Stjarnan - 01.05.1923, Síða 5

Stjarnan - 01.05.1923, Síða 5
STJARNAN 69 I mi'Sju kafi þessa kvalafuíla ibiS- tíma komu nýjir erfiðleikar úr annari átt, þar sem maöur sízt haföi vænt þeirra. Dag nokkurn eftir nóniö var herra Hough send ströng skipun um að koma undir eins upp í ráðhúsið og sanna að hann væri sá, sem hann sagðist vera. Þessi stranga skipun var svo ólík öll- um öðrum boðum, sem þau höfðu feng- iö frá stjórninni, að ótti og hugleysi gagntóku öll á k'ri'stnjboSsstöSinni. Herra Hough flýtti sér aS hlýöa skip- uninni. Álengdar fylgdu honum kenn- arar og þjónar á stöðinni. Þar eö þaS var nokkuS framorSiS þegar hann kom upp í ráðhúsiö, létu þeir hann fara heim gegn ábyrgö og tilkyntu honum aö koma aftur næsta morgun. “Ef hann þá ekki segði þeim allan sannleikann viðvikj- andi stööu sinni í landinu, mundu þeir rita hana meS hjarta'blóSi hans”, til kyntu þeir honum og lögSu um leiö djöfullega áherzlu á orðin. Undir þess konar kringumstæðum mundi frú Judson hafa leitað 'hjálpar hjá konu jarlsins, en skömmu áöur var hinn vingjarnlegi jarl og fjölskylda hans farin frá Rangoon til Ava. Sam- kvæmt birmönskum siövenjum mátti enginn kvennmaður sýna sig viö hirö- ina þegar kona jarlsins var fjarverandi, þess vegna var frú Judson varnað milli- göngu. Herra Hough gat ekki talaS hið birmanska mál nógu vel til aS ganga persónulega fram fyrir jarlinn, svo hon- um var ómögulegt aö gjöra annaS en aö fara upp í ráðhúsið næsta morgun og bíða þar eftir úrlausn. Þeir héldu honum tvo daga í ráöhús-: inu, þar sem hann gegnum túlk var þvingaður (jil áð svara hinum undra- verðustu spurningum, til dæmis, 'hvaö nöfn foreldra hans voru og hve marga fatnaði hann hefði meðferðis. Svörir. voru rituð með mestu nákvæmni. Hann var stöðuglega gagnspurður. Sunnudagsmorguninn fékk hann aft- ur boð um að koma upp' i ráðhúsiö til þess aS réttarhaldiö gæti haldið áfram. Frú Judson gat ekki lengur stilt sig um að vera þegjandi vottur að öllum þess- um þjáningum og ákvaS hún undir eins aS finna út, hvort jarlinn bæri á- byrgöina á þessum yfirgangi eöa ekki, hvort það væru einungis lægri embætt- ismenn, sem reyndu að féfletta þau. Hún fékk þess vegna kennara sinn til að rita jarlinum. BréfiS fjallaSi urn þaö, sem þau höfðu þurft að líSa, um skipunina til aS mæta í réttinum á 'helg- um degi þeirra og að lokum bæn um aö hans hátign vildi stööva þess konar framferö embættismannanna i framtíS- inni. Frú Judson bjó sig aö lokum undir að .fara sjálf upp í ráShúsið, þvert á móti siðvenjum BirmaþjóSarinnar, og reyna að ná tali af jarlinum. Herra Hough fylgdi henni þegar hún gekk inn í fyrsta herbergiS, þar sem jarlinn undir eins varö var viS hana. Hann sat um- kringdur af öllum embættismönnum sínum. Hann þekti hana undir eins og meö lotningu bað hann hana utn aö

x

Stjarnan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.