Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.08.2018, Blaðsíða 1
MIKILL KEPPNISMAÐURFJÖLHÆFIR DRÓNAR ssa með rafdrifinni pumpu skýtur þráðbeint 4 Drónafyrirtækið Svarmi hefur notað gervigreindartækni til að tengja myndir dróna við myndir úr gervihnetti. 14 VIÐSKIPTA 4 Ísland hefur frá stofnun verið það land sem gerir hvað best sölulega í Domino’s heiminum. Keðjan fagnar nú aldarfjórðungsafmæli hér á landi. by U Vatns nni í samvinnu við Útlán sjóðanna ná jafnvægi Ný útlán lífeyrissjóðanna til sjóð- félaga sinna námu rétt ríflega 9 millj- örðum í júní síðastliðnum. Þetta kem- ur fram í nýbirtum tölum Seðlabanka Íslands. Er þetta í fyrsta sinn sem stofnunin birtir þessar tölur að teknu tilliti til uppgreiðslna og umfram- greiðslna. Útlánin í júní voru ríflega milljarði lægri en í maí síðastliðnum þegar þau námu 10,1 milljarði króna. Á fyrstu sex mánuðum ársins lánuðu sjóðirnir í formi nýrra sjóðfélagalána, að teknu tilliti til fyrrgreindra atriða, 47,5 milljarða króna. Er það litlu lægri fjárhæð en á fyrstu sex mán- uðum ársins 2017 þegar þeir lánuðu 48,8 milljarða króna. Er það lang- hæsta fjárhæð sem þeir hafa lánað á fyrri helmingi árs og raunar aðeins síðari helmingur árs í fyrra sem slær honum við. Þá lánuðu sjóðirnir 49,3 milljarða. Samdrátturinn á fyrstu sex mánuðum þessa árs, samanborið við sama tímabil í fyrra nemur 2,8%. Töl- urnar benda til þess að útlánaaukn- ing sjóðanna sé nú að ná jafnvægi en í fyrra jukust þau um 72% yfir fyrr- greint tímabil frá fyrra ári, 2016. Margt virtist því benda til þess að sjóðirnir nálguðust útlánatölur við- skiptabankanna þriggja, sem borið hafa höfuð og herðar yfir sjóðina á umliðnum árum á lánamarkaði sem byggist á veðtöku í íbúðarhúsnæði. Það sem af er þessu ári hafa bank- arnir veitt lán til heimilanna í landinu, með veði í húsnæði, 59,2 milljarða króna umfram upp- og umfram- greiðslur. Á fyrstu sex mánuðum síð- asta árs námu sömu útlán hins vegar 53,1 milljarði króna. Nemur aukn- ingin á vettvangi bankanna því 11,5% milli ára. Í fyrra juku þeir hins vegar útlánin frá fyrstu sex mánuðum árs- ins 2016 um 77%. Fóru úr 30 millj- örðum króna í fyrrnefndan 53,1 millj- arð. Þessar tölur vitna um að bilið milli bankanna og lífeyrissjóðanna er aftur tekið að aukast eftir að stappaði nærri í fyrra að sjóðirnir stæðu jafn- fætis bönkunum. Óverðtryggt eykst hjá bönkum Á fyrstu sex mánuðum þessa árs nam hlutdeild óverðtryggðra sjóð- félagalána 24% af heildarútlánum sjóðanna en verðtryggð lán svöruðu til 76% af þeim. Hefur skilið nokkuð á milli lánaflokkanna tveggja frá fyrstu sex mánuðum síðasta árs þegar hlut- deildin var 32,6% í óverðtryggðu og 67,4% í verðtryggðu. Allt aðra sögu er að segja af lánum bankanna sem tryggð eru með veði í húsnæði. Þannig er hlutdeild lána- flokkanna nærri hnífjöfn, eða um 50%. Er það gjörbreyting frá fyrra ári þegar óverðtryggð útlán bank- anna voru aðeins um 4,3% af heildinni á móti 96% verðtryggðra. Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Ný útlán lífeyrissjóða til sjóðfélaga á fyrstu sex mánuðum ársins voru ögn minni en yfir sama tímabil í fyrra. Á sama tíma spýta bankarnir áfram í. Fyrstu sex mánuðir ársins, að teknu tilliti til upp- og umframgreiðslna Milljarðar kr. Ný útlán banka og lífeyrissjóða 2016-2018 60 50 40 30 20 10 0 Bankar Lífeyrissjóðir 59,2 53,1 30,0 47,548,8 28,4 2016 2017 2018 2016 2017 2018 He im ild : S eð la ba nk i Í sl an ds Úrvalsvísitalan EUR/ISK 1.900 1.800 1.700 1.600 1.500 1.400 9.2.‘18 9.2.‘18 8.8.‘18 8.8.‘18 1.772,77 1.589,08 130 125 120 115 110 125,1 124,25 Eigendur Húrra Reykjavík segja að birgðastýring og innkaup í verslun sem sé í vexti sé flókið starf. Komið hefur fyrir að búðin hefur staðið nánast tóm eftir jólainnkaupin, en einnig hafa þeir setið uppi með of mikið af vörum. „Við höfum áttað okkur á því með tímanum að birgðastýring er sérstök listgrein,“ segir Jón Davíð. „Ég tala nú ekki um í tískubransanum þar sem landslagið breytist nánast vikulega. Að einhverju leyti erum við og starfsfólkið sem er ábyrgt fyrir því að kaupa inn í verslanir okkar, bara spákaupmenn. Við þurfum að sjá fyrir hvað verður í tísku eftir ár eða meira. Þegar þú ert að vaxa um 300 til 400% milli ára, þá er erfitt að átta sig á því hversu mikið á að kaupa inn fyrir næsta tímabil. Við höfum kynnst því að það er rosalega dýrt að vaxa og binda peninginn sinn í stærri lager. Tísku fylgir spákaupmennska Morgunblaðið/Valli Sindri Snær og Jón Davíð eigendur Húrra Reykjavík á Hverfisgötu. Sindri Snær og Jón Davíð, eigendur Húrra Reykjavík segja birgðastýringu vera sérstaka listgrein, sem flókið sé að tileinka sér. 8 Forstjóri Fiat Chrysler, Ser- gio Marchionne, hélt veik- indum sínum leyndum, og eru ekki allir sáttir við þá staðreynd. Hverfulleiki lífs- ins hjá Fiat 10 Stöðva þurfti í þrígang við- skipti með hótelkeðjuna Caes- ars þegar rekstrarmælikvarð- inn RevPAR var undir væntingum. Mælikvarðinn RevPAR olli lækkun 11 Endurskoðun • Skattur • Ráðgjöf www.grantthornton.is Grant Thornton endurskoðun ehf. er íslenskt aðildarfélag Grant Thornton International Ltd., sem er eitt af fremstu alþjóðlegu samtökum sjálfstæðra endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækja. Grant Thornton endurskoðun ehf. sérhæfir sig í að aðstoða rekstraraðila við að nýta tækifæri til vaxtar og bættrar afkomu með skilvirkri ráðgjöf. Framsýnn hópur starfsmanna, undir stjórn eigenda, sem ávallt eru aðgengilegir viðskiptavinum, nýta þekkingu og reynslu sína til að greina flókin málefni og finna lausnir fyrir viðskiptavini sína, hvort sem það eru einkarekin, skráð félög eða opinberar stofnanir. Yfir 35.000 starfsmenn Grant Thornton fyrirtækja í meira en 100 þjóðlöndum, leggja metnað sinn í að vinna að hag viðskiptavina, samstarfsmanna og samfélagsins sem þeir starfa í. FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.