Breiðfirðingur - 01.04.1990, Side 32
30
BREIÐFIRÐINGUR
verið kominn af Geirmundi. Tæpast hefur verið þagað um
ættlegginn frá Geirmundi til Húnboga, af því að sú ætt væri
svo alkunn að ekki væri talin þörf á rekja hana. Auk þess er
vel trúlegt, að Sturlunguskrifarar hefðu ekki hlífst við að
skálda upp ættartölu frá Geirmundi til Skarðverja, ef þeir
hefðu talið það þjóna hagsmunum sínum.
Sem hugsanlega skýringu mætti nefna, að Húnbogi hafi
verið talinn svo lítillar ættar, að ekki hafi þótt ástæða til að
rekja hana. Verður þá að telja að frami hinna elstu Skarð-
verja hafi verið merkilega skjótur, en ættfaðirinn yrði enn
merkilegri fyrir það.
Ýmsar getgátur hafa komið fram um ætterni hans. Giskað
hefur verið á að Húnbogi væri bróðir Ara fróða Þorgilsson-
ar, höfundar íslendingabókar.2 Einnig hefur verið giskað á
að Þorgils Oddason á Staðarhóli, sem Þorgils saga og Haf-
liða í Sturlungu er við kennd, hafi verið faðir Húnboga.3
Báðar þessar tilgátur hafa verið rengdar4 og talið að þótt Ari
fróði og Húnbogi hafi verið skyldir þyrftu þeir ekki að hafa
verið bræður, og Þorgils Oddason og Húnbogi hafi trúlega
verið á líkum aldri.5 Ekki held ég þessi upptalning á ágisk-
unum um ætterni Húnboga sé tæmandi, en af henni geta
menn séð að þegar heimildir eru ekki til þá tekur hugar-
flugið við. Hver sem ætt Húnboga hefur verið, er það víst að
af heimildum verður það eitt ráðið, að ætt Skarðverja hafi
setið á Skarði og átt jörðina frá byrjun 12. aldar. Þegar sagt
er, að sama ættin hafi setið á Skarði samfellt frá 11. öld eða
þegar reynt er að tengja hana við Geirmund heljarskinn
landnámsmann, eru það ágiskanir, sem eiga sér ekki stoð í
heimildum.
Aftur á móti var Yngveldur Hauksdóttir, kona Húnboga
Þorgilssonar, mikillar ættar, því að hún var komin af Ingólfi
Arnarsyni landnámsmanni í Reykjarvík. Verður vart á göf-
ugra ætterni kosið. Ætt Yngveldar er einnig rakin til Ólafs
pá Höskuldssonar í Hjarðarholti og Auðar djúpauðgu í
Hvammi,6 (sjá ættarskrá bls. 72).
Sonur Húnboga var Snorri prestur. Hann varð lögsögu-