Morgunblaðið - 09.08.2018, Síða 16
VIÐSKIPTA
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, vidsk@mbl.is. Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Sigurður Nordal fréttastjóri, sn@mbl.is. Auglýsingar sími 5691111, augl@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
VIÐSKIPTI Á MBL.IS
Veitingamarkaður mettur
Birna Ósk kaupir í Icelandair
Primera hættir öllu í Birmingham ...
Sænskar orkustöðvar um land allt
Björgólfur og Heiðrún bæta við sig ...
Mest lesið í vikunni
INNHERJI
RÉTTARRÍKIÐ ÞÓRODDUR BJARNASON
SKOÐUN
Matarvagninn The Wingman er einn
af fjölmörgum matarvögnum sem
hafa sést rúllandi úti um allt land í
sumar en slíkum matarvögnum hefur
fjölgað mjög undanfarin misseri.
Birgir Rúnar Halldórsson er fram-
kvæmdastjóri The Wingman og segir
hann reksturinn ganga vel en að ýmsu
þurfi að huga. Á meðal verkefna sem
the Wingman hefur tekið að sér er
tónlistarhátíðin Secret Solstice en þar
seldu Birgir og félagar sem dæmi
tonn af kjúklingavængjum og frönsk-
um.
„Við erum að fara inn á markað sem
er mjög ungur hérna heima þó að
Búllan sé búin að vera lengi í þessu.
Við erum eingöngu veisluþjónusta.
Við erum ekki með veitingastað líka.
En við erum í raun bara nýr veitinga-
staður þótt við séum á hjólum. Það er
skemmtilegt að gera þetta þannig og
þetta opnar ýmsa möguleika. Þá get-
ur þú þjónustað í heimahúsum, á fyr-
irtækjafögnuðum og á stórhátíðum,“
segir Birgir sem hyggst ásamt við-
skiptafélögum skipta vagninum út
fyrir bíl á næstunni.
Kostnaðurinn nokkrar milljónir
„Við erum að skipta til þess að geta
verið ennþá hreyfanlegri og vera ekki
háðir því að vera með bíl til að draga,“
segir Birgir. Spurður hvort mikið mál
sé að koma upp svona vagni segir
Birgir það geta verið og að kostn-
aðurinn geti hlaupið á nokkrum millj-
ónum. Það fari þó eftir stærð vagnins
og hversu miklu þurfi að breyta til
þess að standast kröfur. „Þetta er
mikil pappírsvinna en þú gætir þess
vegna fengið þér tveggja hæða
strætó og látið fólk sitja á efri hæð-
inni.“
Boðið er upp á kjúklingavængi og franskar í the Wingman.
Tonn af mat á
fjórum dögum
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Matarvagninn the Wing-
man skiptir vagninum út
fyrir bíl. Hreyfanleikinn býð-
ur upp á ýmsa möguleika.
Vagninn afgreiddi tonn af
kjúklingavængjum og
frönskum í tengslum við
Secret Solstice.
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Þær voru ánægjulegar fréttirnarsem bárust nú í vikunni af því að
íslenska netverslunin AHA hefði fyrst
fyrirtækja í heiminum fengið leyfi til
að senda vörur með drónum innan-
bæjar. Rök forsvarsmanna fyrir-
tækisins fyrir drónafluginu, og út-
skýringar, gáfu manni ágæta mynd af
því sem búast mætti við hér á landi í
þessum efnum, og trú á verkefnið.
Ísland er misviðrasamt, og því erekki skrýtið að efasemdarraddir
heyrist þegar tal berst að slíkri fram-
tíðarmúsík, en eins og sjá mátti á
myndbandi frá fyrirtækinu þá er
dróninn enginn smásmíði, og ætti að
ráða við eitthvert mótlæti í veðri.
Fyrirtækið hefur aukinheldur skoðað
veðurfar tíu ár aftur í tímann, og telur
sig geta sent vörur heim með drónum
flesta daga ársins.
Netverslun eykst nú hröðumskrefum, og fyrir marga er af-
hendingin helsti þröskuldurinn. Verð-
ur maður heima þegar sendingin
kemur? Er kannski fljótlegra að
skjótast bara út í búð? Margir hafa
talað um að í framtíðinni verði „þyrlu
( dróna ) pallur“ við hvert hús. Þá má
ímynda sér að hægt sé að vera þar
með læsta geymslu eða kæli sem
dróninn getur látið vörur síga niður í.
Með snjallvæðingu, GPS tækni,og sítengingu allra, þá er
framtíðin löngu komin að þessu leyti.
Þeir sem notað hafa Uber leigubílana
erlendis, þekkja hagræðið af sam-
tvinnun upplýsingatækninnar og af-
hendingar á fólki og vörum.
Pakkinn
er í loftinu
Eftir langt tímabil grósku oguppgangs í veitingarekstri
hér á landi virðist sem veislan sé
nú senn á enda og jafnvægi að
nást sé mark tekið á þeim veit-
ingamönnum í Reykjavík sem
tjáðu sig í samtali við Morgun-
blaðið fyrr í vikunni.
Að þessu hlaut að koma eneðlilegt var þegar eftir-
spurn jókst ár frá ári, með til-
komu sífellt fleiri ferðamanna til
landsins, að athafnamenn sæju
sér leik á borði, sýndu hugvits-
semi og kepptust við að opna
nýja staði, til að metta svanga
munna.
Eins og veitingamennirnir semMorgunblaðið ræddi við
sögðu þá virðist nú komið að
ákveðinni mettun á markaðnum,
sem þýðir að ekki er lengur hægt
að bjóða viðskiptavinum upp á
hvað sem er. Valdið er nú við-
skiptavinarins og veitingamenn
þurfa að vanda sig til að lifa af
eins og veitingamennirnir orðuðu
það. Þar má horfa til alls þess er
snýr að veitingasölunni og við-
mótinu gagnvart viðskiptavin-
inum. Verðlag þarf að vera hóf-
legt, maturinn bragðgóður,
hráefni gott, upplifunin eftir-
minnileg og þjónustan til fyrir-
myndar. Þeir veitingastaðir sem
ná að framfylgja þessum gullnu
reglum lifa af en hinir ekki.
Landsmenn hafa notið góðs afauknum ferðamannastraumi
og búa nú við meira úrval veit-
ingastaða en nokkru sinni fyrr.
Við erum orðin góðu vön og von-
andi er flóran komin til að vera.
Því má ítreka aftur varnaðarorð
veitingamannanna frá því fyrr í
vikunni um að veitingastaðirnir
vandi sig.
Jafnvægi náð og nú þarf
fólk virkilega að vanda sig
Umsóknir um há-
skólanám við Há-
skólann á Bifröst eru
um 25% fleiri en á síð-
asta ári.
25% fleiri ný-
nemar á Bifröst
1
2
3
4
5
SETTU STARFSFÓLKIÐ
Í BESTA SÆTIÐ