Stjarnan - 01.06.1922, Síða 4

Stjarnan - 01.06.1922, Síða 4
84 STJARNAN eftir fræSslu viðvíkjandi hvíldardags- spursmálinu. 'ÞaS lítur nú út sem andi Drottins starfi í hjörtum manna á hæl- um vorum eins og aldrei áöur. Er þaö ekki einnig vottur haustregnsins ? Fyrir nokkrum vikum kom prestur nokkur til Glendale heilsuhælisins, frá stórri og áhrifamikilli kirkju, og var lagöur inn á spítalann undir alvarlegan uppskurö. A8 undanförnu haföi hann barist mikið á móti kenningu vorri í vanþekking sinni, en haföi nú í fleiri mánuöi staöiö andspænis dauðanum og var mjög niðurbeygöur í anda og vilj- ugur til aö láta leiöa sig sem litið barn. Eg hitti hann skömmu eftir komu hans. Hann var nokkra daga í aðal- byggingunni áður en hann var lagður á spítalann. Hann kom til guðsþjónust- unnar og tók hjartanlegan þátt í söngn- um og öllum athöfnum. Hjarta hans virtist vera gljúpt og sála hans þrá fífsins vatn í ríkari mæli. Eg hvgg aö þessi ástæöa hafi veriö fyrir því, að Guð i vizku sinni leiddi hann á fund vorn. Eg varð þess áskynja, aö hann trúöi algerlega öllum meginreglum hins ga.mla siðbætandi kristindóms. Þaö var trygð hans við þessi mikilvægu sannleiksatr- íöi, sem valdiö hafði honum erfiðleika þeirra, er fylgdu honum í þjónustu- starfinu í hans eigin kirkju. Hin hærri •“'kritík” var tekin að flæða yfir, og hann gerði sér það ljóst, að efi hann fengi kenningu sína færöa i búning ný- tízkuhugsjónanna, mundu bræður hans ekki geta orðiö honum sammála. Þetta varð þó til að styrkja hann enn þá meir í ákvörðun sinni i þvi að reynast Kristi trúr og standa á grundvelli Guös orða, og fulltreysta Guöi til aö greiða götu Eans. Hin eðlilega afleiöing varð sú, að honum var úthlutað afkastið, þegar bú- iö var að fullnægja öllum hinum. Hvers kyns gatnaldags kirkja eða verk var á- litið hæfilegt honum. Sorgir þær og erfiðleikar þeir, er fjölskylda hans varð þar af leiðandi að mæta, lögðu konu hans í gröfina fyrir tímann. Börnin neituðu eðlilega að fara i kirkju, þar sem þau, alin upp við kenningu föður sins, gátu ekki sætt sig viö hið andlega skurm, sem rétt var að fólkinu undir nafni kristindómsins. Eftir að hann kom á hælið, virtist hann drekka í sig blessaðan sannleik- ann eins og njarðarvöttur drekkur vatn- iö í sig, og sála hans gæöa sér á honum. Ásjóna hans ljómaði og augu hans tindruðu af hugfró, er hann eins og höndlaði eitthvert nýtt sannleiksatriði. Forsjón Guðs hafði hagað þvi svo til, að einn af vorum eldri og reyndu prest- um var á spítalanum á sama tíma, og þegar rúm þeirra beggja voru færð út á hina skuggsælu veggsvali, fengu þeir tækifæri til að tala mikiö saman og rannsaka þaö, sem gat hjálpað þessum nýja Natanael til að skilja, að hann ekki var fallin á meðal þjófa né ræn- ingja eins og ferðaimaðurinn á leiðinni til Jeríkó, heldur meðal hóps Samverja, er reyndu að láta honum í té alt gott sem hugsast gat. Hinar hvítklæddu hjúkrunarkonur virtust honum sem englar náðarinnar, og þaö voru þær honum, eins og mörg- um öðrum, og honum fanst sem hann lifa í innilegri nærveru Frelsarans. Hann skildi nú betur og betur, er hann og hafði lesið “Veginn til Krists” tvisv- ar sinnum, að hann hafði aldrei þekt réttilega þessar manneskjur eða kenn- ingu þeirra. 'Honum hafði verið sagt, aö þeir væru lögmálsþrælar, sem bygöu von sína á góðverkum sínum — á því, aö halda heilagan hvíldardag Drottins, borga tíund og öðru fleira—til sáluhjálp- ar, en hann sá nú, að ekkert var fjær sannleikanum en það. Hann sá nú eins og Sál frá Tarsus, að hann í vanþekk- ing sinni hafði ofsótt sinn elsakaða lausnara meö því að berjast gégn þess- um börnum hans, sem leituðust við að

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.