Stjarnan - 01.06.1922, Blaðsíða 6
86
STJARNAN
gm 1 §r ^ ■ Hversvega er hann svo ákafur? €lllll!lllllll!!llll!lll!ll!l!IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIi E i ífíS k!i 1 jWLh1
Eitt af hinum helztu málgögnum
hinnar kaþólsku kirkju er blaSið “Our
Sunday Visitor” (Sunnudaga gesturinn
vorj. Benedikt heitinn páfi xv. skrif-
aSi ritstjóra þessa blaSs bréf áriS 1917
og veitti honum og starfi hans hina
“postullegu blessun”. Þetta blaS ler
kurteisin sjálf, þegar það flytur grein-
ir vibvíkjandi málum, sem snerta bæSi
mótmælendur og þá, sem játa kaþólska
trú. Áttunda janúar þ.á. flutti það rit-
stjór.nargrein meS eftirfarandi lyfir-
skrift: “Ákafi þinn í samanburSi vib
ákafa hans,” sem vér erum sannfærSir
um aö kaupendur Stjörnunnar munu
hafa ánægju af aS lesa:
“Hin síðasta hagfræðislega og fjár-
hagslega skýrsla Sjöund'á-dags Advent-
ista er bæSi merkileg og lærdómsrík.
Þó að þessi trúflokkur hafi ekki nerna
100,000 meSlima í Bandarikj unum og
aöeins 185,000 í öllum 'heimi, hefj/r
hann kristniboöa í öllum löndum og
prentar bækur sínar, smárit og tímarit
á níutíu og níu tungumálum og mál-
lýzkum. Hann prentar 144 blöð og
tímarit, sem eru lesin af mörgum sinn-
um fleiru .fólki en þaö eru Adventista
meðlimir. Hver einasti fylgjandi þessa
trúflokks er kristniboöi, bæöi meö því
aö starfa persónulega og með því að
styöja verkið fjárhagslega. í sannleika
útheimtir það mikið hugrekki og mik-
inn sjálfsafneitunar anda að tilheyra
Adventista kirkjunni. Það eru engir
skroparar meðal þeirra. Þessir 185,000
meðlimir gáfu yfir árið 1920, $11,854,-
040.23 (ellefu miljónir átta hundruð og
fimtíu og fjórar þúsundir og fjörutíu
dollara og tuttugu og þrjú centsj. ,Það
þýðir að hver meðlimur um allan heim
gaf $63.92. Þar eð margir meðlimir í
öðrum löndum geta ekki gefið eins
mikið og þeir, sem búa í þessari álfu,
er það mjög sennilegt, að Adventistar í
Bandaríkjunum hafi gefið að minsta
kosti $xoo.oo hver, til þess að styðja
sinn eigin söfnuð og heiðingjatrúboðs-
starfið. Vöxturinn í 1920 yfir 1919
var $3,277,353.31.
“Lesarinn veit ef til vill, að allir Ad-
ventistar verða að borga söfnuðinum
hina biblíulegu tíund, eða tíu af hundr-
aði af öllum tekujm sínum. Frá þess-
ari uppsprettu meðtók kirkjan $7,195,-
436.4. Þessi tíund var jafnvel borguð
af hinum fátæku meðlimum x Norður-
álfunni. Hinn almáttugi Guð verður
að fá frumgróðann af vinnu og fram-
leiðslu Adventista-meðlimanna og nem-
ur þessi frumgróði tíu af hundraði.
Þetta sama fólk gaf rneira til kristni-
boðsstarfsins en hinar tuttugu miljónir
káþólskra manna 5 Bandarík|junum
gáfu. Nam upphæðin, sem Adventist-
arnir gáfu, $4,658,941.19. Allir Ad-
ventistar gáfu $2.00 fyrir hvert cent,
sem gefið var af kaþólskum; með öðr-
um orðum, Adventistakirkjan í Banda-
ríkjunum gaf hlutfallslega tvö hundruð
sinnum meira en kaþólska kirkjan.
“'Þ'ess vegna getur þú, sem ímyndar
þér að þín kirkja, með sínum vikulegu
samskotum og kröfum um stuðning
'fyrir kristnj|boðsverkið, ileggi þungar
byrðar þér á herðar, lært bæði ákafa og
sjálfsfórn af Sjöunda-dags Adventist-
anum. Ekki einungis buddan hans,
heldur og tómstundir og þrek hans eru
helguð þjónustu safnaðarins. Hann er
vel að sér í kenningu kirkju sinnar,
getur staðist árásir allra mótstöðu-
manna, gefur og lánar í burtu blöð,
bækur og tímarit sín eftir að hafa les-