Stjarnan - 01.06.1922, Blaðsíða 14

Stjarnan - 01.06.1922, Blaðsíða 14
94 STJARNAN “Vit þú og hygg að: Frá þeim tima aö sú skipun út gengur, að Jerúsalems borg skuli uppreist og bygö veröa og alt til hins smurða, til höfðingjans, eru sjö sjöundir og sextíu og tvær sjöund- ir; þá munu strætin og borgarveggirnir upp reistir og bygSir verSa, þó aS þröngvar tíSir séu. En eftir þær sex- tiu og tvær sjöundir mun hinn smuröi afmáSur verSa, og ekki framar á lífi vera; en þjóð hins næsta höfSingja mun borgina og helgidóminn i eyði leggja” fDan. 9: 25, 26). Þessi spámannlegu tímabil byrja á þeim tíma, þegar skipunin útgengur, aö Jerúsalem skuli upp reist og bygS verSa. , Hin 490 ár náðu til þess tíma, þá Messías byrjaSi verk sitt, og hin 2300 ár til byrjunar hins rannsakandi dóms í hinum himneska helgidómi, sem fram fer rétt áSur en Jesús kemur aft- ur í dýrö og veldi. Þaö er þess vegna mjög áríSandi, aS fá vissu fyrir þvi, hvenær skipunin um endurbygging Jerúsalems var út gefin. fFrh.J FRÉTTIR. Einn fimtungur íbúanna í Kína eru , jarðykrjumenn. ETý egg kosta í Kína tvö cents tylft- in, en í Japan kosta þau þrjú cents. Á tveimur árum hafa brunniS kirkj- ur í Bandaríkjunum fyrir $6,000,000. Orsakir eldsins voru aSallega slæmar hitunarvélar, þíar næst eldingar og í þriSja lagi rafmagnsvírar. HiS nýjasta nýtt á markaSinum er strokleSur bein, sam ekki er hægt aS eySileggja. Þau kosta $1.00 stykkiS og eru ætluS til aS vera leikföng handa ijrjflings'hundum ýmSra auSmanna og kvenna. Hinn mikli ameriski herforingi, Ulys- ses Grant, fæddist 27. apríl 1822. Á hundraS ára afmæli hans gaf Banda- ríkjastjórnin út tíu þúsund gulldollara og tvö hundruS og fiimtíu þúsund silf- ur hálf-dollara i minningu hans. Skipshöfnin á brezka herskipinu “Childs”, sem er á verSi í MiSjarSar- hafinu, hefir tekiS aS sér að sjá um uppeldi fjörutíu rússneskra barna, sem flóttamenn frá hallærissvæðinu á Rúss- landi hafa haft meS sér. Skipverjar hafa keypt stórt hús handa þeim og fengiS rússneskar og amerískar sjálf- boSakonur til aS hjúkra þeim. Er þaS sannarlega vel gjört. HiS stærsta egg, sem menn þekkja, mælist tuttugu og sex þumlunga um miSjuna, tekur átta potta og skunm þess er áttunda part úr þumlungi á þykt. Eitt af þessum afar stóru eggjum er nýlega sent frá Madagaskar til New York. Var þaS hinn vængjalausí æpyornis fugl, sem varp þess konar eggjum.; en því miSur er nú búið aS útrýma þessari fuglategund. Var sá fugl í ætt viS apertyx fuglinn á Nýja Sjálandi. Steinn, seim vigtar hálft annaS tonn, var fyrir nokkru fluttur frá Panama- skurSinum til Oyster. Bay, Long Island, þar sem hann mun reistur verSa sem bautasteinn yfir gröf Theodore Roose- velts, fyrverandi forseta Bandaríkj- anna. Hollenzkur vísindamaSur nokkur, sem einnig er góSur flugmaSur, hefir gjört uppdrátt aS flugvél, sem mun verSa níu hundruS og fimtíu fet á lengd, hafa' þrjátíu og tvær vélar meS 6,400 hesta afli og geta tekiS þrjú hundruS farþega. Þessi risavél mun fara sjö- tíu og tvær milur á klukkutima.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.