Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 30.08.2018, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2018FÓLK 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri SPROTAR Origo Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hefur fjölgað starfsfólki í hugbún- aðargerð og stafrænum lausnum. Anna María Þorsteinsdóttir hefur verið ráðin hugbúnaðarsérfræðingur í stafrænum þjónustulausnum en hún er með BS gráðu í viðskiptafræði og tölvunarfræði. Unnur Sól Ingimarsdóttir hefur verið ráðin hugbúnaðarsérfræðingur í stafrænum þjónustulausnum. Hún er með BSC gráðu í tölvunarfræði. Róbert Marvin Gíslason hefur ver- ið ráðinn hugbúnaðarsérfræðingur í heilbrigðislausnum en hann er með BS gráðu í tölvunarfræði. Benedikt Blöndal hefur verið ráðinn hugbún- aðarsérfræðingur í heilbrigðislausnum en hann hefur lokið BS námi bæði í tölvunarfræði og stærðfræði. Þá hefur Anna Laufey Stefánsdóttir verið ráðin hugbúnaðarsérfræðingur í heilbrigðislausnum en hún er með BSC í tölvunarfræði. Nýtt starfsfólk í hugbúnaðarlausnum hjá Origo Anna María, Unnur Sól, Róvert Marvin, Benedikt Blöndal og Anna Laufey. VISTASKIPTI Fyrir röskum áratug fengu tveir ung- ir rafmagnsverkfræðinemar við Há- skóla Íslands þá hugmynd að smíða hitaskynjara sem gæti sent upplýs- ingar í rauntíma nánast hvaðan í heiminum sem er. Árið 2007 stofnuðu þeir, ásamt þremur öðrum, félag utan um hugmyndina og í dag stýra þeir tæplega 50 manna fyrirtæki með starfsstöðvar á Íslandi, í Bandaríkj- unum og á Írlandi. Fyrirtækið heitir Controlant, og stofnendurnir Gísli Herjólfsson, Er- lingur Brynjúlfsson, Trausti Þór- mundsson, Atli Þór Hannesson og Stefán Karlsson eru bara rétt að byrja. Gísli er framkvæmdastjóri Cont- rolant og segir hann að í fyrstu hafi ætlunin verið að þjónusta mat- vælageirann en síðan hafi komið í ljós að tæknin sem fyrirtækið hefur þróað kemur líka í góðar þarfir við flutninga og geymslu lyfja. „Við höfðum hugsað okkur að það myndi nýtast sjávar- útveginum vel að láta skynjara fylgja sendingum út í heim og geta fylgst með hitastigi og staðsetningu vör- unnar í rauntíma, en árið 2009 varð viðsnúningur hjá fyrirtækinu þegar svínaflensufaraldurinn ógnaði heims- byggðinni,“ segir Gísli söguna. „Sóttvarnalæknir fékk þá ráð- stafað fjármagni til að kaupa bóluefni fyrir alla landsmenn og notaði tæki- færið til að laga vankanta í geymslu og flutningum bóluefna og lyfja. Það var Controlant til happs að fá samn- ing um að vakta allt bóluefni sem kæmi til landsins. Innan skamms voru skynjarar okkar komnir í notk- un hjá öllum heilsugæslustöðvum landsins og kom í ljós að í um 40% til- vika var geymslu bóluefnis ábótavant. Innan tveggja mánaða var búið að laga þetta vandamál og um leið búið að opna augu okkar fyrir gagnsemi Controlant á lyfjamarkaði.“ Gögnin vísa veginn Controlant notar sérhannaðan búnað, á stærð við spilastokk, sem safnar gögnum um staðsetningu og ástand vörunnar, s.s. hitastig, hvort pakkningin hafi verið opnuð o.fl., og sendir jafnóðum yfir í tölvuskýið. Gísli segir með þessu hægt að fyrir- byggja tjón enda fá notendur strax viðvörun ef mælirinn sýnir að ástand vörunnar sé þannig að hætta sé á skemmdum. „Við vöktum upplýsing- arnar og höfum strax samband við viðskiptavininn eða flutningsaðilann svo að hann geti gripið inn í ef þess er kostur,“ útskýrir Gísli og bætir við að frá því Controlant hóf starfsemi hafi fyrirtækinu sennilega tekist að af- stýra skemmdum fyrir hátt í 10 millj- arða króna. Þau gögn sem mælitæki Control- ant safna eru síðan greind í þaula til að bæta flutninga, bæði til að stytta flutningstíma og draga úr líkunum á skemmdum. „Tölurnar gætu t.d. sýnt okkur að ef vara berst til New York þá tekur lengri tíma að tollafgreiða hana en ef varan lendir á rólegri flug- velli innar í landinu, og gæti þá kannski munað tveimur dögum á því hve fljótt má koma vörunni á markað. Fyrir veitingastaðakeðjuna Chipotle greinum við ferðir 40.000 flutninga- bíla á ári sem flytja ferskt hráefni eft- ir 600 ólíkum flutningaleiðum og gögnin hjálpa bílstjórunum að spara ferðatíma og velja hættuminni leiðir þvert yfir Bandríkin miðað við árs- tíma. Fyrir verðmætar vörur eins og lyf er mikilvægt að öruggar flutnings- leiðir séu valdar sem og réttar um- búðir. Eitt af því sem gögnin sýna er mismunandi áhætta á flugvöllum og höfnum og hjálpar það lyfjafyr- irtækjum að taka réttar ákvarðanir um hvaða umbúðir á að nota á mis- munandi flutningsleiðum og þar með halda kostnaði í lágmarki án þess að það bitni á gæðum.“ Eiga mikið inni á matvæla- og lyfjamarkaði Í dag myndar þjónusta við lyfja- markaðinn um 70% af veltu Control- ant og sér Gísli fram á vaxandi umsvif á því sviði. Hann segir að miðlun upp- lýsinga í rauntíma veiti Controlant forskot á alla samkeppnisaðila og fyr- irtækinu sé smám saman að takast að komast á blað hjá stærstu lyfjarisum – sem eðli málsins samkvæmt geta verið íhaldssamir þegar kemur að því að prófa nýjar lausnir. „Við sjáum fram á að stækka markaðshlutdeild okkar í lyfjageiranum á komandi ár- um. Við höfum þegar náð samningi um að vakta alla flutningskeðjuna hjá Allergan, einu af stóru lyfjafyrirtækj- unum, ásamt því að vera með hluta af flutningskeðju tveggja annarra og við erum rétt að byrja í matvælaiðnaði utan Íslands,“ segir Gísli en fyrir hálfu öðru ári gerði fyrirtækið einnig risasamning við Chipotle sem selur mexíkóska rétti úr hágæðahráefni. „Þeirra vandamál er að flytja þarf hráefnið ferskt, en ekki frosið, og ger- ir það flutningskeðjuna erfiða og við- kvæma fyrir hitaáhrifum. Chipotle sá að með því að nýta þjónustu okkar tækist þeim bæði að ná upp gæð- unum og vernda eigið vörumerki.“ Eftir því sem viðskiptavinunum fjölgar eykst stærðarhagkvæmni Controlant og segir Gísli að þegar fyrirtækinu takist að vakta um 10 milljónir sendinga á ári verði kostn- aðurinn við þjónustuna orðinn svo lágur að hún henti nánast í hvaða flutninga sem er. Næstu tvö ár verð- ur aðaláherslan lögð á að efla mark- aðssetningu, skala upp söluhliðina og viðhalda tæknilegu forskoti. „Eftir 4-5 ár gæti það jafnvel þótt sjálfsagð- ur hlutur að senda mælitæki frá okk- ur með venjulegum pakkasendingum til að geta fylgst betur með ástandi og staðsetningu böggulsins.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gísli segir að með meiri stærðarhagkvæmni gæti það farið að verða sjálfsagður hlutur að senda mælitæki Control- ant með venjulegum pakkasendingum. Controlant hyggst auka markaðshlutdeild sína á lyfjamarkaði á næstu árum. Hafa afstýrt skemmdum fyr- ir 10 milljarða Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Starfsemi Controlant vex ört og fyrirtækið þjónustar m.a. lyfjarisann Allergan og skyndibitakeðjuna Chipotle. Tæknilausnir fyrirtækisins skapa mikið forskot og munu komandi ár snúast um skölun og markaðssetningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.