Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018FRÉTTIR Í ár er liðinn aldarfjórðungur frá stofnun Domino’s á Íslandi og af því tilefni verður mikið húllumhæ hjá pizzastaðakeðjunni seinni hluta árs. Ekkert virðist geta dregið úr hrifningu landsmanna á flatbökum og útlit fyrir að velta fyrirtækisins verði um 6 milljarðar króna á þessu ári. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Vinnumarkaðurinn er án efa stærsta áskorunin í okkar rekstri. Laun hafa hækkað mikið síðustu ár og það er töluverð samkeppni um vinnandi hendur. Við erum með um 800 manns í vinnu hjá okk- ur og þjálfun þeirra og færni er forgangsmál til þess að tryggja að allt annað virki varðandi gæði og þjónustu. Annars er ég ótrúlega heppinn með nánasta samstarfs- fólk mitt og þar er valinn maður í hverju rúmi. Hver var síðasta ráðstefnan sem þú sóttir? Í lok maí fór ég og hópur af sam- starfsfólki mínu á alheims- ráðstefnu Domino’s í Las Vegas sem haldin er annað hvert ár. Þar er farið yfir allt það nýjasta í okkar geira. Ég fór á nokkra ágætis fyrirlestra en ég læri mest á því að hitta og ræða við aðra erlenda Domino’s félaga. Ísland hefur frá stofnun verið það land sem gerir hvað best sölulega í Domino’s heiminum, en tæknin flýgur áfram og við þurfum alltaf að vera á tán- um og bæta okkur. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Ég hef mjög gaman af því að læra og fylgjast með. Ég les, hlusta á hljóðbækur, fer inn á Ted og YouTube til að kynnast sem flestu. Nýlega hef ég lesið Princip- les eftir Ray Dalio og Superhuman by Habit eftir Tynan og ég mæli með þeim báðum. Þá hefur tími minn hjá Domino’s verið sérlega lærdómsríkur, en kerfið býr yfir mikilli reynslu og þekkingu og flæði upplýsinga er mjög gott. Hver hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Margir hafa haft áhrif á mig og af flestum getur maður lært en al- mennt tel ég mikilvægast að koma fram við aðra eins og ég vil að aðrir komi fram við mig. Að stýra fyrir- tæki er jafnvægislist, það er mikil- vægt að treysta fólki fyrir verk- efnum og gefa því rými, fylgja eftir málefnum og tryggja að þau kom- ist yfir marklínuna, smita aðra með orku og kveikja áhuga. Þá er það mitt hlutverk að setja mark- mið og fá alla til að ganga í sömu átt. Hugsarðu vel um líkamann? Já, yfir það heila. Þrennt finnst mér þar skipta mestu máli, hreyf- ing, matur og svefn. Ég hreyfi mig reglulega, borða almennt hollt en svefninn má bæta. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Ég hef gaman af alls konar rekstri og viðsnúningur úr erfiðum stöðum er þess áhugaverðari. Ég er mikill keppnismaður og í þannig umhverfi nýt ég mín best. Ef Jur- gen Klopp hringir og býður mér starf Buvac þá myndi ég sömuleið- is stökkva til. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Ég er sífellt að læra en það væri helst tengt viðskiptum eða fram- tíðartækni og þróun. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Það hefur verið kröftugur hag- vöxtur síðustu ár og samhliða því hefur hagur margra fyrirtækja vænkast og það hefur haft keðju- verkandi jákvæð áhrif inn í flesta kima athafnalífsins. Á sama tíma hefur okkur tekist að halda verð- bólgunni í skefjum sem er óvana- legt í hagsögu Íslands. En núna eru blikur á lofti og kemur þar ým- islegt til. Laun hafa hækkað of mikið fyrir sum fyrirtæki og til dæmis eru margir í veitingageir- anum við þolmörk. Þá virðist ferðamannageirinn á krossgötum og þar þurfa margir að hugsa hlut- ina og áætlanir upp á nýtt. Það er jafn auðvelt fyrir hagkerfið að fara niður og upp og við þurfum að gæta okkar mjög næstu árin og vera skynsöm í ákvörðunum. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráður í einn dag? Það er hvergi betra að búa en á Íslandi en auðvitað vildi ég breyta ýmsu. Mér er t.d. ofarlega í huga að lýðræðisvæða lífeyrissjóðina þannig að sjóðsfélagar geti kosið stjórnir þeirra með beinum hætti og haft frjálst val um í hvaða sjóði þeir borga. SVIPMYND Birgir Örn Birgisson framkvæmdastjóri Domino’s Jafn auðvelt fyrir hag- kerfið að fara niður og upp Morgunblaðið/Valli „Núna eru blikur á lofti og kemur þar ýmislegt til. Laun hafa hækkað of mikið fyrir sum fyrirtæki og til dæmis eru margir í veitingageiranum við þolmörk, “ segir Birgir Örn Birgisson um ástandið í atvinnulífinu. ÁHUGAMÁLIÐ Vatnsbyssan er á margan hátt hið fullkomna leikfang og veitir jafnt ungum sem gömlum prökkurum út- rás fyrir að fíflast með dótabyssur, æfa hjá sér miðið, og stríða litlum systkinum með kaldri vatnsgusu. Spyra One er ný tegund af vatns- byssu sem umbreytir þessu klass- íska leikfangi í hátæknigræju. Spyra One er með rafdrifinni pumpu og skýtur vatninu ekki út í bunu, heldur í litlum „skotum“ sem þjóta þráðbeint í átt að skotmark- inu. Tankurinn geymir nægilega mikið vatn fyrir 25 slík skot, og þegar hann tæmist þarf einfaldlega að dýfa hlaupinu á Spyra One ofan í ílát fullt af vatni og þá sýgur byssan sjálfkrafa í sig meiri vökva. Á byss- unni er líka lítill skjár sem sýnir hversu mörg skot eru eftir í tank- inum. Safnað er fyrir Framleiðslunni á Kickstarter og geta áhugasamir tryggt sér eintak gegn 115 evra framlagi. ai@mbl.is Vatnsbyssan tekin skrefinu lengra ÖKUTÆKIÐ Strangt til tekið er farartækið Slingshot frá Polaris ekki bíll, en ekki heldur mótorhjól. Hjólin eru þrjú, og bæði farþegi og ökumaður sitja í sætum, en þurfa helst að hafa hjálm á höfði, og taugar úr stáli því þó að vélin framleiði aðeins 173 hest- öfl þá er Slingshot ekki nema 791 kg að þyngd og hröðunin því alveg í lagi. Til þessa hefur Slingshot þó aðal- lega þótt henta til þess að aka hringi á kappakstursbrautum á góðviðr- isdögum. En nú hefur Polaris kynnt til sögunnar Grand Touring-útgáfu af Slingshot – með þaki – og vilja meina að óhætt sé að halda af stað í langferð á þessu framúrstefnulega ökutæki. Auk þaksins er Grand Touring-útgáfan með öflugu hljóm- kerfi, bakkmyndavél, og snertiskjá sem ökumaður getur notað þó hann sé með hanska á höndunum. Sætin eru líka mýkri svo að ekki ætti að þurfa að stoppa á klukkutíma fresti til að standa upp og koma blóðrás- inni í baki, löppum og rassi aftur af stað. ai@mbl.is Langferðaleikfang NÁM: Ég útskrifaðist frá Menntaskólanum á Akureyri 1992 og frá Háskóla Íslands og Universitad Pompeu Fabra í Barcelona með B.S. í hagfræði 1996. SÖRF: Vann hjá Strax Inc, sem selur fylgihluti í farsíma, fyrst í Miami, síðan í London og endaði í Bonn til 2009. Þetta var frum- kvöðlafyrirtæki og ég gegndi þar ýmsum störfum, fyrst sem sölustjóri, þá stýrði ég N- og S-Ameríku deild fyrirtækisins, því næst Evrópu en síðustu árin var ég Group Managing Director. Þegar heim kom tók ég við Cintamani og síðan Domino’s 2011 þar sem ég starfa enn. Hef setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja og stofnað nokkur líka, var meðal annars einn af stofnendum Joe and the Juice á Íslandi. ÁHUGAMÁL: Best þykir mér nærvera og upplifun með fjöl- skyldu og vinum. Íþróttir eru ofarlega á blaði, góður matur og ferðalög. Þá er ég sífellt að reyna að vera besta útgáfan af sjálf- um mér sem kallar á alls konar athafnasemi. FJÖLSKYLDUHAGIR: Er í sambúð með Hrönn Róbertsdóttur tannlækni og saman eigum við 5 börn. Jón Arnar, Írisi Þóru, Isey, Evu Júlíu og Ísold. HIN HLIÐIN SVEIGJANLEGOGLIPUR INNHEIMTUÞJÓNUSTA Hafðu samband, við leysum málin með þér! Laugavegur 182, 105 Rvk. | Sími: 510 7700 | momentum@momentum.is jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.