Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2018FÓLK SPROTAR Íslenskt atvinnulíf er tiltölulega skammt á veg komið með að nýta möguleika drónatækninnar. Tryggvi Stefánsson segir að með drónum megi t.d. skima eftir bil- unum í orkukerfinu, gera rann- sóknir á gróðri og lífríki, vakta urðunarsvæði og mæla nýtingu á námum. Tryggvi er stofnandi og fram- kvæmdastjóri Svarma ehf.: „Við búum til nákvæm landlíkön sem geta verið bæði þrívíð líkön og hæðarlíkön, loftmyndir, hitamynd- ir og gróðurfarskort, svo eitthvað sé nefnt. Við notum sérhæfða dróna til að afla þessara gagna og samhliða eigin myndum nýtum við gervitunglamyndir,“ útskýrir Tryggvi en Svarmi hlaut á síðasta ári styrk frá Tækniþróunarsjóði. „Á drónunum erum við að nota myndavélar sem mynda sýnilegt ljós, hitamyndavélar, fjölsviðs- myndavélar og erum núna að taka í gagnið svokallaðan LIDAR skanna sem er sá fyrsti á Íslandi. Okkar hlutverk er að afla gagnanna, vinna úr þeim, og skila til viðskiptavina okkar á skýran og skiljanlegan máta svo þeir geti tekið betur upplýstar ákvarðanir.“ Fljótari og nákvæmari Drónatæknin getur komið í stað þeirra mæliaðferða sem fyrirtæki hafa reitt sig á til þessa. „Gott dæmi er uppmæling á námum, til dæmis þegar meta á efnismagn sem eftir er eða sem tekið hefur verið. Hing- að til hefur það verið gert með því að senda mann á staðinn með GPS- staf sem hann notar til að mæla til- tekna punkta og út frá þeim vinna þrívítt líkan. Áætla má að uppmæl- ing með dróna taki a.m.k. helmingi skemmri tíma en hefðbundnar mæl- ingar en helsti ávinningurinn er fólginn í margfalt nákvæmara þrí- víðu landlíkani, með allt að milljón sinnum fleiri punktum, og þar með mikið betri gögnum til að vinna með. Þessu til viðbótar er hægt að gera ýmsa úrvinnslu á þessum gögnum svo sem greina í sundur mismunandi jarðveg eða gróður og fá þannig nákvæmar tölur á flat- armáli og rúmmáli en til þess hefur Svarmi þróað aðferðir með vél- rænum lærdómi,“ segir Tryggvi. „Með því að bera saman þau gögn sem dróninn safnar, hvort sem það er daglega, vikulega eða mánaðar- lega, er hægt að sjá af mikilli ná- kvæmni hvar efni hefur verið tekið úr námunni, reikna út hversu mikið hefur verið tekið, og gæta að því að námavinnslan fari fram á réttu svæði.“ Tryggvi nefnir húsbyggingar sem annað dæmi um hvernig nota má þrívíð líkön sem gerð eru með því að láta dróna mynda framkvæmda- svæðið: „Þar er núna farin svipuð leið við að mæla framvindu verkefn- isins: starfsmaður sendur af stað með mæliprik til að finna nokkra GPS punkta. Með þrívíðu líkani frá Svarma er hægt að fá mun betri yfirsýn yfir framkvæmdirnar og t.d. reikna út hversu mörg prósent af byggingunni er búið að steypa.“ Kortleggja þara og skoða lagnir Hafrannsóknastofnun hefur notað tækni Svarma til að mæla út- breiðslu klóþangs í Breiðafirði. „Stofnunin þarf að gefa ráðgjöf um nýtingu á þanginu og verður þess vegna að hafa sem gleggsta mynd af ástandi þeirra svæða þar sem þangið er slegið. Um er að ræða mjög langa strandlengju sem erfitt er að skoða öðruvísi en úr lofti,“ út- skýrir Tryggvi. Svarmi fór nýstár- lega leið við rannsóknina og tvinn- aði gögnum úr gervitunglamyndum saman við gögn úr lágflugsmyndum sem teknar voru með dróna. „Gervitunglamyndirnar hafa þann kost að ná yfir stórt svæði en upp- lausn myndanna er minni. Drón- arnir taka myndir í mun betri upp- lausn, en geta ekki með góðu móti myndað jafn stórt svæði og gervi- hnöttur. Við notuðum gervigreind- artækni til að tengja saman upplýs- ingarnar á háskerpumyndum drónanna af tilteknum svæðum og lágskerpumyndum úr gervihnetti af firðinum til að geta greint af tölu- verðri nákvæmni hvern myndpunkt á gervihnattamyndunum og áætlað útbreiðslu klóþangsins á svæðinu án þess að þurfa háskerpumynd af öllu svæðinu.“ HS Orka nýtir líka þjónustu Svarma og lætur mynda lagnir með reglulegu millibili. „Þá notum við hitamyndavélar til að koma auga á leka í hitaveitu- og gufulögnum og finna svæði þar sem bilun kann að vera að koma fram. Dróninn getur flogið yfir þessi mannvirki á skömmum tíma og komið hratt og vel auga á mögulega vandræðastaði, en hinn valkosturinn væri að láta starfsmann ganga eftir endilöngum leiðslunum og gera mælingar með reglulegu millibili. Gefur auga leið að mun hagkvæmara er að nota dróna og hjálpar tæknin orkuveit- unni að fyrirbyggja kostnaðarsamar bilanir,“ segir Tryggvi. Samræmdar reglur auðvelda útrás Svarmi stefnir að því að bjóða upp á sams konar þjónustu erlend- is, en fyrirtækið hefur þróað og smíðað eigin dróna samhliða því að nota tilbúna dróna með mynda- vélum og mælitækjum. Hefur Svarmi m.a. þróað dróna sem er að fullu sjálfvirkur og þarfnast ekki stjórnanda. „Dróninn getur tekið af stað, lent, hlaðið rafhlöður og hlaðið gögnum inn á skýið algjörlega sjálf- virkt. Með þessu móti má draga stórlega úr kostnaði við gagnasöfn- un með drónum og yrði þetta algjör bylting,“ upplýsir Tryggvi. Í fyrirhugaðri útrás þarf Svarmi m.a. að glíma við það vandamál að reglur um notkun dróna geta verið breytilegar eftir löndum. „Bæði eru reglurnar mismunandi á milli landa og þær breytast ört. Það jákvæða er að Evrópusambandið vinnur núna að því að innleiða nýja reglu- gerð sem samræmir notkun dróna en leyfir þó áfram að yfirvöld á hverjum stað fyrir sig setji sér- reglur.“ Einnig þarf að opna augu sér- fræðinga og stjórnenda fyrir nota- gildi drónatækninnar. „Eitt af því sem við höfum rekið okkur á er að verkfræðingar, arkitektar og land- fræðingar eru ekki alltaf áhuga- samir um að nota drónamælingar í stað hefðbundinna mæliaðferða og gagna. Reynslan hefur samt sýnt okkur að þegar fólk prófar það einu sinni að nota gögn úr dróna, þá fer það ekki aftur til baka í gömlu að- ferðirnar.“ Loks segir Tryggvi að fyrirtæki eins og Svarmi þurfi að koma við- skiptavinum í skilning um að best sé að nota þjónustu sérhæfðra aðila þegar kemur að drónamyndatöku. „Margir reikna dæmið þannig að það geti verið jafngott fyrir fyrir- tækið eða stofnunina að kaupa ein- faldlega dróna og annast gagnaöfl- unina sjálft. En drónamyndataka kallar á sérhæfingu og þjálfun, og tækjakaupin eru minnstur hluti af kostnaðinum. Þá er myndatakan eitt, og úrvinnsla gagnanna annað. Um mikil gögn er að ræða og kallar á öfluga tölvu að vinna úr þeim ásamt því að mikilvægt er að þekkja vel til þannig að nákvæmni og gæði gagna sé eins mikil og kostur sé. Hjá Svarma höfum við farið þá leið að þróa framenda- viðmót, n.k. gagnaskoðara, þar sem viðskiptavinir geta nálgast gögnin í vafra og skoðað og unnið með þau án þess að þurfa á sérhæfðum tölvubúnaði að halda. Með þessu móti geta allir skoðað gögnin, ekki bara sérfræðingarnir í hverju fyr- irtæki fyrir sig.“ Morgunblaðið/Valli Svarmi hefur notað gervigreindartækni til að tengja saman upplýsingarnar á háskerpumyndum dróna við lág- skerpumyndir úr gervihnetti til að geta greint betur hvern myndpunkt. Tryggvi Stefánsson með hluta flotans. Geta blandað saman gögnum úr drónum og gervihnöttum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Drónar með radarmælum, hitaskynjurum og öflugum myndavélum geta komið í góðar þarfir í alls kyns at- vinnurekstri. Svarmi hefur m.a. þróað dróna sem get- ur flogið og aflað gagna án stjórnanda, hlaðið sig sjálf- ur og sent gögn í skýið. 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.