Stjarnan - 01.07.1924, Síða 4
IOO
STJARNAN
hjörtum vorum fyr en vér getum notiö
dýrÖar 'hans framtíÖar ríkis. Hann
veröur aÖ skipa öndvegi hjartans og rita
lögmál sitt á spjöld þess. Kristur sagÖi
sjálfur þessu viðvíkjandi: “Því sjá,
Guös riki er hiö innra í yÖur.” (Xúk.
17: 2\).
Það er fernt, sem myndar konungs
ríki: Konungurinn, þegnarnir, svæöiö
og lögin. í þessu tilfelli er Kristur
konungurinn, vér erum þegnarnir, hjart-
að er stjórnarsvið hans og tíu botiorðin
eru lögin, sem af Guðs anda verða rituð
á holdspjöld þess. Þessa reynslu nefnir
Kristur að endurfæðast, eða að vera
“getinn að ofan”. (Jóh. 3: 3). Og
nema maðurinn hafi þessa reynslu, get-
ur hann ekki séð Guðs dýröarríki, með
öðrum orðum, hann getur ekki orðið
borgari þess.
Hin himnesku hlið munu einu sinni
opnast og með óteljandi englum mun
Rrelsari vor koma sem konungur kon-
unganna og Drottinn drotnanna. “Drott-
inn mun þá verða konungur yfir öllu
landinu.” fSak. 14: g). “Og eg heyrði
raust mikla frá hásætinu, er sagði: Sjá,
tjaldbúð Guðs er meðal mannanna, og
hann mun bua hjá þeim , og þeir munr,
vera fólk hans, og Guð siálfur mun vera
hjá þeim, Guð þeirra” (Oþ. 21: 3J.
En áður en Jesús getur komið aftur,
sagði hann, að “þessi fagnaðarboðskap-
ur um ríkið muni prédikaður verða um
alla heimsbygðina, til vitnisburðar öllum
þjóðum; og þá mun endirinn koma”
(Matt. 24: 14).
Ríkið mun ekki endurreist verða, fyr
en boðskapurinn um náð og dýrð hans
hafi' verið kunngjörður í öllum heimi.
Þegar vér þess vegna felum oss Guði á
hönd, til þess að geta unnið aðra, flýtum
vér fyrir komu hans rikis. Einungis
þeir, sem helga sjálfa sig þjónustu hans,
hvaða stöðu sem þeir kunna að hafa í
mannfélaginu, og segja: “Hér er eg,
send þú mig” til þess að opna hin blindu
augu mannanna og snúa þeim frá myrkri
til ljóss og frá Satans valdi til Guðs, svo
aö þei’r öðlist syndafyrirgefningu og arf
með þeim, sem helgaðir eru (Es. 6:8;
Post. 26: 18J geta beðið í sannleika:
“Komi ríki þitt.”
IV.
"Verði vilji þinn, svo á jörðu sem á
himni.”
Mannsandinn getur ekki dvalið viö há-
leitari hugleiðingar en þær, að vilji Guðs
mun einu sinni veföa á jörðu, eins og
hann er framkvæmdur á himni. í sínu
ótakmarkaöa ríki — alheiminum — hefir
Guð einungis einn mælikvarða, sem sýn-
ir þegnunum vilja hans, og þessi vilji
hans er þeim opinberaöur í boöorðum
hins heilaga lögmáls hans. Meginregl-
ur þess lögmáls eru meginreglur himins-
ins. Englar himinsins leita ekki hærri
þekkingar en þeirrar, að þekkja vilja
Guðs; og að gjöra vilja hans, er hin göf-
ugasta þjónusta, sem þeir geta notað
krafta sína til að veita' honum. “Lofiö
Drottinn, þér englar harts, þér voldugu
hetjur, sem framkvæmiö boð hans, er
þér heyrið hljóminn af oröi hans. Lofið
Drottin allar hersveitir hans, þjónar
hans, er framkvæmið vilja hans” (Sálm.
103: 20, 21.)
En á himnum er ekki þjónusta veitt
Guði í anda laganna. Þegar Satan gerði
uppreisn á móti lögmáli Drottins, kom
hugsunin um lögmál til margra engla
eins og vakning til meðvitundar um það,
hvers tilvera aldrei hafði komið þeim
til hugar. í þjónustu sinni eru þess
vegna englarnir ekki eins og þjónar,
heldur eins og synir, og eru þeir í ritn-