Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 33
SKARÐVERJAR
31
maður árið 1156 og dó 1170.7 Fremur lítið er sagt af honum
í Sturlungu, en embættisframi hans sýnir að hann hefur
mikillar virðingar notið. Ætt Yngveldar Atladóttur konu
Snorra er rakin til Steinólfs lága landnámsmanns í Fagradal,
(sjá ættarskrá bls. 72).
Snorri átti tvo syni, sem sögur fara af, Porgils og Narfa.
Þorgils virðist hafa farið með goðorð að því er ráða má af
Sturlungu þar sem segir: „Þorgils prestur, sonur Snorra lög-
sögumanns, fekk Þórði Sturlusyni Þórsnesingagoðorð hálft,
en hálft hafði átt Ari.“8 Þetta virðist hafa átt sér stað árið
1198. Þórður var sonur Hvamms-Sturlu og bjó á Staðarstað
á Snæfellsnesi. Ari sem þarna er nefndur er Ari Þorgilsson
sterki á Staðarstað, sonarsonur Ara fróða. Kona Narfa var
Guðrún Þórðardóttir. Þorgils dó árið 1201 og Narfi ári
síðar.9
Snorri Narfason hefur verið fæddur eftir lát afa síns 1170
og heitið eftir honum. Hann var vanalega nefndur Skarð-
Snorri eða Snorri prestur. Hann er í Sturlungu einkum
nefndur við að koma á sáttum með mönnum. Um hann var
sagt, að hann væri manna auðgastur í Vestfjörðum og átti
m.a. Reykhóla.10 Kona Skarð-Snorra var Sæunn Tófudóttir,
kennd við móður sína Tófu, laungetna dóttur Snorra Bárð-
arsonar í Selárdal. Sá Snorri var bróðir Sveinbjarnar föður
Hrafns Sveinbjarnarsonar læknis á Hrafnseyri.11 Snorri
Narfason dó 13. sept. 1260.12 Tveir synir Snorra verða hér
nefndir:
Bjarni Snorrason var á Skarði 1263 og kom á sættum milli
Sturlu Þórðarsonar sagnaritara og Hrafns Oddssonar og var
fundurinn í Dagverðarnesi.13 Ella er lítið um Bjarna vitað.
Narfi Snorrason bróðir Bjarna kvæntist Valgerði Ketils-
dóttur lögsögumanns og prests Þorlákssonar á Kolbeins-
stöðum og þar bjuggu þau uns hann lést 1284.14 í Jarteina-
bók Guðmundar biskups góða Arasonar er skemmtileg frá-
sögn af Narfa. Guðmundur hafði vígt hann til prests, en það
orð lá á að af honum yrði vígsla tekin. Guðmundur góði
spáði að svo yrði ekki: