Morgunblaðið - 30.08.2018, Síða 4

Morgunblaðið - 30.08.2018, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018FRÉTTIR citroen.is Nýir og notaðir bílar: Söludeildir opnar virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík Bíldshöfða 8 Sími 515 7040 Brimborg Akureyri Tryggvabraut 5 Sími 515 7050 TRYGGÐU ÞÉR CITROËN SENDIBÍL Á FRÁBÆRU TILBOÐI! ALLT AÐ 500.000 KR.AFSLÁTTUR Komdu og ný ttu þér frábært tilboð ! Gildir til 8. se pt. CITROËN BERLINGO STUTTUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 2.600.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 2.300.000 KR. M. VSK 1.854.000 KR. ÁN VSK. CITROËN JUMPY VAN LANGUR 1,6 dísil beinsk. VERÐLISTAVERÐ MEÐ AUKABÚNAÐI: 4.145.000 KR. MEÐ VSK. TILBOÐSVERÐ: 3.645.000 KR. M. VSK 2.939.000 KR. ÁN VSK. AFSLÁTTUR 300.000 KR. AFSLÁTTUR 500.000 KR. VERÐDÆMI: Rekstur fjártæknifyrirtækisins Framtíðarinnar hefur farið vel af stað enda ágætis eftirspurn eftir lánum. Vala Halldórsdóttir hefur stýrt Framtíðinni frá því fyrr á þessu ári en áður var hún í stjórn Plain Vanilla og framkvæmdastjóri tæknisprotans Visku. Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrinum þessi misserin? Það er spennandi áskorun að byggja upp öflugt fjártækni fyrir- tæki frá grunni. Framtíðin er í ör- um vexti og breytingarnar eru hraðar. Hver var síðasti fyrirlesturinn sem þú sóttir? Reyndar ekki tengt vinnunni, fyrirlestur Simon Yates fjallaleið- sögumanns um ævintýralega leið- angra á hæstu tinda heims. Mjög áhugavert og góður innblástur fyrir eigin túra í framtíðinni. Hver hefur haft mest áhrif á hvernig þú starfar? Allt góða fólkið sem starfaði með mér í QuizUp hefur haft mikil áhrif á hvernig ég starfa. Hvernig heldurðu þekkingu þinni við? Les mikið, hlusta á endalaust af hlaðvörpum, klára allt í RSS- streyminu mínu, hitti gott fólk. Hugsarðu vel um líkamann? Eyði mestöllum mínum frítíma á hálendinu sem er afar gott fyrir líkama og sál. Stunda svo líka reglulega hreyfingu og reyni að borða ekki rusl. Hvert væri draumastarfið ef þú þyrftir að finna þér nýjan starfa? Draumastarfið er að búa til eitt- hvað nýtt frá grunni og vinna með góðu sterku teymi. Nákvæmlega það sem ég er að gera núna og hef gert meirihlutann af minni starfs- ævi. Hvað myndirðu læra ef þú fengir að bæta við þig nýrri gráðu? Það væri svo margt: MBA, staf- ræn vöruhönnun (mjög vanmetið starf hérlendis) eða gríðar gagna greining (big data analysis) sem fer að verða ein verðmætasta þekkingin með öllu þessu magni af gögnum sem við erum að búa til. Hvaða kosti og galla sérðu við rekstrarumhverfið? Mikil tækifæri eru að skapast á fjármálamarkaði með ódýrari tækni, breyttu regluverki og breyttum þörfum neytenda. Kannski er helsti gallinn hvað Ís- land er lítið því vandasamt er að byggja upp fjártæknifyrirtæki fyr- ir 300 þús. manna markað. Þess vegna þarf maður alltaf að vera að hugsa út fyrir landsteinana líka. Hvað gerirðu til að fá orku og innblástur í starfi? Reglulegur svefn, góður morg- unmatur, gera heimavinnuna sína. Svo bara lesa endalaust: bækur, blogg, twitter-færslur o.s.frv. Einnig að eiga gott net af fólki sem gefur þér hugmyndir, les meira en þú og opnar á nýjar tengingar. Hvaða lögum myndirðu breyta ef þú værir einráð í einn dag? Keyra rafrænar þinglýsingar í gegn og taka PSD2 í flýtimeðferð. SVIPMYND Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Framtíðarinnar Smár heimamarkaður kallar á alþjóðlega hugsun Morgunblaðið/Hari Vala segist gæta þess vel að vera stöðugt að lesa, og umkringja sig fólki sem les jafnvel enn meira. NÁM: Háskóli Íslands, BSc, iðnaðarverkfræði, 2008. STÖRF: Almenna verkfræðistofan, sérfræðingur, 2008-2009; Matador Media, stofnandi, 2009-2013; Heilaspuni, framleiðandi, 2009-2010; The Startup Kids, framleiðandi og leikstjóri, 2011- 2012; Plain Vanilla, framkvæmdastjórn, 2013-2016; Viska, fram- kvæmdastjóri, 2017; Framtíðin, framkvæmdastjóri frá 2018. ÁHUGAMÁL: Fjallaskíði, fjallahjól, fjallahlaup, fjallamennska, tækni, tölvuleikir, borðspil, bækur. FJÖLSKYLDUHAGIR: Í sambúð með Emil Þór, eiganda Kría hjól. HIN HLIÐIN ÖKUTÆKIÐ Unnendur hraðskreiðra bíla eru al- mennt á einu máli um að ökutækin sem Bugatti framleiðir séu ekkert slor. Raunar þykir flestum að Bugatti hafi um langt skeið trónað efst í fæðukeðju ofursportbíla, fyrst með Veyron frá 2005 til 2015 og svo Chiron frá 2016. En nú hefur franski bílasmiðurinn gengið skrefinu lengra með Divo sem frumsýndur var á Pebble Beach bílahátíðinni um síðustu helgi. Divo er með sömu 1.500 hestafla vélina og Chiron en er 35 kg léttari, með 90 kg meira vængafl og segir Stephan Winkelmann, forstjóri Bugatti, að útkoman sé mun hrað- skreiðari og liprari bíll sem líður í gegnum krefjandi beygjur eins og ekkert sé. Tölurnar ljúga ekki, og sýndu mælingar að Divo var heilum 8 sek- úndum fljótari að fara heilan hring á Nardò tilraunaakstursbrautinni Ítalíu. Aðeins verða framleidd 40 eintök af Divo og uppsett verð 5 milljón evrur, eða nærri 625 milljónir króna. Áður en lesendur freistast til að kíkja í netbankann til að sjá hvort þeir eigi ekki örugglega fyrir einum Divo til að bæta við bílaflota heim- ilisins þá er rétt að greina frá því að allir bílarnir 40 hafa þegar verið seldir. ai@mbl.is Bugatti fer langt yfir strikið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.