Breiðfirðingur - 01.09.1998, Síða 9

Breiðfirðingur - 01.09.1998, Síða 9
Formáli Fljótlega eftir að ég fór að starfa í ritnefnd Breiðfirðings árið 1981 sá ég að erfitt var að hafa yfirlit um allt efni ritsins og sjá hverjir höfðu skrifað í það frá upphafi, því að heildarefnisyfirlit yfir alla árganga vantaði tilfinnanlega. Fyrsti árgangur Breiðfirðings kom út 1942, en hann er nú elsta héraðatímarit á Islandi. Af þeirri ástæðu einni var brýn þörf á slíku efnisyfirliti. Mér varð þó strax ljóst, að efnið væri of mikið til að þetta yrði hægt að vinna svo lag væri á í hjáverkum. A árunum 1973 til 1992 var ég lengst af stundakennari í íslenskri bókfræði í bókasafns- og upplýsingafræði við Félagsvísindadeild Háskóla Islands. Þar auglýsti ég eftir stúdent sem vildi taka að sér að gera efnisskrá yfir Breiðfirð- ing sem prófverkefni. Samdist svo um að Bára Stefánsdóttir tók þetta að sér sem B.A. verkefni, sem hún lauk í maí 1993. Verkefnið náði yfir árgangana 1942 til 1978. Til að gefa hugmynd um stærðina má nefna að í prófverkefni Báru voru alls 506 færslur. Síðar jók Bára við því sem á vantaði og var sérlega snögg og velvirk á lokasprettinum og án dugnaðar hennar nú í sumar hefði útgáfan dregist enn meir. Núna kemur efnisskráin loks út og nær yfir fyrstu 55 árgangana. Ófært þótti mér annað en að gera einhverja grein fyrir höfundum efnis og reyndist höfundatalið tafsamt í gerð. Þótt margir höfundar séu alkunnir eru ýmsir sem vart hafa annað látið eftir sig á prenti en það sem birtist í Breiðfirðingi. Gekk því mjög misjafnlega að finna um hverja var að ræða. Tvímælis orkar einnig hvernig menn skulu einkenndir og ekki er hægt að gera það svo öllum líki. Vonast ég þó til að hafa engan móðgað alvarlega. Getið var um fæðingarár allra og einnig dánarár þeirra sem látnir voru. Verður skráin því fljótt úrelt um það efni og má sem dæmi nefna, að meðan skráin var í prentun kom frétt um lát Sigvalda Þorsteinssonar lögfræðings, sem hjálpaði við að hafa upp á ýmsum lítt þekktum höfundum. Ýmsir fleiri lögðu lið við þá leit og skal þeim öllum þakkað, þótt aðrir verði ekki nafngreindir. Einnig var reynt að finna höfunda að óhöfundargreindu efni og nöfn þeirra, sem skrifuðu undir dulnefni. Eðlilega reyndist ekki hægt að kollheimta og væri mér kært ef þeir sem telja sig geta bætt einhverju við hefðu samband við mig. Nú ætti að verða auðveldara en áður að sjá hverjir hafa skrifað í
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Breiðfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.