Breiðfirðingur - 01.04.1990, Page 57
SKARÐVERJAR
55
hennar grimma hefnd á engelskum var fáheyrð, hvar hún
þá hitti, og lukkaðist altíð. Dugguvík heitir í Flatey; þar
var eitt skipið upphöggvið. Hvort hún deyði utanlands
eða innan minnist eg ekki. En Ólufarbyl er við brugðið,
þegar hún dó. í þeim byl urðu víða skipskaðar, hröpuðu
hús á íslandi en turnar utanlands.
Á hennar dögum var bóndinn Ólafur tóni, sem mest
skal hafa tíðkað hólgöngur á Islandi. Eitt sinn nær hann
varð ölþrota að veita hústrúnni Ólufu á Hvoli í Saurbæ
tappaði hann hennar eigið öl úr kjallaranum á Skarði,
þess slags sem hún óskaði. Þetta tappagat eður hola er
enn í klett eða stein fyrir ofan staðinn á Hvoli.34
Um Ólaf tóna segir Jón ýmislegt fleira víða. Hér er ekki
ástæða til að fjalla nánar um það, en í kvæði einu segir hann
svo frá Ólafi:
Hann fékk virðing og vísa þakk,
vitum vér hvergi slíka.
Hvols úr bergi hjá honum drakk
húsfrú Ólöf ríka.
Þeir gömlu hafa þar gjört á skil,
sem glöggt fær vitnið boðað.
Öltappsholan enn er til,
oft höfum þetta skoðað.35
Samkvæmt þessu voru þá til margar tegundir af öli í kjall-
aranum á Skarði, en gaman þætti okkur að vita hvort það
var bruggað þar eða innflutt.
Um þessar sagnir Jóns lærða má margt skrifa. Frásögnin
um 36 reiðsveina er þau hjón höfðu alls, sýnir að ekki var
talið við hæfi að þau hjón væru ein á ferð, og Ólöf var tahnn
standa bónda sínum fyllilega jafnfætis.
Um Andakeldu eru ýmsar sagnir kunnar. Sögnin um að
Geirmundur hafi fólgið þar fé sitt er fyrst kunn upp úr miðri
13. öld í Sturlubók Landnámu.36 Ekki eru kunnar aðrar