Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 25
RÓÐRARVÉL GUÐBRANDS ÞORKELSSONAR
23
í blaði ísafoldar, er kom út síðastliðinn 15. maím., er og
skýrt frá því, að hugmynd mín hefir verið borin undir vél-
fræðinga í Vesturheimi og þeim litist mjög vel á hana. En
þar sem mér fyrir fjárskortssakir er enn ómögulegt að sýna
gagn hugmyndar minnar og hinar umgetnu 300 krónur, er
góðir menn hafa styrkt mig með, ekki nægja að verulegum
mun til þess að geta sýnt að hugmynd mín geti orðið landi og
lýð til gagns og góða, leyfi ég mér virðingarfyllst að fara þess
á leit við hið háttvirta alþing, að það á þessu sumri veiti mér
1500 krónur til þess að fullgjöra vél mína, kaupa fyrir hana
hæfilegan bát, koma henni þar fyrir og sýna það þannig í
verki, að öll umhugsan mín og áreynsla fyrir þessu fyrirtæki
um hin mörgu undanförnu ár hefir ekki orðið til ónýtis.“
Ólafsvík 12. júlí 1901
Virðingarfyllst
Guðbrandur Þorkelsson.
Til hins háttvirta alþingis íslendinga.11^
VIII.
Til þess að fylgja eftir framangreindri beiðni til þingsins
snéri Guðbrandur sér enn á ný til Tryggva Gunnarssonar:
Ólafsvík 18. ágúst 1901.
Herra bankastjóri Tryggvi Gunnarsson.
Reykjavík.
Það mun yður vera kunnugt sem þingmanni og einum í
fjárlaganefndinni, að ég hef sent alþingi íslendinga bænar-
skrá um styrk til róðrarvélar minnar. Þess mun hafa verið
getið, að ég hafi áformað að sýna alþingismönnum vél rhína
nú í ágústmánuði, af þeim umboðsmanni Einar Markússyni
og presti Helga Árnasyni.
!) Er í skjalasafni Alþingis.