Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 22
20
BREIÐFIRÐINGUR
sýna yður það, með þeim athugasemdum, er þér og hann
kynnuð að koma ykkur saman um henni til betri framkomu.
Vél þessi hefir verið lögð undir dóm eður álit útlendra
uppfyndinga-vélameistara, og getur Eyjólfur sýnt yður
orðréttar greinar úr bréfi frá merkum íslendingi í Chicago,
er dvalið hefir í Vesturheimi í 14 ár og gefur þeirra óhlut-
drægi dómur mér mitt hugrekki, svo ég legg félaus út í
algjört smíði til verklegrar framkvæmdar. Ég er önnum kaf-
inn við verslunarstöðu og stórskulda á allar hliðar og farinn
að láta undan á heilsunni, mér kemur samt ekki annað til
hugar en beita síðustu kröftum mínum uppfynding þessari til
framkomu, því nú þoli ég vel hnípla landa minna, er ekki
vita sumir, hverju þeir eru að hafa á móti. Þegar útlendum
mönnum kemur ekki til hugar að dæma uppfinding mína
öðruvísi en samkvæmt réttri sannfæringu sinni og varðandi
virðingu.
Jöklarar hafa af göfuglyndi stutt mig framar öllum vonum
síðastliðið ár við tilraunir mínar. Öllu má þó ofbjóða. Þó hef
ég góða von, að þeir muni enn fúsir að taka þátt í þessari síð-
ustu baráttu. Fyrir þá er líka mikið unnið, ef fyrirtæki þetta
heppnast.
Fyrirgefðu ónæðið, barlóminn, ruglið og rausið.
Virðingarfyllst
Guðbrandur Þorkelsson.
P.S.
Nú eru haldnir tveir smiðir við vélsmíðið upp á væntanlegt
göfuglyndi íslendinga. Smiðjan var reist, við ýmsar smámót-
bárur í þorraþíðunum síðustu. Hún er auðvitað ekkert
musteri. Ýmis verkfæri hefir orðið að búa til til að geta
unnið.
Fyrirgefið - Sami. '*
!) Bréfin til Tryggva Gunnarssonar ásamt teikningu af róðrarvélinni eru í safni hans í Handritadeild
Seðlabankans merkt 7 - 108 - 2.