Arvo Pärt frétti að
við værum að koma til Eistlands
buðu þau fjölskyldan okkur öllum
heim til sín,“ segir Þorgerður og
bendir á að Pärt velji sér yfirleitt
trúarlega texta til að semja við.
„Hann valdi þennan texta af því að
hann varð svo heillaður þegar ég
sagði honum frá íslensku nafna-
hefðinni þar sem börn eru kennd
við föður sinn,“ rifjar Þorgerður
upp.
Að vanda voru íslensk tónverk
áberandi á efnisskrá Hamrahlíðar-
kórsins í Eistlandi. „Markmið okk-
ar var að kynna íslenska músík,“
segir Þorgerður, en kórinn söng
m.a. verk eftir Jón Leifs, Þorkel
Sigurbjörnsson, Atla Heimi
Sveinsson, Jón Nordal, Huga Guð-
mundsson og Kolbein Bjarnason.
Kirkjur voru meðal tónleikastaða
kórsins og þar rataði Ættartala
Jesú úr Lúkasarguðspjalli eftir
Pärt auðvitað á efnisskrána. „Við
sungum aldrei nákvæmlega sama
prógrammið tvisvar,“ segir Þor-
gerður.
Klassíkin okkar næsta verk-
efni Hamrahlíðarkórsins
Spurð hvort hún reikni með að
mæta með kór sinn á næsta Eu-
ropa Cantat eftir þrjú ár svarar
Þorgerður: „Svoleiðis hlutum get-
ur enginn svarað nema guð einn.
Ég hélt fyrir þremur árum, þegar
hátíðin var haldin í Ungverjalandi,
að það yrði síðasta hátíðin þar sem
ég mætti sjálf með kór þó að ég
myndi mögulega mæta sem gestur.
Þegar Sonja Greiner, fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, og
fleiri lögðu mjög hart að mér að
mæta í ár fannst mér ég verða að
svara því kalli,“ segir Þorgerður
og bendir á að næsta verkefni
Hamrahlíðarkórsins tengist Sin-
fóníuhljómsveit Íslands, því kórinn
syngur á tónleikunum Klassíkin
okkar í Hörpu 31. ágúst sem sýnd-
ir verða í beinni sjónvarpsútsend-
ingu.
Vinátta Hjónin Arvo og Nora Pärt fyrir framan Hamrahlíðarkórinn. Þorgerður Ingólfsdóttir er lengst til hægri.
„Ótrúlegt músíkalítet“
Hamrahlíðarkórinn fékk fyrstur kóra að syngja í húsa-
kynnum Arvo Pärt-stofnunarinnar í Eistlandi að viðstöddu
tónskáldinu Kórinn tók þátt í Europa Cantat í 13. sinn
Glæsileg Hamrahlíðarkórinn kemur ávallt fram í íslenskum þjóðbúningum.