Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 8

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018VIÐTAL flottan bol eða peysu og svo strigaskó. En þegar til Íslands var komið voru einhverjir leiðinlegir dyraverðir að segja að það væri „dresscode“ inn á bari og að það þyrfti að klæðast svörtum skóm. Fólki var ekki hleypt inn jafnvel þó að það væri í flottum Nike-strigaskóm. Það var bara einhver kúltúr sem var ekki búinn að skila sér hingað og bara tímaspursmál hvenær það myndi gerast. Haustið 2014 komum við með þennan kúltúr hingað til lands, með opnun Húrra.“ Sindri segir að heildarhugmynd Húrra Reykjavík sé að bjóða upp á vörur sem séu hversdagslegar gæðaflíkur sem eru í tísku hverju sinni. „Þú ert ekki að kaupa þér föt fyrir djammið eða skólann. Heldur ert þú að kaupa þér föt til þess að líta vel út, alltaf,“ heldur Sindri áfram. „Í Köben fórstu út á morgnana á hjólinu þínu og svo fórstu ekki aftur heim til þín að skipta um föt áður en þú fórst út í drykk. Þú klæddist föt- unum þínum allan daginn og leist vel út. Hér heima er svo stutt í allt, maður klæðist ákveðnum fötum í skólanum og skiptir svo um föt til að fara eitthvað annað. Allir eru á bíl og það tekur mann bara fimm mínútur að skutlast hingað og þangað.“ Auðvelt að líta framhjá smáatriðunum Jón Davíð segir að Húrra Reykjavík sé ekki bara verslun, heldu sé þetta hugarheimur og heildarhugmynd sem þeir sátu yfir í marga mán- uði. „Við vorum í þrjá til fjóra mánuði að vinna við- skiptaáætlun, fjárhagsáætlanir, greina mark- hópa og hvernig við vildum koma merkinu okkar á framfæri frá fyrsta degi. Það var mikil vinna og pælingar sem fór í alla undirbúningsvinnu. Það eru ekki allir sem átta sig á þeirri vinnu en hún skilar sér margfalt til baka.“ „Það er annað andrúmsloft og stemning hvernig tekið er á móti viðskiptavininum hjá okkur,“ bætir Sindri við. „Hvernig vörur eru framsettar, ein tegund af hverri flík, á meðan í öðrum verslunum eru bunkar af fötum sem þú þarft að róta í og afgreiða þig sjálfur.“ Sindri segir einnig að föt séu stór partur af því hvernig fólk tjái sig og nefnir dæmi um að á með- an heimsmeistaramótið í knattspyrnu stendur yfir sé yfirleitt það fyrsta sem fólk tístir um á Twitter eitthvað sem við kemur fötum og að allir hafi skoðanir á þeim. Birgðastýring sem sér listgrein Jón segir þá félaga ekki einungis hafa áhuga á tísku heldur einnig smásölu sem slíkri og öllu sem við kemur því að reka verslun. „Við förum reglulega saman í búðir, bæði hér- lendis og erlendis og sækjum okkur innblástur,“ segir Jón. „Við ræðum hvað betur mætti fara í einhverri verslun eða veitingastað, af hverju lýs- ingin er eins og hún er og hvernig hlutum er rað- að og svo framvegis.“ „Öll þessi litlu atriði,“ skýtur Sindri inn í. Aðspurðir hvort reksturinn hafi gengið jafn vel og viðskiptaáætlanir gerðu ráð fyrir segir Jón Davíð að þær áætlanir hafi staðist og gott betur. „Eitt sem við höfum áttað okkur á er að birgðastýring er sér listgrein. Ég tala nú ekki um í tískubransanum þar sem landslagið breytist vikulega. Að einhverju leyti erum við og starfs- fólkið sem er ábyrgt fyrir því að kaupa inn í verslanir okkar, spákaupmenn. Við þurfum að sjá fyrir hvað verður í tísku eftir hálft ár eða meira. Við lentum til dæmis í því að vaxa hratt og það er mjög dýrt. Þegar þú ert að vaxa um 300 til 400% milli ára fer allur peningurinn í það að fjár- Vinsældir Húrra Reykjavík hafa verið töluverð- ar, þá sérstaklega hjá yngri kynslóðinni, síðan fyrsta verslunin var opnuð haustið 2014. Versl- anirnar eru nú orðnar tvær, ein herrafatabúð og ein kvenfatabúð. Eigendur verslananna eru tveir vinir, nýskriðnir yfir þrítugt og hafa mikla ástríðu fyrir tísku og smásölu. Nýverið opnuðu þeir, í samvinnu við tvo aðra vini sína, pítsastað- inn Flatey úti á Granda. Blaðamaður settist nið- ur yfir kaffibolla með Sindra Snæ Jenssyni og Jóni Davíð Davíðssyni og spjallaði við þá um vörumerkið, sögu verslunarinnar og fékk innsýn í vinskap þeirra tveggja sem teygir sig langt aft- ur. Aðspurðir hvernig hugmyndin kviknaði að því að fara saman í rekstur, segja strákarnir að þetta hafi verið hugmynd sem þeir höfðu gengið með í maganum frá unglingsaldri. „Við Sindri kynnumst í gegnum fótboltann í Þrótti,“ segir Jón Davíð. „Ég er fæddur 1988 og er tveimur árum yngri en Sindri. Í fjórða flokki spila ég upp fyrir mig og með honum í þriðja flokki, en ég hafði þekkt Sindra síðan ég var lítill. Í fótboltanum kynntumst við hins vegar betur og urðum góðir vinir. Við tengdumst í gegnum sam- eiginleg áhugamál sem voru tíska, íþróttir og að eltast við stelpur.“ „Þegar Sindri var 18 ára hóf hann störf í Retro í Smáralind og ég einnig, meðfram skóla. Sindri vann sig upp innan NTC, eiganda Retro, og varð að lokum verslunarstjóri yfir stærstu verslun fyrirtækisins, Sautján, og stóð sig þar frábær- lega,“ heldur Jón áfram. „Þegar ég kláraði viðskiptafræðina í HR varð ég verslunarstjóri Húsgagnahallarinnar og fékk að taka þátt í því að byggja hana upp á meðan Sindri var verslunarstjóri í rótgróinni búð í Kaupmannahöfn.“ Sindri tekur þá við og segir að það hafi verið um jólin 2013 sem hugmyndin hafi kviknað. „Ég var heima í jólafríinu mínu og við Jón eyddum öllum tímanum í djamm og vitleysu. Við vorum að tala saman þegar hann keyrði mig upp á flug- völl og við litum á hvor annan og sögðum: „Verð- um við ekki að fara að gera eitthvað af viti?“ Upp úr því kom hugmyndin að opna fatabúð. Ég var búinn að vinna í tískuverslunum allan minn starfsferil og þetta var ást við fyrstu sýn.“ „Ég er mjög stoltur af því hvernig þetta fór af stað hjá okkur,“ skýtur Jón Davíð inn í. „Það voru margir sem efuðust þegar við sögðumst ætla að opna fatabúð á Hverfisgötu árið 2014. Öll gatan var sundurtætt og uppgrafin og lítið að gerast. Við áttum eiginlega engan pening, ég átti eitthvert smáfjármagn og Sindri átti ekki krónu. Þannig að við gerðum skothelda viðskiptaáætlun og fengum bankalán frá tveimur af þremur bönkunum sem við leituðum til. Við þurftum hins vegar að brúa bilið og koma með ákveðið mikið eigið fé. Eftir nokkrar vangaveltur ákváðum við að fyrirfram selja vörur, áður en við opnum búð- ina. Við seldum fyrir þrjár milljónir til vina og vandamanna sem höfðu mikla trú á okkur, áður en við vorum búnir að opna. Þannig að með útsjónarsemi er allt hægt. Fyrir mörgum hefði þetta verið óyfirstíganlegur hjalli.“ Föt til þess að klæðast við öll tilefni Sindri segir að hann hafi séð stöðnun á fata- markaði á Íslandi og ákveðnar hillur innan herrafatamarkaðarins væru ekki að þjónusta stóra hópa. „Ég sá, sérstaklega á djamminu í Kaupmanna- höfn, að allir voru klæddir strigaskóm og annar hver maður var með derhúfu. Það voru ekki margir klæddir í skyrtu, heldur frekar í einhvern festa í stærri lager. Það er mjög dýrt að binda allan peninginn sinn í lager.“ Sindri bætir inn í að þetta hafi verið ótrúlegir tímar. „Þegar við stóðum inni í búðinni okkar í janúar 2015, sex mánuðum eftir opnun, með eng- ar vörur. Það seldist allt um jólin 2014. Síðan er ekkert hægt að hringja í birgja og biðja um meiri vörur, það þarf að fyrirfram panta allt.“ Strákarnir segja að þegar verslun vaxi um meira en 300% á ári sé erfitt að gera sér grein fyrir því hvað eigi að kaupa mikið inn fyrir næsta tímabil. Sindri segir að á einum tímapunkti hafi þeir átt talsvert mikið af vörum, enda hafi þeir verið spenntir fyrir meiri aukningu. Sú aukning gekk eftir, en ekki jafn ört og gert var ráð fyrir. Í kortunum að stofna fatamerki Aðspurðir hvort búast megi við sér fatamerki frá Húrra Reykjavík, segja þeir að það hafi lengi verið markmið, en að það sé ekki neitt forgangs- atriði eins og staðan sé núna. „Það er klárlega í kortunum og er búið að malla lengi,“ segir Sindri. „Við erum enn í hugs- unarferlinu, hvernig vörumerki á þetta að vera, hvernig tengingin við Ísland á að vera og hvernig vörur og svo framvegis. Við höfum mikinn áhuga á því að stofna okkar merki og munum gera það einn daginn. Planið er að nýta okkur þessa enda- lausu krafta og hæfileika sem eru til staðar hér á landi. Árlega er fólk að útskrifast úr fatahönnun og hér er ógrynni af grafískum hönnuðum. Hér býr mikill kraftur en það eru ekki margir sem ná að ýta bátnum almennilega úr vör. Við erum til dæmis að selja sex til sjö dönsk fatamerki en ég myndi gjarnan vilja að þetta væru sex til sjö ís- lensk merki í staðinn. Maður hefur séð þetta í tónlist og í íþróttum að hér býr mikill kraftur og sköpunargleði. Ísland ætti að geta orðið miðstöð fyrir fatahönnun og tísku. Hingað ætti tísku- þenkjandi fólk að koma og heimsækja Ísland og gera skapandi hluti.“ Jón Davíð bætir við að það sé yfirlýst markmið að stofna þeirra eigið fatamerki, en að sama skapi liggi þeim ekkert á. „Við reynum að vera skynsamir. Þó að við séum orkumiklir og þrífumst á að gera eitthvað nýtt og spennandi, þá erum við ekki að fara neitt fram úr okkur. Í dag eru þetta tvær verslanir og netverslun, sem er orðin mjög sterk hjá okkur. Þetta verður áfram þannig, við erum ekki að fara að opna á fleiri stöðum eins og í Kringlunni eða Smáralind, því það myndi ekki endilega þýða meiri sölu. Við viljum hafa þetta á sem hag- Húrra setur sterkan svi Steingrímur Eyjólfsson steingrimur@mbl.is Sindri Snær Jensson og Jón Davíð Davíðsson stofnuðu fataverslunina Húrra Reykjavík á Hverfisgötu fyrir tæpum fjórum árum. Á þeim tíma hafa þeir opnað kvenfatabúð og pítsustað og margt fleira er í pípunum. Þeir segjast hafa lært margt á skömmum tíma en þeir fjármögnuðu upphafs- kostnaðinn að miklu leyti með því að selja vörur til vina og vandamanna fyrir um þrjár milljónir króna fyrirfram, áður en þeir höfðu opnað verslunina. Sindri Snær og Jón Davíð, eigendur Húrra. „Við höfðum áhuga á því að opna veitingastað í m kýla á það þegar tveir félagar okkar, Haukur Már G okkar með hugmynd. Þeir voru stöðugt að tala um upprunalega napólska pítsa. Uppskriftin að henn að þetta þurfi að vera með tómötum frá ákveðnu unaraðferðin með ákveðnu móti,“ segir Sindri. „Þarna fannst okkur við koma inn á markað sem Sindri áfram. „Margar af pítsunum hér á landi eru kringum þær. Það er búið að menga pítsurnar að ljúffengu heilnæmari útgáfu af pítsum. Þessir féla þessa tegund af pítsum og eru í raun með fordóm gegnum öll prufukvöldin og vorum að baka pítsur ástríðuna hjá þeim. Það er gaman að segja frá þv hjá mér. Við vorum að reyna að ná upp svo miklum á 500 gráðum, á einni mínútu. Við keyrðum ofninn um það bil 330 gráður þegar glerið sprakk. Það va Sprengdu bakarofn í leit sinni að h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.